Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Í upphafsreglugerð um hrognkelsa- og grásleppuveiðar á komandi ver- tíð, sem gefin var út af sjávarútvegs- ráðuneytinu í síðustu viku, er neta- dögum fækkað enn. Veiðidögum á grásleppu hefur fækkað síðustu árin, meðal annars vegna offram- boðs á hrognum á heimsmarkaði. Samkvæmt upphafsreglugerð fyrir komandi vertíð sem gefin var út sl. fimmtudag verður útgerðum hvers báts með veiðileyfi heimilt að hafa net í sjó í samfellt 20 daga. Daga- fjöldinn á síðustu vertíð var 32 dagar og vertíðinni þar á undan 50. Neta- fjöldi í sjó á hvern bát verður áfram sá sami og á síðustu veríð, 200 net, en þeim fækkaði þá úr 300 frá ver- tíðinni þar á undan. Hins vegar eru komin ný ákvæði um lengdir á neta- teinum og skilyrði um þær tengdar leyfilegum netafjölda. Dögum verður væntanlega fjölgað Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda sagði í samtali við Skessuhorn að þessi dagafjöldi kæmi varla til með að standa. Hann er sá sami og í upphafsreglugerð á síðasta ári. Örn sagði að grásleppusjómönn- um hefði fundist það á mörkunum að hægt væri að gera út á 32 dagana í fyrra. Það sem hafi bjargað vertíð- inni þá var að vel hafi veiðst á öll- um veiðisvæðum. „Það þarf ekki nema eina brælu hjá körlunum og þá er þetta farið,“ sagði Örn. „End- anlegur dagafjöldi ræðst af útkomu í togararallinu seinna í vetur. Haf- rannsóknastofnun hefur þá frest til 1. apríl að gefa út endanlega ráðgjöf um fjölda veiðidaga á komandi ver- tíð.“ Örn segir að útgerðir sem stundi grásleppuna hafi m.a. komið með tillögu um að fækkun veiðidaga yrði bætt upp með því að sameina leyfi, þannig að tvö leyfi yrði að einu og hálfu. Það ætti ekki að þýða meiri sókn en veiðar yrðu hagkvæmari. Á það hefur ekki verið fallist, jafnvel þó slíkt yrði takmarkað við þær út- gerðir sem gert hefðu út á gráslepp- una á eina af þremur undangegnum vertíðum. Grásleppusjómönnum þykir þröngt skorinn stakkurinn ef aðeins verða leyfðir 20 veiðidagar á kom- andi vertíð. Eiður Ólafsson skip- stjóri og útgerðarmaður á Akra- nesi gerir út Ísak AK. Hann hef- ur stundað grásleppuveiðar í inn- anverðum Faxaflóa mörg undan- gengin ár. „Það að leyfðir skuli 20 veiðidagar á bát í ár þýðir að þetta eru bara fimm róðrar reiknað út frá því að netin liggi í fjóra daga milli þess sem þau eru dregin. Það er allt- af verið að þrengja meir og meir að smábátaútgerð hér á landi. Þessar auknu takmarkanir nú eru bara enn eitt dæmið um það.“ Eiga að stytta teinana í netunum Eiður gerir þó alvarlegustu athuga- semdirnar við það að nú eru skyndi- lega og óvænt komin ný ákvæði í reglugerðina um grásleppuveiðar. Í þeim eru tilgreind ákveðin skilyrði um uppsetningu leyfilegra neta. „Í fyrra var reglugerðin þannig að net- um var fækkað niður í 200 frá fyrra ári. Þá var miðað við að netaslang- an væri 60 faðmar á lengd. Það voru svokölluð stutt net. Þegar talað var um löng net voru þau 120 faðmar. Nú eru þessar lengdir ekki leng- ur tilteknar í reglugerð heldur tal- „Þetta er bara eignaupptaka. Við getum ekki gert út á þetta, eigum ekki fyrir hafnargjöldum eða neinu ef þetta á að vera svona. Það kost- ar fé að hefja veiðar, það þarf að borga leyfi og annað. Verði veið- arnar með þeim hætti sem reglu- gerðin nú kveður á um verða ekki eftir neinir peningar til að gefa tekjur og borga laun. Grásleppu- bátar hafa nú verið að skila ansi miklu í hafnargjöld til dæmis hér í Stykkishólmi. Þegar mest hafa þetta verið um 25 bátar til dæm- is þegar afkoman var hvað best á veiðunum fyrir þremur árum síð- an. Síðan hefur grundvelli num verið kippt undan útgerðinni, einkum fyrir þessar reglugerð- ir sem