Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Ágæti félagsmaður. Aðalfundur Þverárþingsdeildar Kaupfélags Borgfirðinga fyrir árið 2013 verður haldinn í Félagsheimilinu Þinghamri miðvikudaginn 12. febrúar 2014 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf deildarinnar 2. Kynning kaupfélagsstjóra á rekstri KB 3. Kynning á stefnumótun félagsins 4. Önnur mál Kaupfélagsstjóri mætir á fundinn og gerir grein fyrir starfsemi KB, sölumálum á áburði, plasti og áætlunum og horfum á árinu 2014. Nýir félagsmenn velkomnir á fundinn. Inntökugjald er kr. 1000. Árgjald er ekkert. Deildarstjóri. Til félagsmanna í Þverárþingsdeild KB Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15 Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð Mjólka kynnir vörur sínar Kynning á hreinsiefnum frá Kemi Kynning og tilboð á Kerckhaert járningavörum, umboðsmaður á staðnum, býður upp á ís * Vetrarskeifurnar með breiða teininum komnar * Tískusýning á vetrarfatnaði, tilboð á fatnaði frá 66°N 10 - 50 % afsláttur af völdum vörum í versluninni Royal Canin, glað ingur fylgir öllum pokum af hunda-og kattamat. Umboðsmaður á staðnum Kaffi og rjómaterta Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfði á Akranesi hefur sökum erfiðs rekst- urs sagt upp stöðu djákna við heim- ilið. Fjórar konur sem búa á Höfða hafa nú sent sveitarfélaginu Hval- fjarðarsveit bréf þar sem þær biðja stjórn þess að hlaupi undir bagga og greiða fyrir þjónustu djákna við heimilið frá 1. apríl til ársloka, það er í níu mánuði. Konurnar eru all- ar úr Hvalfjarðarsveit. Eins og fram kom í úttekt Skessuhorns í janúar hefur Dvalar- og hjúkrunarheimil- ið Höfði verið rekið með um 200 milljón króna halla á síðustu tveim- ur árum. „Að öllu óbreyttu munu Akraneskaupstaður og Hvalfjarðar- sveit þurfa að leggja fram fé í rekst- urinn til að mæta hallanum,“ sagði Kjartan Kjartansson framkvæmda- stjóri Höfða þá í viðtali við blaðið. Sáluhjálp fyrir íbúa Djáknastarfið á Höfða hefur verið 20% staða sem hefur falist í að veita vistmönnum ákveðna sáluhjálp. Djákninn hefur starfað á mánudög- um í hverri viku með því að heim- sækja fólk og spjalla við það. Einn- ig hefur djákni stýrt morgunstund á sal hvern mánudag og haldið stuttar minningarstundir við and- lát íbúa Höfða. Sömuleiðis hefur djákni haldið stuttar kveðjustund- ir við dánarbeð ef þess hefur verið óskað og staðið fyrir svokölluðum endurminningafundum þar sem nokkrir íbúar koma saman í hóp á bak við luktar dyr og ræða saman í einrúmi. Það er Ragnheiður Guð- mundsdóttir frá Ásfelli sem hefur sinnt starfi djákna við Höfða um margra ára skeið. Hún hefur einn- ig starfað í hlutastarfi sem sjúkra- liði við dvalar- og hjúkrunarheimil- ið. Öll sú þjónusta sem djáknastarf- ið veitir verður að óbreyttu lögð af í sparnaðarskyni frá 1. apríl næst- komandi vegna mikils niðurskurðar í rekstri Höfða. Málið er til umræðu Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tók erindi kvennanna fjögurra fyr- ir á fundi sínum 28. janúar síðast- liðinn. „Þetta var rætt á fundinum. Þar sem Höfði er sameignarstofn- um Hvalfjarðarsveitar og Akranes- bæjar var mér falið að ræða málið betur við bæjarstjórann á Akranesi og framkvæmdastjóra dvalarheim- ilisins til að athuga hvort ekki megi finna sameiginlegan flöt til lausnar málinu,“ segir Laufey Jóhannsdótt- ir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Upphæðin sem málið snýst um er í kringum 