Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 14

Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Framboðslisti Frjálsra með Framsókn á Akranesi var kynntur á opnum fundi í Garðakaffi sl. fimmtudags- kvöld. Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar var boðinn fram listi Framsóknarflokks og óháðra og hefur nafni framboðsins nú verið breytt. „Frjálsir“ stendur fyrir þá sem ekki vilja taka þátt í flokksstarfi Framsóknarflokks- ins. Við síðustu kosningar fékk listi Framsóknarflokks og óháðra tvo menn í bæjarstjórn, þá Guðmund Pál Jónsson og Reyni Georgsson. Reynir hætti í bæjarstjórn á kjörtímabilinu og tók Dagný Jónsdóttir sæti hans. Þau tvö eru ekki í efstu sætum listans að þessu sinni, Guð- mundur Páll reyndar í því sjötta. Lista Frjálsra með Framsókn leiðir Ingibjörg Pálmadóttir húsfreyja og hjúkrunarfræðingur. Í öðru sæti er Jóhannes Karl Guð- jónsson knattspyrnumaður, Sigrún Inga Guðnadóttir lögfræðingur er þriðja, Elinbergur Sveinsson er fjórði og í fimmta sæti er Karítas Jónsdóttir umhverfis- og byggingaverkfræðingur. Guðmundur Páll Jónsson for- stöðumaður er í sjötta sæti og í sjöunda sæti er Anna Þóra Þorgilsdóttir hjúkrunarfræðingur. Orðin ung í annað sinn En hvað kemur til að Ingibjörg, hjúkrunarfræðingur og fyrrum bæjarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra gefi kost á sér til setu í bæjarstjórn að nýju? „Þetta er listi gamalla en fyrst og fremst ungra fram- bjóðenda,“ segir hún. „Unga fólkið telur að reynsla sem ég hef aflað mér í gegnum áratugina geti komið að góðu gagni fyrir bæjarfélagið. Ég keypti þá hugmynd og ákvað því að vinna með unga fólkinu. Bæði þau og ég teljum að reynsla mín úr bæjarstjórn, af Alþingi og úr starfi ráðherra muni nýtast. Ég hef brennandi áhuga fyrir þessu bæjarfélagi og alveg sérstakan áhuga fyrir þessu unga fólki sem komið er til liðs við okkur til að efla bæinn okkar. Það er langt síðan ég hef kynnst svo stórum og skemmtilegum hópi ungs fólks sem er tilbúið til að koma að málefnum síns bæjarfélags á jákvæðan og uppbyggjandi hátt. Þannig að ég er bara orðin ung í annað sinn,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir. Listinn í heild er þannig: 1. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur. 2. Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður. 3. Sigrún Inga Guðnadóttir, lögfræðingur. 4. Elinbergur Sveinsson, kennari. 5. Karítas Jónsdóttir, B.S.C. í umhverfis- og bygginga- verkfræði. 6. Guðmundur Páll Jónsson, forstöðumaður. 7. Anna Þóra Þorgilsdóttir, hjúkrunarfræðingur. 8. Ole Jakob Wolden, húsasmiður. 9. Hlini Baldursson, sölumaður. 10. Sólveig Rún Samúelsdóttir, stúdent og verkakona. 11. Valdimar Ingi Brynjarsson, stúdent og verkamaður. 12. Hilmar Sigvaldason, verkamaður. 13. Drífa Gústafsdóttir, skipulagsfræðingur. 14. Ingi Björn Róbertsson, tónlistarmaður. 15. Maron Kærnested Baldursson, viðskiptafræðingur. 16. Gunnar Hafsteinn Ólafsson, matreiðslumaður. 