Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Búkkar í olíubryggjuna komnir úr skipi og upp á bíl á „stóru bryggjunni“ á Akranesi. Séð inn eftir Miðsandi í átt að Þyrli. Pramminn með gröfunni sem heldur uppi hamrinum er kominn við
enda bryggjufótarins.
Fyrsti stálbitinn í undirstöður bryggjunnar rekinn niður með lofthamrinum sem hangir í gálga
gröfunnar. Ekki var hægt að vinna þetta verk nema sjór væri sléttur en þá var líka lamið á vöktum allan
sólarhringinn svo heyrðist víða um fjörðinn.
Pramminn með búnaði. Úti á firðinum liggur síðutogarinn Akurey AK. Haustið þetta ár 1966 var Akurey
seld til Noregs. Hún mun enn vera til en hefur verið breytt í seglskip. Einnig sést einn af hvalbátum Hvals
hf.
Þessi mynd mun tekin í júlí 1966. Nú er byrjað að steypa þverbita ofan á stálstaura bryggjunar. Ofan á þá voru síðan lagðar
forsteyptar flatar einingar sem mynduðu bryggjugólfið. Eitt af skipum Eimskipafélagsins er nú komið í Hvalfjörð með tré-
staura sem voru notaðir í bryggjuna.
Unnið við að rafsjóða saman bitana í undirstöður
bryggjunnar.
Jónas Guðmundsson lýsir þessari mynd: „Flutningaskipið frá Eimskip kom með
tréstaurana og lagðist þarna. Síðan hentu þeir staurunum bara í sjóinn. Þeir áttu
að fljóta við skipshlið. Menn skyldu síðan koma á smábátum úr landi, slá utan um
þá og draga í land. Svo átti að hí fa þá upp á bíla, koma þeim í stæður uppi á landi
og svo nota þá eftir því sem verkinu leið fram. Ég man hins vegar að það gerði
slæmt veður. Eitthvað af staurunum fóru á rek út fjörðinn og þeir týndust. Þeir
voru svo að finnast reknir hingað og þangað í fjörum bænda og það var bras að
safna þeim saman.“ Hér eru staurarnir hífðir upp á land.
Mars 1967. Eins og Jónas Guðmundsson sagði þá varð greinilega hlé á verkinu haustið 1966 vegna þess að efnið í bryggjuna
kláraðist. Svona stóð því framkvæmdin veturinn 1966-1967. Þrír af bátum Hvals hf. bíða þess við legufæri að hvalvertíð
hefjist.
Olíubryggja NATO í Hvalfirði nokkurn veginn frágengin,
sennilega haustið 1967. Sjá má digrar olíuleiðslur sem liggja út
á bryggjuna.
Jónas Guðmundsson frá Bjartseyjarsandi hefur verið viðloðandi vinnuvélarnar
allar götur síðan hann vann við smíði bryggjunnar fyrir hartnær hálfri öld síðan.