Skessuhorn - 05.02.2014, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Hér áður fyrr var algengt að eldri
börn og unglingar gripu í ýmis verk
við hlið hinna fullorðnu, bæði til
sjávar og sveita. Þannig kynntist
unga kynslóðin heimi hinna full-
orðnu, fékk innsýn í atvinnulíf og
verðmætasköpun auk þjálfunar til
að nota huga og hönd til vinnu.
Þetta er hins vegar orðin afar fá-
gæt sjón. Ungur piltur á Akranesi
er undantekning frá reglunni í dag.
Hallgrímur Ísak Guðmundsson,
Halli, starfar sem beitningamaður
með skólanum. Hann er ellefu ára,
verður 12 ára gamall 1. maí í vor.
Nú í haust og í vetur hefur hann
stundað línubeitningu. Hann hjálp-
ar þannig pabba sínum Guðmundi
Elíassyni, sem gerir út línu- og grá-
sleppubátinn Flugölduna ST 54.
Beitir til að safna fyrir
eigin bát
Halli á stutt að sækja áhugann á sjó-
mennskunni. Hann hefur oft farið
í róðra með föður sínum. Útgerð
Flugöldunnar er rekin frá Akranesi
en bátnum er nú í vetur róið frá
Skagaströnd. Þangað er ekið með
beitta línubala þegar haldið skal í
róður. Notaðir balar koma til baka.
Línan í þeim er yfirfarin og öngl-
arnir beittir í skúrnum niður við
Skarfavör á Breiðinni á Akranesi.
Þar standa Halli og fleiri og sjá um
landvinnu útgerðarinnar.
„Ég ætla að safna mér fyrir bát,“
segir Hallgrímur þar sem hann
stendur einbeittur við að beita.
„Báturinn minn á að verða trilla
Hér skartar Daði Freyr, for-
maður nemendafélags MB, frumlegu
höfuðfati sem hann prjónaði sjálfur
á prjónamaraþoninu. Um er að ræða
hatt með gati á hvirfli en slíkur hattur
stuðlar að frjálsu flæði hugmynda!
Ljósm. Menntaskóli Borgarfjarðar.
Framhaldsskólahornið
Fjölbrautaskóli Vesturlands
úr leik í Gettu betur
Síðastliðinn föstudag áttust við
lið Fjölbrautaskóla Vesturlands
og Menntaskólans á Akureyri í
spurningakeppni framhaldsskól-
anna Gettu betur í beinni útsend-
ingu á RÚV. Lið FVA var skipað
þeim Magnúsi Gunnarssyni, Birki
Hrafni Vilhjálmssyni og Elmari
Gísla Gíslasyni. Leikar fóru svo að
Menntaskólinn á Akureyri sigraði
með 22 stigum gegn 19. Keppnin
var spennandi enda munaði litlu á
liðunum í lokin. Að loknum hraða-
spurningum munaði sex stigum,
MA í vil. Þá dró í milli um tíma en
og leikar jöfnuðust þegar síðasta
spurningin, þríþrautin, var borin
upp og þrjú stig í pottinum. Bæði
liðin svöruðu henni rangt og úrslit-
in voru því sem áður segir, lið MA
með 22 stig gegn 19 stigum FVA.
Prjónamaraþon í Mennta-
skóla Borgarfjarðar
Útskriftarhópur MB tók þátt í
prjónamaraþoni í vikunni sem leið.
Það fé sem safnaðist með áheit-
um rann í útskriftarsjóð nemenda.
„Við prjónuðum í 24 klukkustund-
ir og söfnuðum eitthvað í kring-
um 300 þúsund krónum. Það voru
Handavinnuhúsið, Nettó og fleiri
aðilar sem gáfu okkur garnið og til
stendur að gefa afurðirnar til Rauða
krossins. Það kom ýmislegt út úr
þessu; treflar, teppi, húfur, vettling-
ar og fleira,“ segir Daði Freyr Guð-
jónsson formaður nemendafélags
MB. Félagslífið hefur að vanda far-
ið vel af stað hjá nemendum skólans
svona í byrjun árs. „Í upphafi ann-
arinnar fórum við í frábæra þriggja
daga skíðaferð til Akureyrar. Svo
er frumsýning Grease framundan
núna 7. febrúar og fljótlega verð-
ur söngvakeppni og lazer-tag mót,“
segir Daði að endingu.
grþ
Einbeittur beitningamaður á Breiðinni
sem ég get notað til að veiða fisk
norður á Ströndum.“
Guðmundur faðir Hallgríms er
ættaður frá Djúpuvík á Strönd-
um. Hann flutti til Akraness ásamt
foreldrum sínum sjö ára gamall
árið 1972 og hefur búið þar síðan.
Tengslin við átthagana nyrðra eru
hins vegar sterk. Á sumrin dvelur
Halli oft norður á Ströndum þar
sem hann rær líka með frænda sín-
um og frænku á handfæraveiðar.
Stefnir á sjómennsku
„Ég ætla að verða sjómaður þeg-
ar ég verð stór,“ segir Halli þar
sem hann stendur einbeittur uppi á
fiskikassa í beitningaskúr föður síns
á Akranesi. Línan leikur í hönd-
um hans. Hann tekur upp öngul
með taumi og línu, heldur honum
í hægri hendi, teygir sig eftir bita af
makríl sem á að nota í beitu, kræk-
ir honum á öngulinn og leggur síð-
an öngul með beitu, taum og línu
snyrtilega á sinn stað ofan í balann
sem hann er að beita. Þrátt fyrir að
vera nýmættur til starfa þennan eft-
irmiðdag er hann þegar hálfnaður
með að beita fyrsta balann.
Halli segist beita hálfan til einn
bala í einu. Faðir hans bætir við að
sonurinn fái að sinna þessu eins og
hann sjálfan lysti. Stundum verður
freistingin til að vera með vinun-
um eftir skólann sterkari en löng-
unin til að beita og þá er bara lát-
ið eftir henni. Það er engin kvöð í
þessu. „Sjórinn á hug hans allann,“
segir faðir hans. „Þetta er miklu
skemmtilegra en skólinn,“ bætir
Halli við um leið og hann leggur
nýbeittan öngul á sinn stað í bjóð-
inu sem hann er að beita.
mþh
Hallgrímur Ísak Guðmundsson, ellefu ára og bráðum tólf, við beitningastörf. Halli ætlar að verða sjómaður og er að safna sér
fyrir trillu.
Halli ásamt föður sínum Guðmundi Elíassyni í beitningarskúrnum á Breiðinni á
Akranesi.
Við grásleppuveiðar um borð í Flugöldunni sumarið 2013. Halli
greiðir aflann úr netunum.
Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill. Halli og
Elías bróðir hans búa til önglaslóða fyrir handfæraveiðar
út frá Djúpuvík á Ströndum.
Flugaldan ST 54 er báturinn sem Guðmundur faðir Halla gerir út.
Halli á skaki um borð í Flugöldunni þar sem hann hefur dregið ýsu. Í bakgrunni er
Elías bróðir hans að vakta rúllurnar.