Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Skallagrímsmenn lögðu land undir fót á föstudaginn þegar þeir mættu KFÍ á Ísafirði í Dominos deild karla í körfubolta. Borgnesingar byrjuðu betur í leiknum og leiddu eftir fyrsta leikhluta 16:20. Páll Axel Vilbergs- son fór hamförum í leikhlutanum og skoraði 17 stig. Þar af skoraði hann fimm þriggja stiga körfur sem allar komu hver á eftir annarri strax á fyrstu mínútunum. Skallagríms- menn héldu uppteknum hætti í öðr- um leikhluta. Ísfirðingar voru þó ekki langt undan og náðu með góð- um leik að saxa muninn í þrjú stig þegar flautað var til hálfleiks, 43:46. Þriðji leikhluti var hins vegar eign heimamanna sem tóku forystuna strax á fyrstu mínútunum. Borgnes- ingar réðu illa við vörn heimamanna og frammistöðu þeirra sóknarmeg- in og voru komnir tíu stigum und- ir þegar leikhlutinn endaði, 69:59. Gestirnir voru þó ekki á því að gef- ast upp og með góðri baráttu á loka- mínútunum náðu þeir að minnka muninn í eitt stig þegar fáeinar sek- úndur voru eftir. Borgnesingar áttu því síðustu sókn leiksins og fékk Benjamin Curtis Smith það vanda- sama hlutverk að taka lokaskotið fyrir sigrinum. Það rataði ekki ofan í og sigruðu því Ísfirðingar 83:82. Atkvæðamestur í liði Skallagríms í leiknum var Páll Axel Vilbergsson sem átti afar góðan leik með 36 stig og 7 fráköst. Næstur kom Benjam- in Curtis Smith með 14 stig, 12 frá- köst og 10 stoðsendinga. Þrátt fyr- ir þrennuna var Smith töluvert frá sínu besta sóknarmegin í leikn- um en hann var einungis með 3/18 skotnýtingu í leiknum. Þá skoruðu Grétar Ingi Erlendsson 10 stig, Orri Jónsson 9, Egill Egilsson 8, Davíð Ásgeirsson og Trausti Eiríksson 2 hvor og þá var Sigurður Þórarins- son með 1. Vítaskotin reyndust lið- inu erfið viðureignar í leiknum en nýting þeirra var 13/26. Með tapinu misstu Skallagríms- menn af tveimur mikilvægum stig- um í Dominos deildinni. Sigur gegn KFÍ hefði þýtt að liðið kæm- ist í góða fjarlægð frá botnsvæð- inu og jafnframt aukið líkur sínar á að ná sæti í úrslitakeppni. Um dýrt tap var því að ræða. Engu að síð- ur á liðið sjö leiki eftir í Dominos- deildinni og hefur það því næg tæki- færi til að rétta sinn hlut. Næsti leik- ur liðsins er gegn Njarðvík á morg- un, fimmtudag. Leikurinn fer fram í Borgarnesi og hefst kl. 19:15. hlh Breski golfvefurinn „top100golfcourses.co.uk,“ valdi nýverið Garðavöll á Akranesi sem þriðja besta golfvöll landsins. Í fyrsta sæti telja Bret- arnir vera Hvaleyrarvöll í Hafnarfirði og annan besta völlinn Grafarholtsvöll í Reykjavík. „Það er ánægjulegt að segja frá því að Garðavöllur er tal- inn þriðji besti golfvöllur Íslands líkt og árið 2012 þegar listinn var síðast gefinn út. Þetta er án efa hvatning til Leynisfélaga um að við eigum góðan golfvöll sem eftir er tekið,“ segir í tilkynningu frá Golfklúbbnum Leyni. mm Síðastliðinn fimmtudag var Hildur Björg Kjartansdóttir kjörin Íþrótta- maður Snæfells 2013. Hún er afar vel að heiðrinum komin, hefur ver- ið að standa sig vel í körfunni. Með henni á myndinni eru Hjörleif- ur Kristinn Hjörleifsson, formað- ur Umf. Snæfells, og María Valdi- marsdóttir. eb Skagakonur hafa tapað tveim- ur fyrstu leikjunum í Faxaflóa- mótinu, nú síðast 0:5 fyrir Breiða- bliki í Akraneshöllinni sl. fimmtu- dagskvöld. Markalaust var í hálfleik og komu því öll mörk Blikastúlkna í síðari hálf- leiknum. Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari Ska- galiðsins gerði þrjár breytingar á sínu liði í seinni hálfleiknum en það dugði ekki til að svara mörk- um gestanna úr Kópavoginum. Næsti leikur ÍA í Faxaflóamótinu verður gegn FH 15. febrúar og fer sá leikur einnig fram í Akraneshöllinni. þá Skagamenn unnu þrjátíu stiga sigur á Vængjum Júpiters þegar liðin mætt- ust í 1. deildinni í körfu- bolta í Grafarvoginum sl. föstudagskvöld. Með sigrinum hopp- aði ÍA úr áttunda sætinu í það sjötta og er jafnt Breiðabliki sem er í 5. sætinu með 12 stig. ÍA er þar með aftur farið að blanda sér í baráttuna um sæti 2-5 í deildinni sem gefur rétt til að spila um eitt úrvalsdeildarsæti í vor. Skagamenn höfðu öll tök á leik- num í Grafarvoginum strax