Skessuhorn - 09.04.2014, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Rýmum á Brák-
arhlíð fjölgaði
BORGARNES: Þriðjudaginn
1. apríl sl. breyttist samsetn-
ing rýma á hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Brákarhlíð í Borg-
arnesi. Samhliða fjölgaði rým-
unum um þrjú. Fyrir breytingu
var Brákarhlíð með 32 hjúkrun-
arrými, 18 dvalarrými og þrjú
dagdvalarrými. Eftir breytingu
eru 35 hjúkrunarrými, 17 dval-
arrými og dagdvalarrými eru
orðin fjögur. -mm
Einu fleira
hjúkrunarrými
SNÆFELLSBÆR: Velferð-
arráðuneytið hefur heimilað að
frá síðustu mánaðamótum verði
hjúkrunarrýmum á Dvalarheim-
ilinu Jaðri í Ólafsvík fjölgað um
eitt, úr tíu í ellefu. Þegar ákvörð-
un var tekin um stækkun Jaðars
var samið um það milli Snæfells-
bæjar og ríkisins að hjúkrunar-
rýmin yrðu 12 á Jaðri. Nú vantar
því eitt rými uppá að það fyrir-
heit sé efnt. Við þessa breytingu
styttist biðlisti á Jaðar og dregur
úr tapi af starfseminni samhliða
bættri nýtingu. –mm
Stýringu komið á
dælingu
GRUNDARFJ: Stjórnend-
ur Orkuveitu Reykjavíkur hafa
ákveðið að nú á vordögum verði
komið upp stýringu við dælingu
úr borholum fyrir vatnsveituna
í Grundarfirði. Þetta á að leiða
til öruggari afhendingar neyslu-
vatns frá miðlunartanki ofan við
byggðina. Með stýringunni verð-
ur dælingu hætt þegar miðlun-
artankurinn verður orðinn fullur,
en nú og áður flæddi vatnið upp
úr tankinum engum til gagns og
sumum jafnvel til óþæginda. Þeg-
ar vatnsskortur varð í Grundar-
firði á tímabili í þurrkum í vetur
var ástæðan rakin til þess að við
dælingu komst loft inn á kerfið.
Gerðar voru lagfæringar á búnaði
og það tryggt að þetta endurtæki
sig ekki. –þá
Tæplega ein
sala á dag
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 29 samningum um
húsnæði þinglýst í marsmánuði.
Þar af voru 12 samningar um
eignir í fjölbýli, 11 samningar
um eignir í sérbýli og 6 samn-
ingar um annars konar eign-
ir. Heildarveltan var 585 millj-
ónir króna og meðalupphæð á
samning 20,2 milljónir króna.
Af þessum 29 samningum voru
11 samningar um eignir á Akra-
nesi. Þar af voru 8 samningar
um eignir í fjölbýli og 3 samn-
ingar um eignir í sérbýli. Heild-
arveltan var 164 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
14,9 milljónir króna. –mm
Verið að jafna álag
BORGARFJ: Rafmagn fór
að Borgarnesi, Hvanneyri og
Skorradal rétt upp úr klukkan 9
sl. föstudagsmorgun í skamma
stund. Var verið að færa til álag í
dreifikerfinu, segir í tilkynningu
frá Rarik. „Tengist þetta vinnu
við tengivirkið í aðveitustöð-
inni á Vatnshömrum, þar sem
verið er að bæta við spenni til
að anna aukinni aflþörf á svæð-
inu. Raforkunotendur er beðn-
ir velvirðingar á þeim óþægind-
um sem straumleysið hafði í för
með sér,“ sögðu Rarikmenn.
Breytt dagskrá
briddsara
BORGARFJ: Síðastliðið mánu-
dagskvöld var spilaður einmenn-
ingur hjá Briddsfélagi Borgarfjað-
ar í Logalandi. Um var að ræða
fyrra kvöld af tveimur í einmenn-
ingskeppni félagsins. Tuttugu spil-
arar mættu til leiks og voru spilað-
ar 12 umferðir með tvö spil á milli
para. Heiðar í Múlakoti fór ham-
förum framan af kvöldi og stakk
aðra og reyndari spilara af, en dal-
aði svo þegar á leið en hélt þó topp-
sætinu. Verður reyndar að deila því
með Sveinbirni nautahirði. Í þriðja
sæti er svo Binni í Hlöðutúni. Næst
verður spilaður tvímenningur þrátt
fyrir áður auglýstan einmenning.