17. Björg Elva Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur. 18. Guðmundur Hallgrímsson, blikksmiður. mm Á aðalfundi Samfylkingarfélags- ins á Akranesi síðstliðinn fimmtu- dag var listi félagsins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar kynntur. Ingibjörg Valdimarsdóttir fram- kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi skip- ar fyrsta sæti listans. Hún situr nú í bæjarstjórn ásamt þremur öðr- um flokksfélögum sínum. Í öðru sæti listans er Valgarður Lyng- dal Jónsson kennari, Gunnhild- ur Björnsdóttir kennari og bæjar- fulltrúi er í þriðja sæti og Krist- inn Hallur Sveinsson landfræðing- ur í því fjórða. „Listann skipar fólk með fjölbreytilegan starfsbakgrunn og margvíslega menntun. Á honum er fólk með mikla reynslu af bæj- armálum í bland við nýtt fólk sem stígur nú sín fyrstu skref á þeim vettvangi. Einkenni listans er að hann er skipaður félagslega virk- um einstaklingum sem þekkja vel til hinna fjölbreyttu þjónustuþátta sem gott bæjarfélag þarf að sinna af metnaði,“ segir í tilkynningu frá framboðinu. Listinn í heild er þannig: 1 Ingibjörg Valdimarsdóttir, bæjar- fulltrúi og framkvæmdastjóri. 2 Valgarður Lyngdal Jónsson, grunnskólakennari. 3 Gunnhildur Björnsdóttir, bæjar- fulltrúi og grunnskólakennari. 4 Kristinn Hallur Sveinsson, land- fræðingur. 5 Björn Guðmundsson, húsasmið- ur. 6 Jónína Halla Víglundsdóttir, framhaldsskólakennari. 7 Guðmundur Þór Valsson, mæl- ingaverkfræðingur. 8 Guðríður Sigurjónsdóttir, leik- skólakennari/menningarstjórnun. 9 Guðjón Viðar Guðjónsson, raf- virki/trúnaðarmaður RSÍ. 10 Sigrún Ríkharðsdóttir, tóm- stunda- og félagsmálafræðingur. 11 Gunnþórunn Valsdóttir, há- skólanemi. 12 Vigdís Elfa Jónsdóttir, grunn- skólakennari. 13 Hrafn Elvar Elíasson, sjómaður. 14 Hrund Snorradóttir, leikari. 15 Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir, héraðsskjalavörður. 16 Andri Adolphsson, stuðnings- fulltrúi. 17 Júlíus Már Þórarinsson, tækni- fræðingur. 18 Hrönn Ríkharðsdóttir, fyrrver- andi bæjarfulltrúi/skólastjóri. mm Listi Sjálfstæðisflokksins í Grund- arfirði fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar í vor var samþykktur á félagsfundi sl. fimmtudagskvöld. Rósa Guðmundsdóttir framleiðslu- stjóri hjá GRun mun leiða listann að þessu sinni og tekur við því hlut- verki af Þórði Magnússyni sem nú er í 5. sæti. Jósef Kjartansson vél- stjóri er í öðru sæti, Bjarni Georg Einarsson áliðnaðarmaður í þriðja og Sigríður Guðbjörg Arnardóttir þroskaþjálfi í fjórða sæti. Listinn í heild sinni er þannig: 1. Rósa Guðmundsdóttir, fram- leiðslustjóri. 2. Jósef Kjartansson, vélstjóri. 3. Bjarni Georg Einarsson, áliðn- aðarmaður. 4. Sigríður Guðbjörg Arnardóttir, þroskaþjálfi. 5. Þórður Magnússon, fram- kvæmdastjóri. 6. Hólmfríður Hildimundardóttir, verkstjóri. 7. Unnur Þóra Sigurðardóttir, hús- móðir og múrari. 8. Valdís Ásgeirsdóttir, veiðieftir- litsmaður. 9. Runólfur Guðmundsson, fv. skipstjóri. 10. Runólfur Jóhann Kristjánsson, stýrimaður. 11. Unnur Birna Þórhallsdóttir, kennari. 12. Ágústa Ósk Guðnadóttir, hús- móðir. 13. Hrólfur Hraundal, vélsmíða- meistari. 14. Þórey Jónsdóttir, skrifst.stj. tfk Listi Sjálfstæðis- flokks í Grundarfirði Ingibjörg leiðir lista Frjálsra með Framsókn á Akranesi Hér má sjá fulltrúa á lista Frjálsra með Framsókn, en á myndina vantar þrjá. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Ingibjörg Valdimarsdóttir leiðir lista Samfylkingar á Akranesi Hér má sjá sextán af átján fulltrúum á listanum. www.skessuhorn.is Fylgist þú með? S: 433 5500

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.