1,2 milljónir króna. mþh Grunnskólinn í Grundarfirði hef- ur sett sér það markmið að vera framarlega í notkun nýjustu tækni í skólastarfinu og er spjaldtölvu- menning liður í því. Skólinn býr svo vel að eiga 31 spjaldtölvu, sem nemendur og kennarar geta notað. „Við höfum stefnt að því í áratugi að vera framarlega í upplýsinga- tækni. Við höfum til dæmis ver- ið með þráðlaust net í átta ár, sem er ekki algengt í skólum víða. Við vorum upphaflega með borðtölvur hér í skólanum og svo með fartölv- ur. Þær hafa svo verið að týna töl- unni og við ákváðum að færa okkur yfir í spjaldtölvur. Við keyptum sjálf 18 tölvur. Svo gátum við bætt við fleiri tölvum fyrir söfnunarfé sem fyrirtæki og félagasamtök í bæn- um styrktu okkur um og við eigum 31 spjaldtölvu í dag,“ segir Anna Bergsdóttir skólastjóri Grunnskól- ans í Grundarfirði í samtali við Skessuhorn. Nýjar kennsluaðferðir Spjaldtölvurnar nýtast vel við kennslu og verkefnavinnu. „Við ákváðum að byrja á því að láta 9. og 10. bekk hafa spjaldtölvur til sólarhringsafnota. Krakkarnir hafa þá tölvurnar allan sólarhringinn og kennararnir þeirra líka. Tækið er þá nýtt sem vinnutæki þar sem nemendur geta skipulagt sig og haldið utan um námið sitt. Kenn- ararnir setja allskyns efni inn,“ út- skýrir Anna. Einnig hafa þau fikr- að sig áfram með breyttar kennslu- aðferðir. „Við höfum verið að prófa okkur áfram í speglaðri kennslu eða svokallaðri vendikennslu. Þá er kennslunni snúið við. Í stað þess að kennarinn standi við töfluna og kenni nemendum, þá er hann bú- inn að taka upp efnið fyrirfram og setja jafnvel inn annað efni, svo sem verkefni. Nemandinn hlustar svo á efnið heima og vinnur verk- efnin í tíma. Þá ná nemendur að nýta kennarann við úrvinnslu og verkefnavinnu,“ segir Anna. „Næst á dagskrá er að prófa Moodle, sem er námsumsjónarkerfi. Þar er yfirlit yfir allt nám nemandans og það styður mjög vel við þessa vendi- kennslu. Moodle hefur verið not- að af mörgum framhaldsskólum við góðan árangur,“ bætir Anna við. Læra að umgangast tækin Ljóst er að spjaldtölvurnar hafa nýst nemendum og kennurum vel sem kennslutæki. En freistast nem- endur ekki til að fara í tölvuleiki í tímum? „Nei, þetta lærist eins og annað. Þau hafa aðeins reynt að fara inn á Facebook og annað en það er auðvelt fyrir kennarann að halda utan um þetta. Þau læra að þetta eru kennslutæki og vita að þau geta leikið í frímínútum eða heima. Nemandi getur jafnvel ver- ið andlega fjarverandi án þess að hafa tæki í höndunum. Við opnum á svona tæki hér, notum til dæmis símana sem reiknivélar. Þau læra að umgangast tækin.“ Þær tölvur sem ekki eru nýtt- ar af 9. og 10. bekkja nemendum eru til notkunar hjá öðrum bekkj- um. Þær eru talsvert nýttar í stærð- fræðikennslu en einnig í tungu- mála- og bóklegri kennslu. Þá er forritun einnig kennd við skólann. „Við kennum einnig forritun sem heitir Scratch. Erum farin að kenna hana á mið- og unglingastigi. Það á eftir að vera svo áfram og það kæmi mér ekki á óvart ef sú kennsla myndi færast inn í aðra grunnskóla landsins,“ segir Anna Bergsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Grund- arfirði. Meðfylgjandi myndir tók Tóm- as Freyr Kristjánsson ljósmynd- ari Skessuhorns í Grundarfirði af nemendum 5. bekkjar grunnskól- ans við stærðfræðiæfingar með hjálp spjaldtölva. grþ Fremur þungt hljóð er í fram- haldsskólakennurum á landinu vegna stöðu kjaramála þeirra. Kjaradeilu þeirra við