Félagar úr Briddsfélagi Hólmavíkur
ætla að koma og etja kappi við Borg-
firðinga og nærsveitunga. Því er um
að gera að fjölmenna í Logaland á
síðasta tvímenning vorsins, segir í
tilkynningu frá Ingimundi Jónssyni
fjölmiðlafulltrúa BB. Spiluð verða
forgefin spil og líklega með Mon-
rad keppnisformi. Seinni hluti ein-
menningsins verður svo spilaður
þríðjudaginn eftir páskana. –mm/ij
Samstarf um
doktorsverkefni
STYKKISH: Bæjarstjórn Stykk-
ishólms hefur samþykkt samstarf
um doktorsverkefni til þriggja ára
milli sveitarfélaganna á norðan-
verðu Snæfellsnesi við Matís. Stykk-
ishólmsbær greiðir í hlutfalli við
íbúafjölda, á bilinu sexhundruð til
sjöhundruð þúsund kr. á ári. Verk-
efnið fjallar um vistvænt hráefni í
fiskafóður úr lífríki Breiðafjarðar.
Markmið verkefnisins er að greina
van- eða ónýtta hráefnisstrauma
og lífefni úr umhverfi Breiðafjarð-
ar. Vitneskjan úr þeirri greiningu
verði nýtt til að þróa óhefðbundið
og umhverfisvænt hágæða fiskafóð-
ur og koma upp neti hagsmunaaðila
um verkefnið á svæðinu. –þá
Aflatölur fyrir
Vesturland
29. mars - 4. apríl.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 23 bátar.
Heildarlöndun: 4.137.613 kg.
Mestur afli: Ingunn AK:
1.839.763 kg í einni löndun.
Arnarstapi 16 bátar.
Heildarlöndun: 76.080 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 23.133
kg í fjórum löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 224.210 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.108 kg í einni löndun.
Ólafsvík 17 bátar.
Heildarlöndun: 187.304 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 44.864
kg í fimm löndunum.
Rif 16 bátar.
Heildarlöndun: 391.761 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
102.877 kg í sex löndunum.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 11.484 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 4.350 kg
í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Ingunn AK – AKR:
1.839.763 30. mars
2. Lundey NS – AKR:
1.120.088 3. apríl
3. Faxi RE – AKR:
1.115.001 2. apríl
4. Tjaldur SH – RIF:
78.754 2. apríl
5. Hringur SH – GRU:
65.108 1. apríl
mþh
Verslunarstjóra
Dag ur í lífi...
Nafn: Gunnar Ragnarsson
Starfsheiti/fyrirtæki: Versl-
unarstjóri hjá Samkaup Úrval í
Grundarfirði.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
í Grundarfirði, á fjögur börn og
einn Tópas. Tópas er hundur-
inn minn.
Áhugamál: Ætli það sé ekki golf-
ið og bara lífið.
Vinnudagurinn: Þriðjudagurinn
1. apríl 2014.
Mætt til vinnu og fyrstu verk:
Ég mæti í vinnuna um áttaleytið.
Fyrstu verk eru bara að hittast og
fá sér kaffi og svo að taka á móti
vörum.
Klukkan 10: Upp úr kl. 10 mæti
ég alltaf á morgunfund. Þá hitt-
umst ég, Sverrir, Svanur og Guð-
mundur og ræðum mál líðandi
stundar.
Hádegið: Í hádeginu er bara ver-
ið að vinna, það er mest að gera í
hádeginu. Við borðum eiginlega
ekki fyrr en eftir hádegi. Þá fær
maður sér eitthvað snarl.
Klukkan 14: Það er verið að
skipta um hillulista í búðinni og
ég fór í það eftir hádegið.
Hvenær hætt og síðustu verk?
Ég kvaddi liðið og læddist út. Það
var svo gott veður í gær þannig að
ég stalst héðan svona hálf fimm
og fór beint í golf. Þar hitti ég
hann Bent og við erum alltaf að
keppa í golfi. Í gær var jafntefli.
Fastir liðir alla daga? Ætli það
sé ekki að taka á móti vörum, þá
kemur Svenni með vörurnar.
Hvað stendur upp úr eft-
ir vinnudaginn? Það sem stend-
ur upp úr eftir vinnudaginn var
að það var 1. apríl. Það vinn-
ur hér ungur maður, Samúel.
Ég var alltaf að kíkja eftir hon-
um um morguninn. Ég var búinn
að segja honum að fara í bank-
ann og ná í tösku þangað en hann
þekkti mig það vel að átta sig á að
það var aprílgabb. En ég náði að
plata hann á endanum. Þá sendi
ég hann niður í leikskóla til að ná
í bók. Hann fattaði það rétt áður
en hann var kominn þangað en
mér tókst að láta hann hlaupa, út
á það gengur þetta.
