Skessuhorn - 09.04.2014, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudög-
um. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáaug-
lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Fjárfest í markaðssókn
Leiðari
Nýverið fór ég á netið og skoðaði fasteignavefina og lagðist í nokkuð ítar-
lega skoðun á framboði húsnæðis á Vesturlandi. Eftir því sem lengra leið
á þessa skoðun varð ég sannfærðari um eitt; sveitarfélög á Vesturlandi og
landshlutinn í heild þarf að koma sér betur á framfæri en gert hefur verið.
Það þarf að hefja markaðssókn. Hér eru tugir og jafnvel hundruðir íbúða
og einbýlishúsa á sölu í hverju sveitarfélagi, hús eru í niðurníðslu, oft í eigu
Íbúðalánasjóðs, og markaðsverð er langt undir byggingarkostnaði. Ég veit
vel að þetta er ekki uppbyggjandi tal, en staðreynd engu að síður. Fólks-
fækkun mældist á síðasta ári í öllum stærri sveitarfélögunum á Snæfellsnesi
en lítilsháttar fjölgaði í Borgarbyggð og á Akranesi. Sveitarstjórnarfólk á
nokkrum stöðum talar jafnvel um að fækkun sé orðin það mikil að erfitt
sé að halda uppi lögbundnu þjónustustigi. Íbúum fækkar og því hafa þessi
sveitarfélög safnað skuldum.
Íbúafjöldi á Vesturlandi öllu er sláandi líkur og hann var fyrir fimmtán
árum. Í árslok 1998 voru íbúar landshlutans um 14 þúsund, en nú eru þeir
15.441. Þetta er innan við eitt prósent fjölgun að meðaltali á ári. Það sem í
hnotskurn hefur gerst á þessum tíma er að fækkað hefur í dreifbýli og sjáv-
arþorpunum, en stærri þéttbýlisstaðir hafa tekið við fjölguninni. Mest er þó
fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu þar sem sífellt fjölgar fólki jafnvel þótt
ekki sé lengur að finna húsnæði á viðráðanlegu verði. Miðað við t.d. sam-
göngur og nálægð Vesturlands við stærsta þéttbýli landsins finnst mér um-
hugsunarvert af hverju íbúum hefur ekki fjölgað meira á þessu fimmtán ára
tímabili en raun ber vitni. Hér erum við víða með fjölbreytt framboð at-
vinnu, samgöngur eru góðar, fínir skólar, veðursæld með besta móti, nátt-
úrufegurð meiri en gerist og gengur og áfram mætti telja. Einhverra hluta
vegna hefur Vesturlandi þó ekki tekist nógu vel upp við að nýta tækifærin,
ná eyrum fólks og þar með fjárfesta.
Ég er sannfærður um að það er eitt atriði sem skiptir meira máli en núver-
andi sveitarstjórnarfólk vill viðurkenna. Það hefur skort á markaðssetningu
landshlutans. Í fljótu bragði sýnist mér að nú séu einungis starfandi tveir
markaðsfulltrúar í þessum tíu sveitarfélögum á Vesturlandi, þ.e. í Grund-
arfirði og Stykkishólmi. Slíka starfsmenn hefur ekki verið að finna í stærstu
sveitarfélögunum; Akranesi, Borgarbyggð og Snæfellsbæ. Mér finnst þetta
undarleg forgangsröðun. Á Akranesi eru t.d. tugir íbúða til sölu og nýjar
húslausar götur með lögnum, bundnu slitlagi og ljósastaurum. Í Borgar-
nesi og Snæfellsbæ er að sama skapi mikill fjöldi íbúða og húsa til sölu sem
eiga það flest sammerkt að markaðsvirðið er langt undir byggingarkostn-
aði. Þegar þannig háttar til er markaðurinn fullur af kauptækifærum.
Til að selja vöru eða þjónustu þarf eftir fremsta megni að tryggja að
kaupendur viti af að varan sé til. Einfalt lögmál og flokkast undir mark-
aðsfræði. Á sama tíma og hundruðir fasteigna, bæði íbúðar- og iðnaðar-
húsnæði, eru til á þessum stöðum er lítið sem ekkert gert til að markaðs-
setja þessi sveitarfélög og allar þessar fasteignir. Þessi sömu sveitarfélög
forgangsraða frekar með þeim hætti að ráða fólk til að sinna hundaeftir-
liti, mannréttinda- eða umhverfismálum eða söguritun, svo einhver störf
af handahófi séu nefnd. Þetta segi ég hiklaust að sé röng forgangsröðun,
með fullri virðingu fyrir öllum þessum störfum. Ef áfram fjölgar hins veg-
ar óseldu og/eða ónotuðu íbúðarhúsnæði hafa þessi sveitarfélög á endanum
ekkert að gera við hundaeftirlit, starfsfólki við mannréttindamál eða um-
hverfisfræðinga. Einna helst að finna þyrfti einhvern til að skrifa lokakafl-
ann í sögurituninni! Því skora ég á verðandi sveitarstjórnarfólk á Vestur-
landi, hvar í flokki sem það stendur, að setja markaðsstörf í forgang á næsta
kjörtímabili. Við þurfum fleiri íbúa og fjölbreytta atvinnu. Markaðsstörf
eru ekki fórnarkostnaður, þau eru fjárfesting.
Magnús Magnússon.
