Skessuhorn - 09.04.2014, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Útboðsskilmál-
um breytt
REYKHOLT: Byggðarráð
Borgarbyggðar samþykkti á
fundi sínum sl. fimmtudag að
heimila breytingu á auglýstu
útboði vegna framkvæmda á
bílaplani við Reykholtskirkju.
Að sögn Páls S. Brynjarsson-
ar sveitarstjóra er tilefnið ósk-
ir heimamanna í Reykholti um
að bílaplanið verði malbikað,
en frá þeim var greint í síðasta
Skessuhorni. Í útboðslýsingu
fyrir verkið var gert ráð fyrir
að lögð yrði tvöföld klæðning á
planið með olíumöl, en heima-
menn töldu að olíumöl væri
ekki hentugt efni á þessum stað.
Forsendum útboðsins var því
breytt á þann veg að óskað verð-
ur bæði eftir tilboðum í malbik-
un og tvöfalda klæðningu. Til-
boðsfrestur var því framlengdur
til dagsins í dag, en átti að renna
út á föstudaginn í liðinni viku.
Eftir að tilboð verða opnuð seg-
ir Páll að haft verði samráð við
staðarhaldara í Reykholti um
hvor leiðin verði farin. Fram-
kvæmdir eiga að hefjast í vor.
–hlh
Vill breyta sal í
íbúðir
AKRANES: Skipulags- og um-
hverfisnefnd Akraneskaupstað-
ar hefur borist fyrirspurn varð-
andi Þjóðbraut 1, sem er fjöl-
býlishús Búmanna, en í það fé-
lag geta 50 ára og eldri gengið.
Fyrirspurnin er um hvort feng-
ist að breyta sal á 2. hæð húss-
ins í fjórar íbúðir. Íbúðafjöldi í
húsinu myndi við það breytast
úr 38 í 42. Um er að ræða ófrá-
genginn sal, alls 246,2 fm og
tvö þjónusturými sem eru sam-
tals 85,2 fm. Skipulags- og um-
hverfisnefnd tekur jákvætt í er-
indið og leggur til við bæjar-
stjórn að fyrirspyrjanda verði
heimilað að leggja fram breyt-
ingu á deiliskipulagi.
-þá
Tekinn á 165
LBD: Ökumaður fólksbifreiðar
var stöðvaður sl. föstudag í
Borgarnesi grunaður um ölv-
un við akstur. Var ökumaðurinn
ásamt farþega, sem einnig var
ölvaður, færður á lögreglustöð-
ina í Borgarnesi þar sem blóð-
sýni og framburðarskýrsla voru
tekin. Voru þeir síðan frjálsir
ferða sinna en lyklar bifreiðar-
innar geymdir á lögreglustöð-
inni. Alls komu 54 mál og verk-
efni inn á borð lögreglunnar
síðustu viku. Þar á meðal að ung
kona féll af hestbaki við hest-
húsahverfið í Borgarnesi. Að
sögn lögreglu er líklegt að kon-
an hafi fótbrotnað við fallið en
hún var flutt með sjúkrabifreið
af vettvangi. Um liðna helgi var
erlendur ferðamaður stöðvaður
á Snæfellsnesvegi fyrir of hrað-
an akstur. Ók hann á 165 km/
klst og var stöðvaður við Syðstu
- Garða. Var honum gert að
staðgreiða 105.000 krónur í
sekt. Að sögn lögreglunnar var
mikið um það síðustu vikuna
að ökumenn gleymdu sér í vor-
blíðunni og ækju of greitt. Alls
voru 26 ökumenn stöðvaðir fyr-
ir þá sök að stíga of fast á „pinn-
ann.“ Flestir þeirra nýttu sér
þann möguleika að staðgreiða
sekt sína í lögreglubifreiðinni
og ganga þannig strax frá sín-
um málum. Enda um 25% stað-
greiðsluafslátt að ræða. –þá
Síldin fannst í
Kolluál
SNÆFELLSNES: Stór hluti
íslensku sumargotssíldarinn-
ar sem saknað var á vertíð-
inni í vetur fannst í Kolluál út
af Snæfellsnesi í síðustu viku.
Það var áhöfn rannsókna-
skipsins Bjarna Sæmundsson-
ar og tvö uppsjávarveiðiskip,
Ásgrímur Halldórsson og Há-
kon, sem fundu síldina og er
magnið metið um 200 þúsund
tonn. Talið er að síldin hafi
haldið sig í álnum í vetur og
nú nýlega komið upp á grunn-
ið. Síldin er feit og falleg og
náðu skipin þremur skips-
förmum. Fiskifræðingar segja
heppilegt að síldin hafi fund-
ist núna, reyndar við loðnu-
leit. Annars hefði stofnstærð
væntanlega verið metin minni
en raunin er, sem hefði þýtt
minna magn til úthlutunar á
næstu síldarvertíð.
