Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 19
19MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum
Meistaraflokkur karla 1. deild
Föstudaginn 7. febrúar kl. 19.15
ÍA – Þór
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Vizkukýrin 2014
Spurningakeppni Landbúnaðarháskóla Íslands
verður haldin í matsal skólans á Hvanneyri
fimmtudaginn 13. febrúar og hefst kl. 20:00.
Nemendur, kennarar í Borgarbyggð ásamt
óvæntu gestaliði munu etja keppni.
Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson.
Skemmtiatriði og sælgætissala í hléi.
Aðgangseyri 500 kr. en frítt fyrir 14 ára og yngri.
Félagsmiðstöðin í Grundar-
firði flutti nýverið í nýtt húsnæði.
Krakkarnir höfðu haft athvarf inn-
an grunnskólans fyrir félagsmið-
stöðina en vegna breytinga þar
þurfti að rýma húsnæðið. Fengu
þau lítið hús í eigu bæjarins til af-
nota en það er við hlið skólans.
Gera þurfti miklar endurbætur á
húsinu og var verkið unnið af dug-
miklum sjálfboðaliðum með Þor-
stein Friðfinnsson í broddi fylking-
ar. Verkið var unnið á ógnarhraða
og eftir það var starfsemi félags-
miðstöðvarinnar flutt inn. Af því
tilefni færði foreldrafélag Grunn-
skóla Grundarfjarðar krökkunum
að gjöf þrjá flatbökuofna. Gjöf-
in mun eflaust koma sér vel þegar
krakkarnir hittast og skemmta sér í
nýja húsnæðinu.
tfk
Á þessu ári heldur Bókasafn Akra-
ness upp á 150 ára afmæli sitt. Fjöl-
breytt afmælisdagskrá með ýmsum
menningarviðburðum er því fyrir-
huguð á árinu til að minnast þess-
ara tímamóta. Sá fyrsti var á laugar-
daginn þar sem athyglinni var beint
að handrita- og rímnaarfi þjóðar-
innar og þá ekki síst Vesturlands.
Rósa Þorsteinsdóttir lektor hjá
Árnastofnun flutti erindi á bóka-
safninu um Staðarhólsbók rímna
sem er þykkt skinnhandrit frá fyrri
hluta 16. aldar, færð í letur af Tóm-
asi Arasyni frá Stað í Súgandafirði.
Bókin er talin eitt merkasta rímna-
handrit Íslendinga og inniheld-
ur mikið safn af miðaldakveðskap
í rímnaformi. Hún dregur nafn sitt
af Staðarhóli í Dölum en þaðan var
hún gefin Árna Magnússyni pró-
fessor og handritasafnara í Kaup-
mannahöfn árið 1707. Sjálfur var
Árni fæddur og uppalinn í Dölum.
Fæðingarstaður hans var Kvenna-
brekka og hann ólst upp í Hvammi.
Á þessu ári er þess einmitt minnst
að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna
Magnússonar.
Að loknum fyrirlestri Rósu Þor-
steinsdóttur steig Steinþór Ander-
sen kvæðamaður á stokk þar sem
Félagsmiðstöðin í Grundarfirði
flutt og færð gjöf
Á myndinni frá vinstri eru þær Jófríður Friðgeirsdóttir og Helga María Jóhanns-
dóttir frá foreldrafélaginu. Þar næst er Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir umsjón-
amaður félagsmiðstöðvarinnar og Eyþór Magnússon grunnskólanemi.
Steinþór Andersen kveður upp úr
Staðarhólsbók rímna á Bókasafni
Akraness.
Rímur kveðnar í Bókasafni Akraness
hann kynnti og kvað við raust rím-
ur úr bókinni. Þar kom glöggt fram
að rímur miðalda voru dægurbók-
menntir þeirra tíma. Þær standa nú-
tíma reyfurum hvergi að baki í frá-
sögnum og lýsingum þar sem spil-
að er á allan skalann frá leiftrandi
kímni til nánast ólýsanlegs hryll-
ings. mþh
Nafn:Sölvi G. Gylfason
Starfsheiti/fyrirtæki: Aðstoðar-
maður framkvæmdastjóra FM Gro-
up Iceland. Erum með skrifstofu á
Smiðjuvöllum 17 á Akranesi.
Fjölskylduhagir/búseta: Á föstu
og bý í Borgarnesi.