frá upp- hafi. Í hálfleik var staðan 51:38 fyrir ÍA. Munurinn jókst síðan stórlega og fór í 32 stig eftir þriðja leikhluta sem ÍA burstaði 34:15. Ungir leikmenn og þeir sem minna hafa spilað fengu svo tækifæri í síðasta fjórðungi leiksins, en lokatölur urðu 106:76 fyrir ÍA. Stiga- hæstur var sem fyrr Jamarco Warren með 33, Áskell Jónsson skoraði 17, Birkir Guðjónsson 12, Birkir Guð- laugsson og Ómar Örn Helgason 10 hvor, Þorleifur Baldvinsson og Þor- steinn Helgason 4 stig hvor og Trausti Freyr Jónsson og Örn Arnarsson 3 stig hvor. Í næstu umferð sem fram fer á föstu- daginn fær ÍA Þór frá Akureyri í heim- sókn á Jaðarsbakka. Þór er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig. þá Það fór ekki svo að undanúrslista- leikurinn í Powerade bikarkeppni kvenna milli Snæfells og KR yrði hörkuspennandi, en þessi lið hafa háð jafnar viðureignir í deildinni í vetur. Snæfell var mun sterkara lið- ið þegar KR-ingar mættu í Hólm- inn sl. laugardag og sigruðu heima- stúlkur með yfirburðum; 88:61. Snæfellskonur eru þar með komn- ar í úrslitaleikinn sem fram fer í Laugardalshöllinni laugardaginn 22. febrúar. Andstæðingar þeirra þar verða Haukastúlkur sem lögð Keflavík í hinum undanúrslita- leiknum. Leikurinn byrjaði af krafti og komst Snæfell í 13:4. Staðan eftir fyrsta hluta var 22:12 fyrir Snæfell. Leikurinn jafnaðist heldur í öðrum hluta og einungis munaði sjö stig- um á liðunum í hálfleik, en þá var staðan 41:34 fyrir Snæfell. Í þriðja leikhlutanum var stöðugleikinn hjá heimastúlkum betri og þær bættu við forskotið. Staðan var orðin 64:49 fyrir lokakaflann. KR stúlk- ur voru ekki á því að gefast upp en náðu samt ekki að vinna upp þenn- an mun og urðu að lokum að játa sig sigraða með talsverðum mun. Lokatölur eins og áður sagði, 88:61 fyrir Snæfell sem bætti í á síðustu mínútunum. Hjá Snæfelli var Chynna Brown atkvæðamest með 27 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir kom næst með 15 stig og 11 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 12 stig og 7 frá- köst, Hildur Sigurðardóttir 11 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar, Guð- rún Gróa Þorsteinsdóttir 10 stig, 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 6 stolna bolta, Eva Margrét Kristjánsdóttir 10 stig og Rebekka Rán Karlsdótt- ir 3. Hjá KR var Bergþóra Holton stigahæst með 18 stig. þá Víkingar frá Ólafsvík töpuðu á laugardaginn þriðja og síðasta leik sínum í b-deild fótbolta.net mótsins. Leikið var gegn Gróttu á gervigrasinu á Seltjarnarnesi. Víking- ar komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn með marki Brynjars Kristmundssonar. Gróttumenn jöfnuðu skömmu síðar. Gróttumenn bættu síðan við tveimur mörkum áður en Vigni Snæ Stefáns- syni tókst að laga stöðuna fyrir Víkinga tíu mín- útum fyrir leikslok. Lokatölur urðu því 3:2 fyrir Gróttu. Víkinga unnu einn leik af þremur í riðl- inum, unnu Tindastól í fyrstu umferð en töpuðu síðan fyrir HK, sem sigraði í riðlinum, og Gróttu. þá Í fyrrahaust var hér í Skessuhorni greint frá stofn- un Klifurfélags Akraness. Félagið er með æfinga- aðstöðu í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Nýverið var komið á föstum æfingum fyrir aldurshópinn 8 – 12 ára og kallast hópurinn KlifurApar. Um er að ræða sex vikna námskeið, þar sem æft er tvisv- ar í viku og var fullt námskeiðið sem er það fyrsta sinnar tegundar á svæðinu. Þá hafa nemendur í unglingadeild Brekkubæjarskóla getað valið sér klifur í svokölluðu klifur-valtímum í skólanum. Einnig eru allir krakkar, 12 ára og yngri velkomn- ir í krakkaklifur á sunnudögum í fylgd með full- orðnum. Nóg er því um að vera í klifrinu fyrir káta krakka á svæðinu. grþ Æfingar hafnar hjá Klifurfélagi Akraness Víkingar töpuðu Skagakonur án stiga Garðavöllur áfram í þriðja sæti Dýrt tap Borgnesinga á Ísafirði Páll Axel Vilbergsson var manna bestur í liði Skallagrímsmanna á Ísafirði. Vel og innilega var fagnað í leikslok. Ljósm. Eyþór Ben. Snæfellskonur komnar í úrslit i bikarkeppninni Hildur Björg er íþróttamaður Snæfells 2013 Skagamenn fikra sig upp töfluna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.