Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Árið 2013 fluttust 1.598 fleiri til lands- ins en frá því. Í samantekt Hagstofunn- ar kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn frá hrunárinu 2008 að flutningsjöfn- uður er jákvæður. Á tímabilinu 2009- 2012 fluttust samtals 8.692 fleiri frá landinu en til þess. Á árinu 2013 flutt- ust 7.071 til landsins en 5.957 á árinu 2012. Íslenskir ríkisborgarar voru 877 fleiri en erlendir í hópi brottfluttra, eða 3.175 á móti 2.298. Íslenskir ríkis- borgarar voru aftur á móti færri með- al aðfluttra en erlendir, 3.139 á móti 3.932. Alls fluttust því 36 íslenskir rík- isborgarar úr landi umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.634 fleiri en brottfluttir. Noregur tekur við flestum Árið 2013 fluttust 2.247 íslenskir rík- isborgarar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar af 3.175. Flestir fluttust til Noregs, eða 996. Flestir aðfluttir ís- lenskir ríkisborgarar voru einnig frá þessum löndum eða 2.224 af 3.139, flestir þó frá Danmörku eða 1.006. Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 526 af 2.298. Þaðan komu líka 1.311 erlend- ir ríkisborgarar. Þetta flutningsmynst- ur hefur haldist óbreytt frá því 2009, nema hvað Noregur hefur orðið hlut- fallslega vinsælli meðal íslenskra ríkis- borgara og dregið hefur úr vægi Pól- lands sem helsta áfangastaðar erlendra ríkisborgara. Flutningum innanlands fjölgar Fjöldi innanlandsflutninga náði há- marki á árinu 2007 en þá voru tilkynnt- ir flutningar 58.186 einstaklinga. Eftir það fækkaði innanlandsflutningum jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki sínu árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innanlandsflutning- ar 49.398. Þeim fækkaði lítillega 2012 en þá voru þeir 48.893. Árið 2013 voru þeir 50.661 sem er fjölgun um 505 milli ára. Flestir þeirra voru innan sveitar- félags eða 31.606. Alls fluttust 10.355 einstaklingar milli sveitarfélaga inn- an sama landsvæðis árið 2013 en 8.700 fluttust frá einu landsvæði til annars. Þegar aðeins er litið á innanlands- flutninga lá straumurinn frá öllum landsvæðum nema Suðurlandi til höf- uðborgarsvæðisins á árinu 2013. Til höfuðborgarsvæðisins fluttust 409 um- fram brottflutta frá landsvæðunum átta. Flutningsjöfnuður landshluta vegna innanlandsflutninga var aftur á móti óhagstæðastur á Vestfjörðum, Norð- urlandi eystra og Austurlandi. 19 fleiri fluttu frá Vesturlandi í fyrra en fluttu í landshlutann. Loks má í tölum Hagstofunnar sjá að 19 fleiri fluttust frá Vesturlandi en í landshlutann árið 2013. Fleiri fluttust á Suðurland, Suðurnes og Austurland á árinu en þeir sem fluttu þangað. mm Jóhanna L. Jónsdóttir á Akranesi opnar málverkasýningu í Safnahús- inu í Borgarnesi laugardaginn 8. febrúar nk. Sýningin verður opin til 11. mars. Jóhanna er fædd á Akranesi 2. ágúst 1951. Hún lauk gagnfræða- prófi og síðan meistaranámi í hár- greiðslu. Eftir það starfaði hún við handmálun á flísar á árunum 1982- 2001 fyrir Byko, Húsasmiðjuna og fleiri, en hefur síðan aðallega mál- að með olíu á striga. Jóhanna er að mestu sjálfmenntuð en stundaði nám í Myndlistarskóla Mosfellsbæjar vet- urinn 2010. Hún hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í nokkr- um samsýningum. -fréttatilkynning Sjómenn og útgerðir hafa gefið loðnuleit upp á bátinn - í bili. Skip hafa leitað loðnu bæði norður- og austur af landinu en sáralítið fund- ist. Flotinn hélt til hafna í lok síð- ustu viku vegna storma á miðun- um. Ekki verður reynt að leita á ný fyrr en veður lægir. Tvö skip HB Granda komu til hafnar á Akranesi sl. föstudagsmorgun, Ingunn AK og Faxi RE. „Við fórum út á þriðjudag frá Vopnafirði. Leituðum út þaðan og héldum með kantinum út af Norð- urlandi, fórum vestanverðan Kol- beinseyjarhrygginn, krussuðum vesturúr, vestur fyrir Vestfirði og sigldum síðan suður á bóginn til Akraness. Faxi RE var með okk- ur og við leituðum á báðum skip- um eins vel og okkur var unnt. Við sáum alveg sáralítið. Eiginlega ekk- ert,“ sagði Róbert Axelsson skip- stjóri á Ingunni AK þegar skipið var nýlagst að bryggju á Akranesi á föstudagsmorgun. Róbert er alla jafna 1. stýrimaður um borð en var skipstjóri í þessari ferð. Hlýtur að vera einvers staðar Róbert segist þó ekki hafa neina trú á því að loðnan sé horfin sjó- mönnum og vertíðin þar með far- in í vaskinn. „Nei, nei. Það sást loðna strax eft- ir áramót og menn náðu mjög fínni stofnmælingu í fyrrahaust. Þetta er bara ekki að skila sér eins og er. Göngumynstrið á loðnunni er greinilega óhefðbundið núna. Ann- að spilar líka inn. Þetta er svo erfitt þegar enginn er að vakta loðnuna. Það eru svo fá skip sem eru að leita og rannsóknaskipin eru bara bund- in í höfnum. Það er enginn vilji til að halda utan um þetta. Loðn- an er þannig fiskur að menn verða að fylgjast með henni því hún getur verið á svo víðfeðmu hafsvæði.