stjórnvöld senda frá sér ár- lega,“ segir Þröstur Ingi Auðuns- son útgerðarmaður í Stykkishólmi í samtali við Skessuhorn. Þröstur á tvo grásleppubáta, Írisi SH og Ír- isi Ósk SH. Hann hefur gert þá út síðan 2005. Grásleppuveiðar hef- ur hann hins vegar stundað í 20 ár. Þessi þrautreyndi grásleppukarl er ómyrkur í máli um nýútgefna reglugerð stjórnvalda um hrogn- kelsaveiðar á þessu ári. Telur ekkert lát á sókn gegn veiðunum Þröstur segir það gersamlega út í hött að hverjum báti skuli einungis heimilt að stunda veiðar í tuttugu dagar á vertíðinni. „Í fyrra fengum við 32 veiðidaga á bát. Í fyrra náði ég að róa 13 róðra á einum bátn- um en 15 á hinum. Veðurfarið var mjög erfitt. Ég er vanur að róa sex daga vikunnar en í fyrra var það ekki hægt út af veðri. Dagarnir eru reiknaðir út frá þeim fjölda daga sem netin eru í sjó. Yfirleitt legg- ur maður og bíður svo í tvo daga áður en dregið er. Á góðri vertíð ætti að vera hægt að róa 25 sinnum ef veiðidagarnir eru 32 en í fyrra gerðist það ekki út af tíðarfarinu. Samt er útlit fyrir að við verðum skertir í dagafjölda á þessu ári,“ segir Þröstur. Hann segir ekkert lát á því hvernig sótt sé að grásleppuveið- unum. „Þetta voru 90 veiðidag- ar fyrir nokkrum árum. Þeim var svo fækkað niður í 60 og svo aft- ur í 32 í fyrra. Núna koma þeir með 20 daga. Við hér í Stykkis- hólmi teljum að dagarnir eigi að lágmarki að vera 50 talsins. Svo er önnur skerðing sem felst í að net- unum var fækkað úr 300 í 200 í fyrra á hvern bát. Þetta var þriðj- ungs skerðing sem kom ofan á þær auknu takmarkanir í veiðigetu sem birtist í færri sóknardögum.“ Óvænt ákvæði um uppsetningu neta Eins og Eiður Ólafsson á Akra- nesi er Þröstur einnig ósáttur við ný reglugerðarákvæði um upp- setningu grásleppunetanna. „Net duga í eina til fjórar vertíðar, allt eftir veðri. Kröfur um breytingar í reglugerð um það hvernig þau skuli felld eru út í hött því menn breyta ekkert sínum netum í ein- um vetfangi. Menn eiga sín net í dag. Flest allir grásleppukarlar í Stykkishólmi eru með lengri net en nýja reglugerðin telur leyfi- leg á komandi vertíð. Þar af leið- ir að þeir eru með ólögleg net fyr- ir þessa vertíð. Sjálfur er ég með 100 net sem ég felldi í fyrra og hafa aldrei farið í sjó. Ég hafði ætlað að nota þau á vertíðinni nú í ár. Þau eru öll of löng miðað við ákvæði reglugerðarinnar og þannig ólög- leg. Síðan kemur nýtt inn í reglu- gerðina að þegar sótt er um veiði- leyfi að menn verði að tilgreina netafjölda og netalengd sem þeir hyggist nota. Á ég að gefa upp að ég eigi bara ólögleg net,“ spyr Þröstur. Hann hlær með uppgjaf- artón. Situr uppi með verðlausa útgerð Þröstur segist einnig hafa ýmislegt að athuga við veiðistjórnun á grá- sleppu við Ísland. Reglugerðirnar eru einmitt settar með tilvísun til þess að stýra þurfi sókninni í tak- markaða auðlind. „Það er ýmislegt í þessu sem stenst enga skoðun. Ég nefni sem dæmi þessi vísindi Haf- rannsóknastofnunar. Þar þykjast þeir mæla stofnstærð grásleppu í einhverju togararalli með botn- vörpu. Grásleppan er bara ekki veiðanleg í slík veiðarfæri. Ég er ekki viss um að handhafar þorsk- kvóta myndu samþykkja að þorsk- kvóti yrði ákveðinn á grundvelli þess hvað ég fengi mikið af þorski í grásleppunetin í Breiðafirði sem er nánast ekki neitt! Þetta er mjög vafasamt og við höfum margoft mótmælt þessum vinnubrögum en það er ekkert hlustað.