Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Side 13

Skessuhorn - 09.04.2014, Side 13
13MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Framtíð fyrir brothættar byggðir Byggðastofnun hefur frá árinu 2012 staðið fyrir verkefninu „Brothættar byggðir“ þar sem unnið er að bættri stöðu byggðarlaga í vanda með víðtæku samstarfi við íbúa, sveitarfélög, atvinnuþróunarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og fleiri aðila. Meginmarkmið verkefnisins á hverjum stað eru skilgreind af verkefnisstjórn á grundvelli umræðna og forgangsröðunar á íbúaþingum sem ætlað er að virkja frumkvæði íbúa og samtakamátt. Nánari verkefnislýsingu má finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. Verkefnið nær nú til Bíldudals í Vesturbyggð, Breiðdalshrepps, Raufarhafnar í Norðurþingi og Skaftárhrepps en svigrúm er til þess að færa verkefnið út til nokkurra fleiri byggðarlaga. Umsókn þarf að vera sameiginleg frá sveitarfélagi, landshlutasamtökum sveitarfélaga/atvinnuþróunarfélagi og íbúasamtökum, þar sem þau eru til staðar. Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar fyrir 15. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir, þróunarsviði Byggðastofnunar, s. 455 5400 og netfang, sigga@byggdastofnun.is. ÚTBOÐÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is 81x120 mm TIL SÖLU Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 15616 Skólaakstur í Hvalfjarðarsveit Númer útboðsins misritaðist í seinasta tölublaði. Ríkiskaup, fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar, óska eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Heiðarskóla. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa. Tillaga um hvernig skipa ætti stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hlaut ekki hljómgrunn á aðalfundi samtakanna sem haldinn var á Hót- el Borgarnesi föstudaginn 28. mars sl. Níu sveitarfélög innan SSV, öll nema Akranes, vildu fara þá leið að öll tíu sveitarfélögin ættu aðkomu að stjórn SSV. Í lagabreytingun- um sem lagðar voru fyrir þing- ið gerði stjórn SSV tillögu um að sveitarfélag með yfir 3000 íbúa eigi tvo fulltrúa í stjórn, sveitarfélag með 300-3000 íbúa eigi einn fulltrúa og sveitarfé- lag með undir 300 íbúum eigi einn áheyrnarfulltrúa. Þar með hefðu fulltrúar í stjórn SSV orðið níu talsins, auk áheyrn- arfulltrúanna. Ekki náðist sátt á þinginu um þessa lagabreytingu og var því frestað til aðalfund- ar næsta haust að ákvarða hvern- ig staðið verði að stjórnarskipan í SSV. Fyrir lá að hvort eð er yrði að fresta því að kjósa nýja stjórn sam- takanna, þar sem að nýjar sveitar- stjórnir verða kosnar í vor. Þetta er í fyrsta sinn sem aðal- fundur SSV er haldinn svo snemma árs, en það gerist í kjölfar skipulags- breytinga sem samþykktar voru á framhaldsaðalfundi í nóvember síð- astliðnum. Þar var ákveðið að aðal- fundur SSV og tengdra félaga verði framvegis haldinn sama daginn fyrir apríllok, en málþing um hagsmuna- mál sveitarfélaganna á Vesturlandi verði svo haldið að haustinu. Aðal- fundir félaganna voru einnig haldn- ir í Hótel Borgarnesi á föstudaginn og eina praktíska málið, ef svo má segja sem ekki tókst að ljúka þenn- an dag og tengist umræddum skipu- lagsbreytingum, var hvernig standa eigi að skipan stjórnar SSV í fram- tíðinni. Gunnar Sigurðsson, for- maður stjórnar SSV, segir að vissu- lega hafi það ollið vonbrigðum að ekki skuli hafa tekist að ljúka mál- inu varðandi skipan stjórnar, eft- ir að það hafi verið rækilega kynnt fyrir öllum fulltrúum nokkru fyr- ir aðalfundinn. Það sem standi eft- ir varðandi umræddar skipulags- breytingar séu vel heppnaðir að- alfundirnir stofnana og félaga sem tengjast SSV, svo sem Heilbrigðis- eftirlitsins, Símenntunarmiðstöðv- ar og Markaðsstofu Vesturlands sem SSV yfirtók með kaupum um síðustu áramót. Þá hafi Menning- arráð Vesturlands verið lagt nið- ur um síðustu áramót og stjórn SSV tekið við hlutverki þeirr- ar stofnunar. Stjórnin hafi kos- ið þrjá fulltrúa vítt og breytt af svæðinu til að vera menningar- fulltrúa til ráðgjafar við úthlut- un styrkja til menningarmála. Hörður Helgason er formað- ur nefndarinnar og með hon- um Helena Guttormsdóttir og Dagbjört Höskuldsdóttir. Fram kom í skýrslu formanns SSV á aðalfundinum að mikil óvissa væri nú um marga þætti er snéru að ríkisvaldinu svo sem sóknaráætlun og menningarsamn- ing. Útlit væri fyrir að framlag rík- isins til menningarsamnings myndi minnka um 7,7 milljónir króna í stað þess að áætlað var að skerðing- in yrði 2,7 milljónir. Það stefndi því í að niðurskurðurinn til menning- arsamnings yrði nær 30% en ekki 10% eins og gert var ráð fyrir. Þetta væri afar bagalegt sem og óvissan um svör frá ráðuneytum þegar um- sóknir lægju fyrir og verkefni stopp af þeim stökum. þá Ferðamenn fara í vaxandi mæli á Snæfellsnes. En hvar skyldu þeir helst taka ljósmyndir? Á vef Svæðisgarðs Snæfellsness er þessa skemmtilegu mynd að finna. Hún sýnir hvar vinsælast er að taka ljós- myndir á Snæfellsnesi. Kortið sýn- ir hvar 4.500 hnitsettar ljósmyndir sem birtar hafa verið á Flickr ljós- myndavefnum með merkinu „Snæ- fellsnes“ eru teknar. Samkvæmt þessu er ferðafólk út um allt á Snæ- fellsnesi. mm Ekki náðist sátt um hvernig skipa ætti stjórn á aðalfundi SSV Víða teknar myndirnar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Frá 7. maí 2014 verður einnig hægt að greiða atkvæði á eftirtöldum stöðum: skrifstofu sýslumanns, Hrannarstíg 2 í Grundarfjarðarbæ, á miðvikudögum og fimmtudögum milli kl. 17.00 og 19.00 skrifstofu sýslumanns, Bankastræti 1a í Snæfellsbæ, á mánudögum milli kl. 10.00 og 15.00 og fimmtudögum milli kl. 11.00 og 14.00 skrifstofu hreppsstjóra, Þverá í Eyja- og Miklaholtshreppi, á fimmtudögum milli kl.12.00 og 13.00 Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra. Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað. Stykkishólmi, 7. apríl 2014 Sýslumaður Snæfellinga. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnar- kosninga sem fara fram 31. maí 2014 er hafin. Hjá sýslumanni Snæfellinga fer atkvæðagreiðslan fram á skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 í Stykkishólmi, milli kl. 10.00 og 15.00 alla virka daga til kjördags.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.