Skessuhorn - 09.04.2014, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Atvinnuljósmyndarinn og fóst-
urforeldrið Ragna Kristinsdóttir
er ættuð að austan. Fyrir nokkr-
um árum kom hún á Akranes til
að fæða barn. Henni leist svo vel
á staðinn að hún ákvað á endanum
að kaupa sér hús á Skaganum. Í
dag býr hún í „Slotinu“ svokallaða
við Vesturgötu ásamt fjölskyldu
sinni og hefur nýverið opnað stúd-
íó heima hjá sér. Ragna tók á móti
blaðamanni Skessuhorns og sagði
stuttlega frá sjálfri sér, starfinu og
hvernig stóð á því að hún ákvað að
flytjast búferlum á Akranes.
Hætti í banka og sneri
sér að öðru
Ragna er fædd og uppalin á Fá-
skrúðsfirði en fluttist ung til
Reykjavíkur með móður sinni.
„Ég var alltaf með annan fót-
inn hjá afa og ömmu fyrir aust-
an. Ég þrái alltaf að komast heim
í fjöllin mín og hef passað uppá
að gera það reglulega. Reynd-
ar er mitt nánasta fólk þar ýmist
dáið eða flutt í burtu en þrátt fyr-
ir það reyni ég að komast austur
á hverju ári,“ segir Ragna í sam-
tali við blaðamann. Ragna er lærð-
ur ljósmyndari en fór seint í skóla.
Hún útskrifaðist fyrir ári síðan
eftir þriggja ára nám í Tækniskól-
anum. „Ljósmyndunin hefur samt
alltaf búið innra með mér held ég.
Afi minn var áhugaljósmyndari og
átti svona „slides“ myndavél ásamt
sýningarvél. Hann var bóndi á
Vattarnesi og fór mikið út að taka
myndir, jafnvel til að mynda fugla-
lífið í eyjunni Skrúð. Ég flækt-
ist með honum í myndatökur og
svo voru haldnar sýningar í stof-
unni heima á sunnudögum,“ rifj-
ar Ragna upp. Hún er handlag-
in og skapar ýmislegt í höndun-
um annað en að taka ljósmyndir.
„Ég prjóna mikið og teikna. Ætli
það megi ekki segja að ég sé bara
svona skapandi týpa,“ segir hún
og hlær. Ragna á reyndar ann-
an starfsferil að baki, sem kemur
ljósmyndun og sköpun ekkert við.
Hún vann hjá viðskiptastofu í tíu
ár, þar af í fimm ár í banka í Lúx-
emborg. „Ég vann þar fyrir am-
erískan banka til að byrja með og
síðar fyrir sænskan. Þetta var áður
en íslensku bankarnir fóru þangað
út. Ég var í ágætri stöðu hjá bank-
anum en ég vann mjög mikið og
það varð til þess að sonur minn
varð leiður þarna úti. Ég hætti því
í bankageiranum 2003. Sköpun
og ljósmyndun eru mín hugarefni
og áhugamál. Ég vann öll þessi ár
í banka en það var einungis til að
fá laun, þetta var bara vinna. Ég
hafði engan sérstakan áhuga á við-
skiptum og get ekki sagt að mér
hafi þótt vinnan skemmtileg,“ seg-
ir Ragna.
Grét þegar
sláturbíllinn kom
Ragna starfar ekki einungis sem
ljósmyndari í dag. Hún er einn-
ig fósturforeldri og starfar fyr-
ir Barnaverndarstofu. Hún hef-
ur tekið börn á öllum aldri í fóst-
ur og þau hafa búið hjá Rögnu og
eiginmanni hennar í mislangan
tíma. Eiginmaður Rögnu er Guð-
mundur Steinar Skúlason, eða
Guðmundur Strandamaður eins
og hún kynnir hann. Guðmund-
ur er bifreiðasmiður og vinnur á
réttingaverkstæði Toyota í Garða-
bæ. „Hann er úr Strandasýslunni
og við fluttum þangað eftir að við
komum heim frá Lúxemborg og
bjuggum þar í sex ár. Þar starfaði
Gummi sem bóndi en ég gerðist
fósturforeldri. Ég er ekki bóndi í
mér. Ég elska dýr en ég gat ekki
hugsað til þess að lömbunum væri
slátrað. Ég grét þegar sláturbíllinn
kom, í alvöru! Ég bara gat ekki
vanist því að maturinn væri kallað-
ur nöfnum, fannst það bara ógeðs-
legt. Ég veit samt alveg hvernig
þetta gengur fyrir sig og veit að
fólk sem hefur alist upp í sveitinni
lítur allt öðrum augum á þetta. Ég
bara gat ekki vanist þessu,“ útskýr-
ir Ragna.
„Hér vil ég búa“
Í dag er ein stúlka í fóstri hjá Rögnu
og Guðmundi og önnur í aðlög-
un sem flytur til þeirra í byrjun
maí. Ásamt fósturbörnunum eiga
hjónin sjálf tvo syni sem eru fædd-
ir með sautján ára millibili. „Við
ætluðum ekki að hafa svona langt
á milli þeirra. Það gekk bara illa
að eignast annað barn. Við vor-
um búin að gefast upp og ætluð-
um að ættleiða barn að utan. En
þá allt í einu varð ég ófrísk og það
gekk. Ég hélt alla meðgönguna
að þetta myndi ekki ganga, eft-
ir að hafa áður misst þegar ég var
langt gengin með. Eftir svoleið-
is reynslu verður maður hrædd-
ur og ég var hrædd alla meðgöng-
una. En þetta gekk og hann fædd-
ist í mars 2006. Það má því segja
að það hafi tekið langan tíma fyr-
ir hann að koma en hann er á við
þrjú börn þannig að þetta er allt í
lagi,“ segir Ragna brosandi.