ríkið hef- ur verið vísað til sáttasemjara en viðræður hafa staðið yfir frá því í byrjun desember án árangurs. Mikið ber á milli í kröfum kenn- ara og boðs ríkisins um 2,6% hækkun launa í samræmi við samning ASÍ. Kennarar hafa farið fram á 17% hækkun launa. Víða í framhaldsskólum voru á mánu- daginn haldnir samstöðufund- ir, en búast má við að kjaradeilan harðni á næstunni. Félög fram- haldsskólakennara við skólana í Borgarnesi og á Akranesi sam- þykktu sl. mánudag ályktanir um kjaramál: Ályktun kennara MB Kennarar við Menntaskóla Borg- arfjarðar samþykktu á starfs- mannafundi eftirfarandi ályktun: „Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar í menntamálum segir að menntakerfið skuli eflt með hags- muni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Við bendum stjórnvöldum á eftirfarandi: Mis- munur á meðal dagvinnulaunum í framhaldsskólum og hjá saman- burðarhópum er um 17% og mis- munur á heildarlaunum nær 10%. Byrjunarlaun nýútskrifaðs fram- haldsskólakennara eru um 300.000 krónur á mánuði og meðal dag- vinnulaun röskar 390.000 krónur. Skýrsla allra aðila á vinnumark- aði frá október 2013 sýnir svart á hvítu að laun í framhaldsskól- um hafa hækkað minna en hjá öll- um öðrum á árabilinu milli 2006 og 2013. Grófur og margendur- tekinn niðurskurður á fjármunum til starfsemi framhaldsskóla gerir skólana óhæfa til þess að stuðla að eðlilegri launaþróun starfsmanna sinna og til þess að bæta launa- kjör kennara, náms- og starfsráð- gjafa og skólastjórnenda á vett- vangi stofnanasamninga. Fundur- inn brýnir samninganefndir KÍ og ríkisins til bættra vinnubragða við samningaborðið, sbr. samkomu- lag frá 15. febrúar 2013, til þess að félagsfólk KÍ í framhaldsskól- um þurfi nú ekki enn einu sinni að fara í harða kjarabaráttu.“ Ályktun samstöðufundar í FVA „Félagsmenn í FF og FS í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðu mála, nú þegar kjara- samningur FF og FS og ríkisins er úr gildi. Undanfarin ár hafa fram- haldsskólakennarar og stjórnend- ur í framhaldsskólum dregist gíf- urlega aftur úr samanburðarstétt- um í launum og nú er svo komið að munurinn á dagvinnulaunum er orðinn 17%. Enginn vilji er hjá stórnvöldum til að eyða þeim mun þrátt fyrir að aðilar séu sam- mála um að hann sé staðreynd líkt og tíundað er í skýrslu allra aðila á vinnumarkaði sem gefin var út síðastliðið haust. Félagsmenn krefjast þess að í samningaferlinu sé launaleiðrétting okkar algjört forgangsmál. Til viðbótar launasamdrættin- um hefur stöðugur niðurskurð- ur ríkt í skólum frá því löngu fyr- ir hrun. Hér í Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur niðurskurður á fjárframlögum til skólans haft mikil neikvæð áhrif. Frá árinu 2008 hefur stöðugildum við skól- ann fækkað um rúm 30%. Gæð- um skólastarfsins fer sífellt aftur; hópar orðnir allt of fjölmennir, námsframboð takmarkað og mik- ið álag á kennurum. Allt bitnar þetta því miður að lokum á nem- endum og námi þeirra.“ mm Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfði á Akranesi er í eigu Akranesbæjar og Hval- fjarðarsveitar. Biðja um að staða djákna verði ekki felld niður Þungt hljóð í framhaldsskóla- kennurum vegna kjaramála Atli Ágúst Hermannsson og Martin Máni Kárason. Spjaldtölvuvæðing í Grundarfirði Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir, Vilhjálmur Darri Pétursson og Kjartan Jón Kjartansson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.