Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 9
9MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
VAKTSTJÓRI Í KERSKÁLA
VERKSVIÐ OG ÁBYRGÐ:
• Umsjón með daglegum rekstri vaktarinnar
• Öryggismál
• Mannauðsmál vaktarinnar
• Umsjón og eftirlit með tækjabúnaði
• Skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla
• Þátttaka í stefnumótun og ýmsum sameiginlegum
verkefnum innan fyrirtækisins
Norðurál leitar að metnaðarfullum og reyndum
stjórnanda í kerskála fyrirtækisins. Um er að ræða
framtíðarstarf við margþætt og krefjandi verkefni.
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og
kvenna, endurmenntun og starfsþróun, frábæran
starfs anda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð
starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður
og fagmennska er í fyrirrúmi.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
• Menntun á tæknisviði, vélfræðimenntun eða
sambærileg menntun
• Öryggisvitund og snyrtimennska
• Færni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi æskileg
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa rúmlega 500 manns með
fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli.
Umsóknarfrestur til og með 13. apríl. Leggja
skal inn umsókn á www.nordural.is. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum
verður svarað.
Almennar upplýsingar um starfið veitir Valka
Jónsdóttir, starfsmannastjóri, í síma 430 1000.
Umsóknir um styrki
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2014 vegna
menningar-, íþrótta- og atvinnumála.
Umsókn þarf að vera skrifleg með upplýsingum um tilefni styrkbeiðni, tíma- og verkáætlun
verkefnis, önnur fjármögnun sem tengist verkefninu og hvort sótt hafi verið um styrki eða
þeim verið úthlutað annars staðar frá vegna viðkomandi verkefnis.
Með umsóknir verður farið samkvæmt reglum um styrkumsóknir sem samþykktar voru í
bæjarráði 22. október 2013. Reglurnar eru aðgengilegar á vef Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2014
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Góðir gestir, langt að komnir,
komu nýverið í heimsókn í Klepp-
járnsreykjadeild Grunnskóla Borg-
arfjarðar. Á ferð voru 16 unglingar
ásamt tveimur kennurum frá Rayan
International Scholls í Mubai á Ind-
landi. Mánudaginn 24. mars fluttu
gestirnir kynningu um heimaland
sitt, héldu örnámskeið í Bolywood
dansi og buðu síðan uppá skraut-
lega danssýningu. Er þetta í ann-
að skipti sem komið er með hóp af
nemendum frá skólanum til Íslands
í svokölluð menningar-skipti (cult-
ural excange). Á síðasta ári heim-
sótti hópurinn Hlíðarskóla. Gest-
irnir komu í Borgarfjörðinn föstu-
daginn 21. mars og var hópnum
skipt niður á heimili nemenda og
kennara GBF, sem af rausnarskap
opnuðu heimili sín fyrir þeim.
áhs
Gestirnir ásamt skólastjórnendum og fulltrúum nemenda á Kleppjárnsreykjum.
Indverskir nemendur
í menningarferð
Litríkur klæðnaður einkennir oft indverskar blómarósir.