Var dagurinn hefðbundinn?
Nei, það var fyrsti apríl. Sonur
minn hringdi í mig frá Reykjavík
og bað mig að ná í varahlut nið-
ur á verkstæði. Ég áttaði mig á því
að það væri gabb. En klukkan 22
var ég plataður. Dóttir mín var á
bílnum mínum og hringdi í mig.
Hún sagðist vera fyrir utan bæinn
og að það heyrðist eitthvað hljóð
í dekkinu og að það væri vind-
laust. Ég hljóp til og keyrði síma-
laus út í sveit en fann engan þar.
Ég keyrði þá hring í kringum bæ-
inn og fór svo heim. Það fyrsta
sem ég sá var að það var ósvarað
símtal í símanum mínum. Það var
dóttir mín sem hringdi til að segja
„1. apríl!“ Þarna var ég gripinn
rétt áður en deginum lauk.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði árið 2005, fyr-
ir 9 árum.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Ég er sáttur. Þetta er frekar gef-
andi starf.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já, ég hlakka yfirleitt til.
Eitthvað að lokum? Nú er ég á
leið í afmæli klukkan 4 og líkleg-
ast fer ég út á golfvöll eftir það
og horfi svo á leik í kvöld. Það er
nóg að gera.
Danshópurinn Sporið mun halda
örnámskeið í gömlu dönsunum
og þjóðdönsum, laugardaginn 12.
apríl nk. að Kalmansvöllum 1 (áður
Nettó) á Akranesi. Námskeiðið
stendur yfir frá kl. 14 til 16. Kenn-
ari verður Ásrún Kristjánsdótt-
ir danskennari og félagi í Sporinu
og henni til aðstoðar verða pör úr
danshópnum. Tilgangurinn með
þessu framtaki er að kynna gömlu
dansana og íslenska danshefð en
danshópurinn hefur um langt skeið
æft og sýnt íslenska þjóðdansa, jafnt
innanlands sem utan. Verð er 1000
krónur á mann.
Áhugasamir tilkynni þátttöku
með því að senda tölvupóst á kal-
manlistafelag@gmail.com eða
hringja í Svein Arnar í síma 865-
8974. -fréttatilkynning
Á undanförnum dögum hafa alls
borist um fjögur þúsund tonn af
kolmunna til fiskmjölsverksmiðju
HB Granda á Akranesi. Þar hefur
því að undanförnu verið unnið all-
an sólarhringinn á tveimur tólf tíma
vöktun. Stóra verksmiðjan er keyrð
á fullum afköstum vegna bræðslu
á kolmunna en ný framleiðslulína,
sem tekin var í notkun fyrir nokkru,
er hins vegar nýtt til framleiðslu á
beinamjöli.
Almar Sigurjónsson, rekstrar-
stjóri verksmiðjunnar, segir á vef
fyrirtækisins að Ingunn AK hafi
komið með um 1.800 tonna kol-
munnaafla til Akraness í síðustu
viku og í kjörfarið fylgdu Faxi RE
og Lundey NS með um 1.100 tonn
hvort skip. Ingunn er nú í sinni
annarri veiðiferð og er skipið statt
í færeysku lögsögunni. Löndun úr
Faxa lauk á fimmtudag og er skipið
farið frá Akranesi. ,,Löndun á afla
Lundeyjar lauk á föstudag og ef að
líkum lætur mun það taka okkur
tvo sólarhringa að vinna þann afla.
Kolmunninn er frekar magur um
þessar mundir og lýsisframleiðsla
er í samræmi við það,“ segir Almar
en að hans sögn vinna fimm manns
við stóru verksmiðjuna á hvorri
vakt. Hann reiknar ekki með því
að fá meira af kolmunna til bræðslu
á næstunni enda sé verksmiðjan
á Vopnafirði að komast í gang að
nýju eftir stækkun og endurbætur
og notar þar að auki eingöngu inn-
lenda orkugjafa að öllu jöfnu.
,,Þeir á Vopnafirði liggja betur
við miðunum og við fáum vænt-
anlega ekki meira af kolmunna
hingað nema það verði þeim mun
meiri kraftur í veiðunum,“ segir
Almar, en samkvæmt upplýsing-
um hans var unnið úr um 10.000
tonnum af skorinni loðnu á Akra-
nesi á meðan hrognatöku og fryst-
ingu stóð.
mm
Kalman-listafélag rifjar upp gömlu dansana
Stöðug vinnsla í fiskmjölsverksmiðjunni