Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Ingveldur M. Sveinsdóttir á Akra- nesi átti erfitt með að trúa sín- um eigin augum þegar hún kann- aði vinningaskrána í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Hún fékk síðan staðfestingu á að hún hefði unnið fyrsta vinning, KIA Cee´d sportswagon, að andvirði 3,6 millj- ónir króna. Þetta var einn af 192 skattfrjálsum vinningum í happ- drættinu. Tekjum af happdrætti Krabba- meinsfélagsins hefur fyrst og fremst verið varið til fræðslu um krabba- mein og krabbameinsvarnir, út- gáfu fræðslurita og stuðnings við krabbameinssjúklinga. Stuðningur við happdrættið hefur gert félaginu kleift að halda uppi öflugu fræðslu- starfi í þágu þjóðarinnar. Krabba- meinsfélag Reykjavíkur hefur um- sjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélags- ins. Í tilkynningu frá krabbameins- félaginu segir að félagið vilji þakka landsmönnum fyrir góðan stuðning í jólahappdrættinu. Það óski vinn- ingshöfum innilega til hamingju með vinningana og Bílaumboðinu Öskju fyrir mjög gott samstarf. þá Framsóknarflokkurinn efnir til opinna funda á Vesturlandi í vik- unni með þingmönnum flokks- ins í Norðvesturkjördæmi. Fyrstu fundirnir fara fram á morgun, fimmtudag. Þá verður fundað í Glerskálanum í Sam- kaupum Búðardal kl. 12, þvínæst á veit- ingastaðnum Pláss- inu í Stykkishólmi kl. 17:30 og um kvöldið á Hótel Hellissandi kl. 20:30. Föstudag- inn 7. febrúar verður fundað í félagsheim- ilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholts- hreppi kl. 12 og um kvöldið í Félagsbæ í Borgarnesi kl. 20. Síð- asti fundurinn í þessari fundaröð fer loks fram í Framsóknarhúsinu á Akranesi laugardaginn 8. febrúar kl. 20. Í tilkynningu frá flokknum seg- ir að hreinskiptið samtal þingmanna og kjósenda verð- ur stöðugt að eiga sér stað en ekki bara á fjögurra ára fresti. „Við hlökkum til að sjá þig í þínum heimabæ og spjalla saman yfir kaffibolla. Við getum rætt sam- an um það sem helst hefur verið í gangi í opinberi umræðu eða bara það sem liggur þér á hjarta. Samfélagið mótast af sameiginlegri vinnu okkar allra þar sem enginn er undanskil- inn,“ segir í tilkynn- ingunni frá framsókn- armönnum. -fréttatilk. Í tæplega þrjú ár hefur Borgar- fjarðardeild Rauða krossins rekið fataverslun í Borgarnesi. Fyrst var hún til húsa að Borgarbraut 61 en er nú í Félagsbæ að Borgarbraut 4. Í Rauðakrossbúðinni eins og hún er kölluð er seldur notaður fatn- aður og skór í öllum stærðum og gerðum fyrir konur og karla á öll- um aldri. Að sögn Svövu Svavars- dóttur umsjónarkonu búðarinnar og stjórnarmeðlims í stjórn Borg- arfjarðardeildar Rauða krossins er sjón sögu ríkari. „Hér leynist marg- víslegur fatnaður fyrir bæði kynin. Þetta er í raun algjör fjársjóðskista því hér eru mjög góðar flíkur sem eru lítið sem ekkert notaðar. Föt- in eru fyrir alla hópa; karla, kon- ur, unglinga og börn. Til að nefna einhver dæmi þá er hér að finna jakkaföt, kjóla, vinnuföt, íþróttaföt, yfirhafnir, grímubúninga, skyrt- ur, peysur, úlpur, trefla og margt fleira,” segir Svava. Fötin flokkuð fyrir sunnan „Stöðugt fáum við líka nýjar send- ingar af fötum til okkar. Rétt er að taka fram að öll föt sem Rauði kross- inn selur hafa verið gefin. Þeim er safnað víðsvegar um land í söfnun- argámana okkar og eru loks flutt í flokkunarmiðstöð RKÍ í Reykjavík af Eimskip sem styrkir