Það var nóg að gera síðastlið-
inn laugardagsmorgun hjá Jóni
Þór Lúðvíkssyni bakarameistara í
Brauðgerð Ólafsvíkur. Þá var hann
m.a. að baka hin landsfrægu vínar-
brauð. Eins og fram kom í fréttum
lét Guðjón Valur Sigursson hand-
boltakappi þess getið að hann hefði
aldrei fengið eins góð vínarbrauð
og í Ólafsvík þegar hann spilaði þar
landsleik á móti Pólverjum fyrir
ellefu árum. Jón Þór sjá til þess að
Guðjón Valur og félagar færu ekki
heim með tóman maga eftir lands-
leikinn sem spilaður var þar síðar
um daginn.
af
Samskipti Íslendinga og Færeyinga
á knattspyrnusviðinu hafa verið
mikil um tíðina, ekki síst hafa Ak-
urnesingar átt hlut að máli í þeim
samskiptum. Gunnar Sigurðsson
var sem kunnugt er um langt skeið
í knattspyrnuforustunni á Skag-
anum. Þegar Gunnar var staddur
í Færeyjum um helgina var hon-
um veitt gullmerki færeyska knatt-
spyrnusambandsins. Með Gunnari
í för til Færeyja voru Gísli Gísla-
son, sem einnig var lengi formað-
ur knattspyrnuráðs Akraness. Gísli
sótti í leiðinni aðalfund færeysk-
íslenska verslunarráðsins. Einnig
voru í vísitasíunni til Færeyja þeir
Sveinn Kristinsson og Guðmund-
ur Páll Jónsson. Meðal annars var
farið í heimsókn til Fuglafjarðar
og þar skoðaðar framkvæmdir við
byggingu uppsjávarvinnslu þar sem
Skaginn smíðar búnað. Hópnum
var einnig boðið í móttöku borgar-
stjórans í Þórshöfn.
þá
Gríðarlegt fuglalíf hefur verið við
Borgarfjarðarbrú og á miðjum
Borgarfirði síðan á laugardaginn.
Þúsundir sjófugla eru nú í firðin-
um. Sterkar vísbendingar eru um
að loðna sé gengin inn á fjörðinn en
aðstæður þar eru mjög svipaðar og í
marslok 2010 og svipað magn fugls
sem sækir í veisluna. Í gærmorgun
mátti finna sterka loðnulykt í Borg-
arnesi sem bendir til þess að loðnan
sé byrjuð að drepast. Að sögn Sig-
urðar Márs Einarssonar fiskifræð-
ings í Borgarnesi eru allar líkur á
að um loðnu sé að ræða. Hrygning
loðnu hefst um miðjan febrúar en
er að mestu lokið um mánaðamótin
mars og apríl. Helstu hrygningar-
svæði loðnu við Ísland eru úti fyrir
Suður- og Vesturlandi. Að hrygn-
ingu lokinni drepst nær öll loðna.
Sigurður segir að loðnan sé mik-
il búbót fyrir þær mörgu tegund-
ir fugla sem gæða sér á henni. Líf-
ríkið í Borgarfirði mun því hagnast
nokkuð á þessum búhnykk, en ekki
skaðast.
Ekki eru mörg dæmi um það
í seinni tíð að loðna gangi inn í
Borgarfjörð með þessum hætti
þó það hafi gerst 2010. Heimildir
herma þó að um og eftir 1950 hafi
verið algengt að finna dauða loðnu
í fjörum við Borgarnes.
hlh
Spölur stefnir nú að kaupum og
uppsetningu á slám sem settar
verða upp við ytri akreinarnar við
gjaldskýli Hvalfjarðarganganna.
Slár hafa verið við innri akreinarn-
ar frá upphafi. Hugmynd um slár á
ytri akreinarnar kom upp árið 2008
en þá var hætt við kaup á þeim sök-
um hás kostnaðar. Fyrir nokkrum
mánuðum var verkefnið tekið aftur
til skoðunar og komist niður á mun
ódýrari lausn. Að sögn Gylfa Þórð-
arsonar framkvæmdastjóra Spalar
eru einkum tvær ástæður fyrir því
að komið verður upp slám á ytri ak-
reinunum. Annars vegar aka sumir
þeirra ökumanna sem hafa veglykla
í bílum sínum alltof hratt framhjá
gjaldskýlinu með tilheyrandi slysa-
hættu. Dæmi eru um að menn aki
á 60-70 km hraða á klst. og jafn-
vel hraðar. Í öðru lagi segir Gylfi að
brögð hafi verið að því alla tíð að
menn hafi ekið á ytri akreinunum
án veglykils eða með veglykil sem
hefur verið lokað vegna vanskila.
Hefur það skapað talsverða vinnu
og kostnað við innheimtu, oft án
árangurs.
„Slárnar munu opnast eðlilega
og tímanlega hjá þeim sem eru með
virka veglykla eins og við sjáum ger-
ast um alla Evrópu þar sem slár eru
við gjaldstöðvar. Slárnar hjá okkur
verða uppi þegar umferðin er mest
á sumrin og útirukkun er í gangi.
Því verða því engar tafir á umferð
vegna slánna,“ segir Gylfi.
mm
Gunnari veitt gullmerki færeyska
knattspyrnusambandsins
Fulltrúi færeyska knattspyrnusam-
bandsins nælir gullmerkinu í barm
Gunnars.
Slár verða settar upp við ytri
akreinar gjaldskýlisins
Jón Þór með vínarbrauðin
rétt áður en hann fór með
þau í íþróttahúsið.
Bakaði fyrir
landsliðsstrákana
Loðna gengin inn á Borgarfjörð
Fjöldi fugla hefur verið slíkur í Borgarfirði að sandrif fjarðarins hafa litast hvít af
fugli.