“ Loðnan er ólíkindatól Áhöfn Ingunnar tók sér helgarfrí á meðan menn biðu af sér veður. Hið sama var að segja um skipverja Faxa sem kom til Akraneshafnar um leið og Ingunn. „Það spáir svo leiðinlega þannig að við verðum líklega í höfn hér á Akranesi fram yfir helgi. Eftir það er ómögulegt að segja hvað ger- ist. Við vitum ekkert hvar loðnan mun birtast. Það gæti þess vegna verið að við færum suður fyrir land og reyndum að mæta loðnunni ef hún kemur austanfrá. Hún gæti líka komið upp hér fyrir vestan. Það gerðist 2001. Þá birtist hún allt í einu í Víkurálnum eftir tíu daga storm í febrúar. Þá hófust veið- ar ekki fyrr en viku af febrúarmán- uði. Þessir dyntir eru alveg þekktir. Það sem mér finnst bara vanta er að menn hangi yfir þessu og reyni að fylgja göngum og útbreiðslu loðn- unnar svo hún týnist ekki,“ sagði Róbert Axelsson. Erfið tíð í haust og vetur Tíðin og aflabrögð í haust og vetur hafa að mörgu leyti verið mótdræg sjómönnum á uppsjávarskipun- um. Haustveiðin á síld í Breiðafirði fór að verulegu leyti í handskolum þar sem miklu minna af síld sást en undanfarin ár. Enn er stór hluti ís- lenska sumargotssíldarstofnsins týndur. Róbert tekur þessu með ró og æðruleysi. „Er þetta ekki þann- ig í fiskveiðum almennt? Stund- um er þetta upp og stundum nið- ur. Mér finnst nú einmitt óvissan vera mesta spennan við þessa vinnu að vera sjómaður. Þetta væri ekkert spennandi ef það væri alltaf hægt að ganga að þessu vísu þó vissu- lega væri það þægilegt. Hitt er allt- af meira gaman. Maður væri ekk- ert í þessu ef þetta væri ekki bundið smá óvissu frá einum tíma til ann- ars. Þetta hefur alltaf sveiflast.“ mþh Góðar gjafir bárust Reykholts- kirkju á sunnudaginn þegar Kirkjumiðstöðin í Reykholti stóð fyrir messu á kyndilmessu. Prestar Reykholts-, Hvanneyrar- og Staf- holtsprestakalla þjónuðu fyrir alt- ari og þá söng stúlknakór Kársnes- skóla í Kópavogi nokkur lög und- ir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Annars vegar var kirkjunni afhent vegleg bókagjöf úr safni dr. Björns Magnússonar fyrrverandi prófasts á Borg á Mýrum og prófessors við Háskóla Íslands. Það voru börn dr. Björns sem gáfu en í henni má finna biblíur og aðrar guðfræðibæk- ur. Hins vegar gáfu fyrrum nem- endur Héraðsskólans í Reykholti, frá árunum 1958-1962, kirkjunni ljósabúnað til lýsingar á gluggum á kórþili og í stúkum kirkjunnar að utan. Ljósabúnaði num hafði verið komið fyrir í kirkjunni fyrir mess- una en það voru þeir Jón Emils- son rafvirkjameistari, sem er í hópi nemendanna sem gáfu, og Karl Emil Jónsson rafvirki sem önnuð- ust framkvæmdina. Ljósin fengu því að njóta sín við athöfnina og eru nú steindir gluggar Valgerðar Bergsdóttur í Reykholtskirkju vel upplýstir. Að athöfn lokinni var kirkju- gestum boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarsal kirkjunnar. hlh /Ljósm. bhs. Ördeyða á loðnumiðunum Róbert Axelsson á Ingunni AK. Ingunn AK nýlögst að bryggju í Akraneshöfn á föstudagsmorgun. Til hægri glittir í stefnið á Faxa RE. Skipin leituðu saman að loðnu undan Norðurlandi og vestur af Vestfjörðum í síðustu viku en skipverjar urðu einskis eða lítils varir. Opnar málverkasýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar Aðfluttir fleiri en brott- fluttir í fyrsta sinn frá 2008 Reykholtskirkju færðar gjafir Stúlknakór Kársneskirkju í Kópavogi. Fulltrúar nemenda í Héraðsskólanum í Reykholti frá árunum 1958-1962 afhenda hér formlega sr. Geir Waage ljósabúnaðinn. Jóhann Emil Björnsson afhendir hér Þorvaldi Jónssyni í Brekkukoti, formanni sóknarnefndar Reykholtssóknar, bókagjöfina fyrir sína hönd og systkinanna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.