starfið okk- ar af stórhug. Þaðan fáum við síðan nýjar fatasendingar í búðina. Það er mikilvægt að það komi fram að föt sem við í Borgarfjarðardeildinni tökum á móti hér á svæðinu fara beint suður til flokkunar og eru því ekki seld í búðinni hér við Borg- arbraut. Fólk sem til okkar kemur þarf því alls ekki að óttast að ganga í fötum af öðru fólki hér í bænum,“ segir Svava sem hvetur fólk ein- dregið til að leggja RKÍ lið með því að gefa föt. „Ég minni fólk á fata- gáminn okkar við Félagsbæ í næstu tiltekt. Í hann er hægt að setja föt allan sólarhringinn.“ Allur ágóði rennur til Rauða krossins Verðlagningu er stillt í hóf í búð- inni segir Svava og eru verð sam- kvæmt verðskrá Rauða krossins. „Félagsdeildir RKÍ reka fjölda búða um allt land og er verðlagning því samræmd.“ Svava bætir því við að allur ágóði af sölu fatnaðar í Rauða- krossbúðinni í Borgarnesi renni til verkefna sem rekin eru af Borg- arfjarðadeildinni. Búðin er rekin í sjálfboðavinnu og leggur á ann- an tug sjálfboðaliða hönd á plóg í rekstri hennar. „Þetta er hress og skemmtilegur hópur sem kemur að búðinni og er mikil ánægja í hon- um. Við skiptumst á að standa vakt- ina, en opið er á fimmtudögum frá kl. 15-18, föstudögum frá kl. 14-18 og laugardögum frá kl. 12-15. Allt- af er pláss fyrir fleiri sjálfboðaliða með okkur og hvet ég alla áhuga- sama sem vilja leggja starfi Rauða krossins lið til að hafa samband við mig eða í búðina. Þá er rétt að geta þess að í Reykjavík hefur skapast sú hefð að starfsfólk fyrirtækja taki að sér vakt í búðunum í eina og eina viku. Ég hvet fyrirtæki, hópa og félagasamtök hér á svæðinu til að skoða þennan möguleika.“ Svava hvetur fólk til að koma í heimsókn í Rauðakrossbúðina. Þar er hægt að gera afar góð kaup og finna jafnvel hágæða tískuflíkur og merkjavöru á lágu verði. „Það er meira að segja þannig að sumir kjósa að versla eingöngu í búðum sem þessum, einfaldlega vegna þess að þar finnast svo smart föt. Í mörg- um erlendum borgum eru til dæm- is til margar búðir sem hafa helgað sig sölu á notuðum og gömlum föt- um. Þær eru einfaldlega sívinsælar. Íbúar á Vesturlandi þurfa ekki að leita langt yfir skammt til að finna góða og skemmtilega fatabúð.“ hlh Við formlega afhendingu vinningsins. Á myndinni eru talið frá vinstri: Björn Guðmundsson markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju, vinningshafinn Ingveldur M. Sveinsdóttir, Guðlaug B. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Þorgeir Ragnar Pálsson sölustjóri Kia fólksbíla hjá Öskju. Átti erfitt með að trúa því að hún hefði unnið bíl Þingmenn Framsóknarflokks- ins í Norðvesturkjördæmi, þau Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Hanna María Sigmundsdóttir. Efna til opinna funda á Vesturlandi Fjölbreyttar yfirhafnir eru til sölu í búðinni. Rauðakrossbúðin er góð og skemmtileg fataverslun Hópurinn á bakvið Rauðakrossbúðina í Borgarnesi: F.v. Jóhanna G. Möller, Elín Kristinsdóttir, Ásdís Geirdal, Margrét Vagns- dóttir, Svava Svavarsdóttir, Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Ása Baldursdóttir, Guðný M. Ingvadóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir, Kristín H. Kristjánsdóttir, Magnús Guðbjarnason og Monika Mazur. Ýmis föt leynast í Rauðakrossbúðinni, allt frá skyrtum og barnafatnaði til kjóla og jakkafata.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.