Skessuhorn - 09.04.2014, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Fyrir þá sem ætla að fá leigða bústaði
hér innanlands í sumarfríinu er ekki
seinna vænna en að kanna mögu-
leikana hvað það varðar fljótlega.
Væntanlega er orðið þröngt á þeim
markaði hjá stéttarfélögum og einka-
aðilum sem leigja út bústaði.
Vestlæg átt virðist að mestu í kortun-
um næstu daga. Á fimmtudag er spáð
fremur hægri norðvestan- og vestan-
átt, dálítil él verða fyrir norðan en skýj-
að með köflum syðra. Á föstudag snýst
hann um tíma í sunnan- og suðaust-
an strekking með rigningu eða slyddu,
einkum sunnan- og vestanlands. Suð-
vestan 10-15 m/sek og skúrir eða
slydduél þar um kvöldið. Þessa daga
verði hiti eitt til átta stig. Á laugardag
er útlit fyrir norðvestan- og vestanátt
með éljum, einkum Norðanlands. Kóln-
andi veður. Á sunnudag og mánudag
er spáð vestlægri eða breytilegri átt.
Víða skúrir eða él, en úrkomulítið aust-
an til. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hljópstu 1. apríl?“ Fæstir segj-
ast hafa gert það, eða vilja kannski ekki
viðurkenna það. Nei sögðu 91,63% og
já 8,37%.
Í þessari viku er spurt:
Hvað hyggstu gera um páskana?
Stelpurnar í Snæfelli eru Vestlendingar
vikunnar, ekki spurning. Til hamingju
nýkrýndir Íslandsmeistarar!
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Leiðrétting
Í síðasta tölublaði Skessu-
horns birtist viðtal við
nokkra nemendur í fram-
haldsskólum á Vesturlandi
vegna verkfalls framhalds-
skólakennara. Ranglega var
farið með nafn eins nem-
andans. Í greininni er sagt er
að hann heiti Almar Knörr
Kjartansson en hið rétta
er Almar Knörr Hjaltason.
Þetta leiðréttist hér með og
beðist er velvirðingar á mis-
tökunum. –grþ
Taldi það
aprílgabb
LBD: Að kvöldi þriðjudags-
ins 1. apríl féll fjórhjól af
flutningabifreið á Vestur-
landsvegi rétt norðan Borg-
arness. Var hjólið aftast á
palli flutningabifreiðarinnar
og ökumaður hennar veitti
því ekki eftirtekt er fjórhjólið
féll af bílnum. Árvakur veg-
farandi sem mætti flutninga-
bifreiðinni og sá hvar fjór-
hjólið dróst á eftir með til-
heyrandi neistaflugi og lát-
um, sneri bifreið sinni við
og náði að stöðva flutninga-
bifreiðina. Aðilinn sem átti
að taka við hjólinu á leiðar-
enda taldi þetta vera apríl-
gabb og það væri verið að
plata sig og neitaði í fyrstu
að trúa því að fjórhjólið væri
ekki að berast honum norð-
ur á Akureyri. Taldi mað-
urinn að vinir hans væru að
gera grín í honum og fannst
„hrekkurinn“ nokkuð góður.
Varð lögreglumaðurinn sem
var á vakt að hringja tvisvar í
manninn til að fullvissa hann
um að ekki væri um gabb að
ræða. Fjórhjólið er trúlega
ónýtt eftir dráttinn.
–þá
Ýmis mál
tengd neyslu
AKRANES: Í vikunni var
lögreglunni á Akranesi til-
kynnt um að bifreið hefði
verið stolið. Nokkru síðar
fannst bifreiðin við Garða-
lund. Kom í ljós að úr henni
hafði verið stolið einhverj-
um munum sem fundust svo
síðar sama dag annarsstað-
ar í bænum. Málið telst því
upplýst. Þá stöðvaði lögregl-
an tvo ökumenn vegna gruns
um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Þvagprufa ann-
ars sýndi að hann var und-
ir áhrifum amfetamíns og
kannabisefna auk þess sem
á honum fannst hnúajárn.
