Skessuhorn - 05.02.2014, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Fróðleiksfundur
um skattamál
BORGARNES: Fimmtu-
daginn 6. febrúar kl. 16:00
heldur KPMG í Borgarnesi
fróðleiksfund um skattamál.
Fundurinn verður haldinn að
Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi,
neðri hæð í húsnæði Símennt-
unarmiðstöðvar Vesturlands
og hefst hann kl. 16:00. Boð-
ið verður upp á kaffi og með-
læti frá kl. 15:45. Á dagskrá
fundarins eru helstu skatta-
lagabreytingar árið 2013, rætt
um hvað fer úrskeiðis í skött-
um, skattamál ferðaþjónustu;
skattaumhverfi, félagaform og
virðisaukaskattur. Þátttaka er
án endurgjalds og veitir nám-
skeiðið einingar hjá FLE.
–mm
Kastaði frá
sér dópinu
AKRANES: Um helgina lagði
lögreglan á Akranesi hald á
rúmlega 20 gr af amfetamíni
og smáræði af kannabisefnum
og kókaíni. Tildrög voru þau
að höfð voru afskipti af manni
sem grunaður var um að hafa
fíkniefni meðferðis. Þegar
lögreglumenn hugðust stöðva
manninn, sem var gangandi,
lagði hann á flótta á hlaup-
um en náðist eftir stutta eftir-
för og var handtekinn. Þegar
lögreglumenn voru að draga
manninn uppi á hlaupum sáu
þeir hann kasta frá sér litlum
pakka sem fannst á vettvangi.
Reyndist hann innihalda fíkni-
efni og einnig fundust fíkni-
efni í vösum mannsins. Í fram-
haldi var gerð húsleit á heim-
ili mannsins og fannst þar lítil-
ræði af kannabisefnum. Játaði
maðurinn vörslu efnanna og
var sleppt að lokinni skýrslu-
töku.
–þá
Margir vilja starf
félagsmálastjóra
HVALFJ.SV: Umsóknar-
frestur um stöðu félagsmála-
stjóra í Hvalfjarðarsveit rann
út sl. föstudag. Umsóknir
um stöðuna voru 26. Sveitar-
stjóri og fjármálastjóri munu
fara yfir umsóknirnar og skila
samantekt til sveitarstjórn-
ar á næsta fundi, segir í til-
kynningu á heimasíðu sveit-
arfélagins. Umsækjendur um
stöðu félagsmálastjóra eru
eftirfarandi: Þórey Þormar,
Ágúst Þorsteinsson, Einar Ingi
Magnússon, Ásgeir Pétursson,
Petrína Ásgeirsdóttir, Hauk-
ur Jóhannsson, Gísli Sveinn
Loftsson, Þura Björk Hreins-
dóttir, Tora Victoria, Rann-
veig Margrét Stefánsdótt-
ir, Óli Örn Atlason, Heim-
ir Laxdal Jóhannsson, Hildur
Jakobína Gísladóttir, Thelma
Vestmann, Dagný Hauksdótt-
ir, Íris Eik Ólafsdóttir, Guð-
rún Dadda Ásmundardóttir,
Hafsteinn Gunnar Hafsteins-
son, Guðrún Frímannsdótt-
ir , Einar Ingþór Einarsson,
Kristný Rós Gústafsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Auð-
ur Herdís Sigurðardóttir, Sig-
rún Ríkharðsdóttir, Ólöf Vig-
dís Guðnadóttir og Kristinn
Stefán Einarsson.
–þá
Íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi
DALIR: Á fundi sveitar-
stjórnar Dalabyggðar sl.