–þá
Tölva brann yfir
BORGARNES: Starfsemi
sundlaugarinnar í Borgarnesi
raskaðist nokkuð um síðustu
helgi eftir að tölva sem stýrir
vatnsrennsli á útisvæði laug-
arinnar brann yfir sl. föstu-
dagsmorgun. Ástæðan var raf-
magnsleysi sem varð upp úr
kl. 9 þennan morgun í Borg-
arnesi sem tengdist vinnu við
tengivirkið í aðveitustöðinni
á Vatnshömrum í Andakíl.
Að sögn Ingunnar Jóhannes-
dóttur forstöðumanns íþrótta-
mannvirkja hjá Borgarbyggð
þurfti að loka útisvæðinu fram
á sunnudag, en þá var komið
eðlilegt rennsli í útilaugina og
einn heitan pott. Hinir tveir
pottarnir voru loks opnaðir á
mánudaginn. Ingunn sagði að
óhappið hafi sett talsvert strik
í reikninginn enda var haldið
upp á enduropnun innilaugar-
innar og þreksalar íþróttamið-
stöðvarinnar á laugardaginn.
–hlh
Vegna breyttrar starfsemi í Eyr-
byggju sögumiðstöð við Grund-
argötu 35 í Grundarfirði efndi
Grundarfjarðarbær til hugmynda-
samkeppni um nýtt nafn á Sögu-
miðstöðina. Markmið samkeppn-
innar var að fá nafn sem myndi
fanga starfsemi hússins sem gegn-
ir nú hlutverki menningar- og sam-
félagsmiðstöðvar bæjarins. Bóka-
safnið er sjálfstætt starfandi í hús-
inu og skipar stóran sess í vetrar-
starfi þess ásamt samverustundum
ýmissa félaga í bænum. Þá hefur
ljósmyndasafn Bærings Cecilsson-
ar og Eyrbyggja sögumiðstöð sinn
stað í húsinu. Eyrbyggja Sögumið-
stöð ber áfram ábyrgð á sýningar-
haldi tengdu uppbyggingu og sögu
Grundarfjarðar en í húsinu er að
finna bátinn Brönu, verkstæði með
gömlum munum ásamt leikfanga-
safninu Þórðarbúð.
„Alls bárust 49 hugmyndir frá
23 aðilum. Mikill meirihluti inn-
sendra tillagna hljóðaði upp á að
húsið héldi nafninu Sögumiðstöð-
in. Bæjarstjórn tók málið fyrir á
fundi nýverið þar sem samþykkt
var samhljóða að nafn upplýsinga-
og menningarmiðstöðvar Grund-
arfjarðar yrði Sögumiðstöðin,“ seg-
ir í frétt frá sveitarfélaginu. grþ
Sögumiðstöðin heldur nafni sínu
Athafnamaðurinn Pétur Geirs-
son, kenndur við Hótel Borgarnes
og fjölskylda hans, áformar nú að
koma á legg nýrri ferðaþjónustu í
Botnsskála í Hvalfirði. Pétur hefur
átt skálann um langt árabil en hann
rak þar verslun og veitingasölu á
árum áður, eða frá 1966 og fram
undir síðustu aldamót. Botnsskála
var lokað árið 1997 eða um svipað
leyti og gerð Hvalfjarðarganga var
komin á lokastig. Þá var einnig búið
að færa þjóðveginn frá þannig að
hann lá ekki lengur í gegnum hlað-
ið á skálanum. Enginn rekstur hef-
ur verið í skálanum síðan. Í samtali
við Skessuhorn sagði Pétur að hann
hafi í hyggju að opna gistiaðstöðu í
Botni og tengda ferðaþjónustu. Það
hafi í raun staðið til frá því skálan-
um var lokað á sínum tíma en nú
horfi svo við að ný tækifæri bjóðist
og umhverfi ferðaþjónustunnar að
breytast. Nágrenni skálans, Botns-
dalur og Hvalfjörður, hafi t.d. mik-
ið aðdráttarafl fyrir ferðamenn en
þar eru vinsælar og góðar göngu-
leiðir, tindar með frábæru útsýni til
að ganga upp á eins og Botnssúlur
og síðast en ekki síst Glymur, hæsti
foss Íslands.
Pétur segir að ein af forsendum
þess að byggja upp þjónustu á nýjan
leik í Botnsskála sé sú að þar komi
ljósleiðaratenging, en Hvalfjarð-
arsveit vinnur nú að því að ljós-
leiðaravæða sveitarfélagið að öll-
um lögbýlum í sveitarfélaginu. Ný-
lega sótti Pétur um til sveitarstjórn-
ar að flytja lögheimili sitt í Botns-
skála, en umsókn hans var hafnað
sökum þess að lóð skálans er skipu-
lögð sem verslunarlóð. Beiðnin um
lögheimilið tengist óbeint þess-
um áformum að hans sögn. Mál-
inu væri hins vegar ekki lokið enda
telur Pétur góðan grundvöll fyr-
ir ferðaþjónustu á staðnum. Sam-
kvæmt þessu er nauðsynlegt að fara
út í breytingu á skipulagi. hlh
Pétur vill opna Botnsskála
á nýjan leik
Botnsskáli má muna sinn fífil fegurri, en graffiti „listamenn“ hafa komið þar við
sögu nýlega. Ljósm. gó.