Voru þau haldlögð og mað-
urinn handtekinn. Tekin
var úr honum blóðprufa og
hann svo látinn laus að lok-
inni skýrslutöku. Hinn öku-
maðurinn sem stöðvaður var
af sama tilefni reyndist undir
áhrifum kannabisefna. Loks
var einn ökumaður stöðvað-
ur á miðjum föstudegi vegna
gruns um ölvun við akstur.
Blés hann í öndunarpróf sem
sýndi töluverða ölvun. Var
hann handtekinn og færð-
ur á lögreglustöð til blóð-
töku, en látinn laus að lok-
inni skýrslutöku.
–þá
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Landssambandi smábátasjómanna
barst á mánudaginn tilkynning frá
umhverfis- og auðlindaráðuneyti
þess efnis að ákveðið hefði verið að
dagar á grásleppuveiðum á nýbyrj-
aðri vertíð verði 32 eða sami daga-
fjöldi og var á vertíðinni í fyrra.
Reglugerð þess efnis var síðan gefin
út um kvöldið. Í fyrra eins og núna
var bráðabirgðaákvörðun um daga-
fjölda 20 dagar. Halldór Ármannsson
formaður Landssambands smábáta-
eigenda var ekki ánægður með þessa
ákvörðun þegar Skessuhorn átti tal
af honum á mánudaginn. Hann sagði
sýnt að fjölgun veiðidaga frá því sem
áður hafði verið gefið út, yrði ekki
til að hækka verðið sem fengist fyrir
hrognin. Í fyrra var verðið fyrir kíló-
ið 200 krónur og það lægsta sem sést
hefur. Núna voru hrognakaupendur
búnir að boða að það yrði um 150
krónur miðað við að dregið yrði úr
veiðunum niður í 20 daga, þar sem
offramboð væri nú á markaðnum.
Halldór sagði að veiðarnar hefðu
farið fremur illa af stað á svæðinu
sunnan Garðskaga sem og norður
og austan með landinu. Á norður-
svæðinu hefði ekkert verið að rætast
úr, en þessum svæðum mátti byrja að
leggja 20. mars. Búið var að leggja
net frá þremur bátum sem gera út
frá Akranesi, þegar haft var samband
við Einar Guðmundsson í vigtar-
skúrnum á mánudaginn. Á Faxaflóa-
svæðinu mátti byrja að leggja 1. apríl.
Einar segir að ágætlega hafi verið að
veiðast í netin. Bátarnir væru að fá
um og yfir 1500 kíló af grásleppu úr
einni lögn, en þeir sem fyrstir lögðu
voru búnir að draga netin þrisvar á
sjö dögum.
þá
Síðastliðinn fimmtudag var árs-
reikningur Snæfellsbæjar fyrir árið
2013 lagður fram í bæjarstjórn.
„Rekstur sveitarfélagsins
var góður á árinu,“ segir í
tilkynningu. Var rekstrar-
niðurstaðan nokkuð betri
en áætlun gerði ráð fyrir,
eða jákvæð um 165 millj-
ónir króna af samstæðunni.
Í fjárhagsáætlun hafði verið
gert ráð fyrir jákvæðri nið-
urstöðu upp á 61,4 milljón
króna. Af A-hluta var hún
jákvæð um 107,7 milljónir.
Skuldahlutfall Snæfellsbæj-
ar er 87,62% en samkvæmt
sveitarstjórnarlögum má
það ekki vera hærra en
150%. Eigið fé sveitar-
félagsins í árslok nam 2.390
millljónum króna samkvæmt efna-
hagsreikningi og er eiginfjárhlutfall
nú 57,44% en var 57,50 árið áður.
Heildar skuldir og skuldbindingar
sem hlutfall af reglulegum tekjum
standa því nánast í stað.