“ En hvers vegna er ekki hlust- að á sjónarmið grásleppuveiði- manna? „Þetta kemur út af því að við grásleppukarlar höfum engan almennilegan málsvara. Við höf- um ekki staðið vaktina og passað okkar hagsmuni. Þar af leiðir að stjórnvöld koma með svona reglu- gerð. Hún var vissulega send til umsagnar meðal annars til Lands- sambands smábátasjómanna. Þeir skiluðu athugasemdum en engin þeirra var tekin til greina,“ svarar Þröstur. Þessi reyndi hrognkelsaveiði- maður stendur nú frammi fyr- ir vanda. Hann telur að stjórn- völd hafi með nýjustu reglugerð sinni gert útgerð hans svo til verð- lausa. „Ekki get ég gert út á grund- velli 20 daga. Ég get heldur ekki selt bátana mína því það vill eng- inn kaupa þá vegna þess að það eru engin verefni fyrir þá,“ segir Þröstur Ingi Auðunsson í Stykkis- hólmi. mþh Upplifir nýja reglugerð sem hreina eignaupptöku Nýjar reglur um grásleppuveiðar valda óróa meðal útgerðarmanna grásleppu- báta. Hér er Jóhannes Eyleifsson frá Akranesi með eitt nýdregið hrognkelsi. Þröstur Ingi Auðundsson frá Stykkishólmi á og gerir út tvo báta í dag. Hann telur útgerð sína gerða verðlausa með einu pennastriki. Færri veiðidagar og ný skilyrði um netauppsetningu á grásleppuveiðunum að um teinalengd. Það eru gefin fyr- irmæli um það nú á hve langan tein eigi að fella netaslöngur sem eru 60 og 120 faðmar á lengd. Við höfðum alltaf fest netin á um 96 metra langa teina. Einhverjir höfðu þá styttri en þá slepptu þeir að staga sem kallað er, heldur þjöppuðu netinu meira niður á teininn. Þar af leiðandi gátu þeir fengið bolfisk sem meðafla með hrognkelsunum í grásleppunetin,“ útskýrir Eiður. Nú segir hann að settar hafi ver- ið nýjar reglur um sjálfa teinalengd- ina. „Með þessari nýju reglugerð er okkur nú skylt að fara með teina- lengdina niður í 38,4 metra. Þá get- um við haft 200 net í sjó. Ef teina- lengdin er meiri en þetta þá verð- um við að fækka netum um helm- ing, það er niður í 100. Teinalengd- in má þó aldrei vera meiri en 76,9 metrar.“ Telur framkomu stjórn- valda ekki boðlega Eiður segir að þetta komi sér væg- ast sagt afar illa. Hann hafi verið bú- inn að gera öll sín net tilbúin fyr- ir komandi vertíð. Það hafi hann gert í góðri trú og í samræmi við fyrri reglugerðir. „Öll mín net í dag eru með teinum sem eru 96 metra langir. Ég má því pottþétt ekki vera með meira en 100 net eftir þessa reglugerðarbreytingu. Skilyrðin um lengd á teinum er eitthvað sem er al- veg nýtt og hefur aldrei verið kveðið á um í eldri reglugerðum. Vandinn núna er að þetta kemur okkur al- veg í opna skjöldu. Menn eru búnir að útbúa sig og undirbúa fyrir grá- sleppuvertíðina. Það er búið að fella netin og gera þau tilbúin fyrir að verða lögð. Í þetta hafa verið lagð- ir bæði miklir fjármunir og vinna nú um vetrartímann. Við getum ekki farið að stytta netin núna. Við fáum enga aðlögun, reglugerðin kem- ur bara eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það er ekkert samráð haft við okkur sem stundum þessa útgerð.“ Eiður segir að svona vinnubrögð af hálfu stjórnvalda séu ekki boðleg. „Ég hlusta ekki á menn sem gera svona. Ég verð bara að sækja um leyfi og þar tilgreini ég hversu langa teina ég er með og svo er bara að bíða og sjá hver svörin verða áður en annað er ákveðið.“ Veiðitímabil grásleppubáta sem veiða við Vesturland eru óbreytt í nýju reglugerðinni frá fyrri veiði- tímabili. Hjá bátum sem gerð- ir verða út frá Faxaflóa verður frá tímabilið 1. apríl til 14. júní. Sami tími er á svæði 1 við Breiðafjörð, en á svæði 2 sem er megin veiðisvæðið við fjörðinn verður veiðin leyfð frá 20. maí til 2. ágúst. mþh/þá Ísak AK við bryggju á Akranesi. Eiður Ólafsson útgerðarmaður og skipstjóri á Ísak AK er mjög ósáttur við nýja reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um grásleppuveiðar á þessu ári. Hér er hann með vænan þorsk sem hann fékk í þorskanetin í upphafi ársins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.