þriðjudag voru lögð fram
drög að samstarfssamn-
ingi milli Dalabyggðar og
Ungmennasambands Dala
og Norður-Breiðfirðinga,
UDN. Samkvæmt samningn-
um er m.a. gert ráð fyrir að
Dalabyggð ráði íþrótta- og
tómstundafulltrúa til starfa
í samráði við UDN. Samn-
ingurinn var samþykktur á
fundinum og lagði Jóhann-
es Haukur Hauksson oddviti
Dalabyggðar til að sveitar-
stjóra verði heimilað að und-
irrita hann. –þá
Vísitala neyslu-
verðs lækkaði
LANDIÐ: Vísitala neyslu-
verðs miðuð við verðlag í
janúar 2014 er 415,9 stig og
lækkaði um 0,72% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs
án húsnæðis er 391,5 stig og
lækkaði um 1,09% frá des-
ember. Víða eru vetrarútsöl-
ur og lækkaði verð á fötum
og skóm um 10,8% og verð
á húsgögnum og heimilis-
búnaði um 2,8%. Þá lækkuðu
flugfargjöld til útlanda um
14,6% milli mánaða og bens-
ín og olíur um 2,5%. Kostn-
aður vegna húsnæðis, hita og
rafmagns hækkaði hins veg-
ar um 0,6% í janúar. Síðast-
liðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um
3,1% og vísitalan án húsnæð-
is um 1,9%. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um 0,2% sem
jafngildir 0,7% verðbólgu á
ári. Það þýðir að 2,2% verð-
hjöðnun hefði orðið í mán-
uðinum ef húsnæðiskostn-
aður hefði ekki verið reikn-
aður með. Vísitala neyslu-
verðs samkvæmt útreikningi
í janúar 2014, sem er 415,9
stig, gildir til verðtryggingar
í mars 2014.
–mm
Friðrik Tryggvason hjá Almennu
umhverfisþjónustunni í Grund-
arfirði lagði í dag inn umsókn um
einkaleyfi fyrir búnað sem gæti vald-
ið straumhvörfum hér á landi jafn-
vel á næstu dögum eða vikum. Bún-
aður þessi getur bjargað golf- og
knattspyrnuvöllum undan altjóni af
völdum kals en víða um land ligg-
ur nú klakahella yfir túnum og völl-
um. Hingað til hafa umsjónarmenn
vallanna verið ráðþrota gagnvart
þessu vandamáli sem sífellt verður
stærra eftir því sem klakinn liggur
lengur yfir. Ef ekkert er að gert get-
ur fjárhagslegt tjón af kali á golf- og
knattspyrnuvöllum hæglega hlaup-
ið á tugum milljóna króna. Búnað-
ur sá sem Friðrik hefur nú fundið
upp og prófað kostar lítið í sam-
anburði við það, en þunga vinnu-
vél eða vörubíl þarf til að aka um
ísilagða vellina með þessum bún-
aði. Eftir verða göt í ísnum. Friðrik
hefur samið við Vélsmiðjuna Héð-
inn um smíði búnaðarins, sem er til
þess að gera einfaldur.
Knattspyrnuvöllurinn í Grundar-
firði er undirlagður þykkum ís síðan
í lok síðasta árs. Voru Grundfirð-
ingar því orðnir uggandi um kal-
skemmdir á vellinum ef ekki tæk-
ist að brjóta klakann. Höfðu með-
al annarra verkstjóri Áhaldahúss-
ins í Grundarfirði og hafnarvörð-
urinn, ásamt verkvitsmönnum hjá
Alm. umhverfisþjónustunni, legið
yfir þessu vandamáli síðustu vikur.
Friðrik Tryggvason þróaði í kjöl-
farið lausn sem við fyrstu tilraun
lofar afar góðu og ákvað hann því
að sækja um einkaleyfið. Búnaður-
inn felst í gaddahjólum sem hægt
er að setja á hjólagröfu eða þung-
an vörubíl á tvöföldum dekkjum
að aftan. Tækin þurfa helst að vera
að 20 tonnum að þyngd. Ökutæk-
inu er ekið yfir völlinn, gaddarnir
stingast ofan í klakann og gera lít-
il göt sem hleypa súrefni niður að
rotnandi grasinu. Ekki er annað að
sjá en aðferð þessi virki ágætlega
og getur fréttaritari Skessuhorns
sem tók meðfylgjandi myndir vitn-
að um það.
Umsjónarmenn golf- og knatt-
spyrnuvalla víða um land óttast
skemmdir af klaka. Friðrik segir að
bæði þeir og vélaútgerðarmenn sem
þess óska geti haft samband við sig
en áhersla verður lögð á það inn-
an tíðar, eða strax eftir helgi, að út-
vega búnað þennan þeim sem panta
hann.
mm
Fann upp búnað til að gata
klaka á íþrótta- og golfvöllum
Friðrik Tryggvason.
Búnaðurinn prófaður á Grundarfjarðarvelli með hjólaskóflu frá Alm. umhverfisþjónustunni. Ljósm. tfk.