Rekstrartekjur sveitarfélags-
ins á árinu námu 1.847 milljón-
um króna, samkvæmt samantekn-
um rekstrarreikningi fyrir A- og B-
hluta, en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum upp á 1.735
millj. króna. Rekstrartekjur A-
hluta námu um 1.460 millj. króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyr-
ir rekstrartekjum um 1.387 millj.
króna. Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins námu 850,6 millj-
ónum króna en starfsmannafjöldi
sveitarfélagsins var 147 stöðugildi
í árslok. Veltufé frá rekstri
var 184 millj. króna og
veltufjárhlutfall er 1,38.
Handbært fé frá rekstri var
199 millj. króna.
Heildareignir bæjar-
sjóðs námu í árslok 3.333
millj. króna og heildar-
eignir sveitarfélagsins í
samanteknum ársreikningi
4.203 millj. króna. Heild-
arskuldir bæjarsjóðs námu
1.419 millj. króna og í
samanteknum ársreikningi
1.813 millj. króna. Hækk-
uðu skuldir milli ára um 97
milljónir kr. Snæfellsbær
fjárfesti á árinu fyrir 261,3
milljón í varanlegum rekstrarfjár-
munum og tók ný lán upp á 171,3
millj. króna. Greidd voru niður lán
að fjárhæð 165,3 milljónir. Hægt
er að nálgast ásreikninginn í heild
sinni á heimasíðu Snæfellsbæjar.
mm
Dögunum fjölgað til grásleppuveiðanna
Að undanförnu hafa miklar framkvæmdir staðið yfir við
sundlaugina í Ólafsvík. Áætlun gerði ráð fyrir að verkið kosti
160 milljónir króna. Ljósm. af.
Rekstrarafgangur Snæfellsbæjar
meiri en áætlað var
Brúardekkið var steypt skömmu fyrir miðjan marsmánuð.
Framkvæmdum að ljúka við smíði nýrrar
brúar yfir Reykjadalsá
Þessa dagana er framkvæmdum að
ljúka við smíði nýrrar brúar yfir
Reykjadalsá, rétt við Fellsenda í
Miðdölum. Nýja brúin er 32 metra
löng með tíu metra breiðu brúar-
dekki, þar sem akbraut er níu metr-
ar. Hún mun á komandi sumri leysa
af hólmi einbreiða brú á Vestfjarða-
vegi en vegtenging að nýju brúnni
er nú á skrá hjá Vegagerðinni yfir
fyrirhugð útboð. Smíði nýju brú-
arinnar yfir Reykjadalsá hófst fyr-
ir um ári þegar reknir voru nið-
ur staurar undir sökkla auk þess
sem steyptur var nyrðri sökkullinn.
Aðal törnin við brúarsmíðina hófst
síðan snemma í nóvember. Sigurð-
ur Hallur Sigurðsson brúarsmiður,
sem hefur unnið með sinn flokk við
brúarsmíðina í vetur, segir að veður
hafi á köflum verið ákaflega óhag-
stæð, svo sem vegna áhrifa sterkra
stormsveipa úr fjallaskörðunum
þarna í grenndinni og veðurhæð
og úrkoma oft verið mikil. Til að
mynda komu brúarsmiðir að fölln-
um steypumótum að afloknu jóla-
fríi. Tafir urðu því nokkrar við brú-
arsmíðina og lýkur henni um það
bil mánuði seinna en gert var ráð
fyrir ef skilyrði hafðu verið hagstæð
í vetur. Dekk brúarinnar var steypt
skömmu fyrir miðjan marsmánuð
og lokafrágangur stendur yfir þessa
dagana. Brúarvinnuflokksins bíður
nú áframhaldandi verkefni við end-
urbætur á Borgarfjarðarbrúnni. Þar
á eftir að endurnýja og styrkja efsta
steypulag tæplega helmings brúar-
dekksins. þá
Hluti brúarvinnuflokksins sem vinnur að frágangi við nýju brúna yfir Reykjadalsá.