Áhugamál: Knattspyrna, félags-
fræði, ferðalög, hitta vini mína og
njóta þess að vera til.
Vinnudagurinn: Mánudagurinn
3. febrúar 2014.
Mætt til vinnu og fyrstu verk?
Ég mætti í vinnuna kl. 12:30 í dag.
Venjulega mæti ég kl. 8:30 en þar
sem ég þurfti að mæta í tíma í Há-
skóla Íslands mætti ég í hádeg-
inu. Í HÍ stunda ég viðbótardip-
lómunám í afbrotafræði. Byrjaði
vinnudaginn á því að skrifa þrjár
fréttir inn á heimasíðu FM Group
Iceland, www.fmiceland.is.
Klukkan 15? Eftir að hafa fengið
mér einn góðan kaffibolla hélt ég
áfram að vinna við að taka saman
fréttir og tilkynningar. Þær verða
síðar birtar á heimasíðu okkar og
síðu okkar á Facebook.
Hvenær hætt og síðustu verk?
Ég hætti klukkan 16:00 og það
síðasta sem ég gerði var að svara
fyrirspurnum viðskiptavina í
tölvupósti.
Fastir liðir alla daga? Skrifa og
þýða fréttir og tilkynningar til
viðskiptavina. Stundum tek ég
saman vörur fyrir viðskiptavini.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Meiri reynsla. Það
safnast alltaf dýrmæt starfsreynsla
í sarpinn eftir hvern vinnudag.
Var dagurinn hefðbundinn?
Nei, ekki alveg. Það er vegna þess
að á mánudagsmorgnum er ég í
skólanum.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Í síðasta mánuði, þ.e. í
janúar 2014.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Þar sem við erum að selja kaffi tel
ég nokkrar líkur á því.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já, sérstaklega þegar ég er
vel sofinn.
Eitthvað að lokum? Minni fólk
á að kíkja á heimasíðuna okkar og
síðast en ekki síst: Áfram Liver-
pool!
Dag ur í lífi...
Aðstoðarmanns framkvæmdastjóra
SKATTAMÁL
Fróðleiksfundur
í Borgarnesi
Fim. 6. feb. | kl. 16:00 | Bjarnarbraut 8
Á hverju ári eru fjöldi skattalagabreytinga
sem snerta fólk og fyrirtæki. Á þessum
fróðleiksfundi verða helstu breytingarnar
kynntar auk þess sem handbók KPMG
um skattamál verður dreift.
Skráning er án endurgjalds
og fer fram á kpmg.is
Skráning og frekari upplýsingar um
fróðleiksfundinn er að nna á kpmg.is
Dagskrá fróðleiksfundarins
Helstu skattalagabreytingar árið 2013
Hvað fer úrskeiðis í sköttum
Skattamál ferðaþjónustunnar
Reykjavík
Borgartúni 27
Akureyri
Glerárgötu 24
Blönduós
Húnabraut 4
Borgarnes
Bjarnarbraut 8
Egilsstaðir
Fagradalsbraut 11
Höfn í Hornarði
Krosseyjarvegi 17
www.kpmg.is
Reyðarfjörður
Austurvegi 20
Reykjanesbær
Krossmóa 4
Sauðárkrókur
Borgarmýri 1
Selfoss
Austurvegi 4
Skagaströnd
Oddagötu 22
Vestmannaeyjar
Kirkjuvegi 23
Sími 545 6000
SKATTA- OG LÖGFRÆÐISVIÐ
Skattabæklingur
2014
Upplýsingar um skattamál
einstaklinga og rekstraraðila
2013 / 2014
kpmg.is
Í bæklingi þessum koma fram almennar upplýsingar og meginreglur. Í honum er ekki lýst aðstæðum tiltekinna fyrirtækja eða einstaklinga. Enginn ætti að grípa til aðgerða á grundvelli þessara upplýsinga nema tengja þær aðstæðum sínum eða leita faglegrar aðstoðar um það tilvik sem um ræðir.
© 2014 KPMG ehf. á Íslandi er aðili að alþjóðlegu neti KPMG, samtökum sjálfstæðra fyrirtækja sem aðild eiga að KPMG International Cooperative (“KPMG International”), svissnesku samvinnufélagi. Nafn og kennimark KPMG eru vöru merki KPMG International Cooperative.
Skattabæklingur 2014