Ragna fæddi yngri soninn á fæð-
ingadeildinni á Akranesi. „HVE
var okkar sjúkrahús miðað við að
við vorum búsett í Strandasýsl-
unni á þessum tíma. Ég hafði
misst fóstur og átt í erfiðleikum
þannig að þau í bænum vildu hafa
eftirlit með mér. En eftir að hafa
skoðað deildina hér á Skaganum
og hitt ljósmóður vildi ég skipta,
ég óskaði sjálf eftir því. Dreng-
urinn var svo tekinn með keis-
araskurði á fæðingadeildinni hér.
Við vorum líka með fósturbarn frá
Akranesi á þessum tíma, sem kom
til okkar 2004 frá Félagsþjónust-
unni á Akranesi. Það var vel hald-
ið utan um það mál og allt mjög
faglegt við það. Okkur leist strax
mjög vel á þennan stað. Það sem
er að mínu mati æðislegt við Akra-
nes er að þetta er fiskiþorp við sjó-
inn, eins og mitt þorp fyrir aust-
an. Sá sem hefur búið í Lúxem-
borg veit hvað það er að sakna
sjávarins,“ segir hún. Ragna nefn-
ir einnig að Akranes sé í þægilegri
nálægð við Reykjavík og þar sé
mikil og góð þjónusta. „Hér er til
dæmis sjúkrahús, tveir grunnskól-
ar og framhaldsskóli. Fólk miss-
ir börnin sín svo ung út af heim-
ilunum í plássum þar sem enginn
framhaldsskóli er. Að mínu mati
skiptir það því mjög miklu máli
þegar maður velur sér búsetu. Ég
sagði því við manninn minn að hér
væri ég til í að búa. Og það er ekki
oft sem Ragna Kristinsdóttir segir
það,“ bætir hún við.
Saknaði vindsins
Rögnu og fjölskyldu hennar líð-
ur vel á Skaganum. Þau keyptu
sér gamalt hús við Vesturgötuna
sem gengur undir nafninu „Slot-
ið“. Húsið var í slæmu ástandi
þegar þau keyptu það en þau hafa
eytt miklum tíma í að taka það í
gegn. „Húsið hafði verið tekið
í gegn fyrir tuttugu árum en var
ekki sinnt og hafði grotnað niður
aftur. Svona gamalt hús þarf mikið
viðhald. Þrátt fyrir ástandið féll-
um við fyrir þessu húsi enda erf-
itt að gera það ekki. Staðsetningin
truflaði mig aðeins enda er stund-
um vond lykt hérna. Það er það
eina slæma við að búa hér, annars
er það dásamlegt,“ segir Ragna.
Slotið stendur beint á móti Norð-
anfiski og nefnir hún að þeir séu
góðir nágrannar, alltaf sé snyrti-
legt og fínt í kringum fyrirtæk-
ið. Þeir byrji að vinna snemma á
morgnana og gangi alltaf hljóð-
lega um og taki tillit til þeirra sem
búa í kringum þá. „Okkur líður
öllum mjög vel hérna á Skaganum.
Hér fer ég í einhvern Fáskrúðs-
fjarðarfíling og þó það vanti fjöllin
er Akrafjallið auðvitað gullfallegt.
Hér er sjór allt í kringum mig og
ég er nánast flutt ofan í sjóinn. Úti
saknaði ég vindsins sem við bölv-
um alltaf, mig vantaði þetta ferska
sjávarloft. Svo eigum við dásam-
lega nágranna. Þeir bönkuðu upp
á og kynntu sig fyrsta daginn okkar
hér og hafa verið alveg einstaklega
hjálplegir og yndislegir. Brekku-
bæjarskóli hefur líka reynst okk-
ur frábærlega og við erum ánægð
með hann,“ bætir Ragna við.
Sérstakt að
mynda fæðingar
Ragna opnaði nýverið stúdíó
heima hjá sér. Þar hefur hún safn-
að að sér alls kyns bakgrunnum og
fylgihlutum til að geta boðið upp
á fjölbreyttar myndatökur. Hún
tekur að sér alls kyns myndatökur
og myndar meðal annars fæðingar,
ungabörn, litla krakka, fjölskyldur,
brúðkaup og gæludýr. Einnig tek-
ur hún svokallaðar „still life“ ljós-
myndir.
„Þetta er rosalega fjölbreytt
starf. Ég hef aldrei auglýst heldur
hefur þetta bara spurst út hjá mér.
Fólk hefur verið að koma til mín úr
Reykjavík en ekki mikið af Skaga-
fólki. Allavega ekki ennþá, enda
þekki ég svo fáa hérna. Ég hef líka
Allt lífið er í myndum og sumar festast hjá manni
Rætt við Rögnu Kristinsdóttur ljósmyndara sem óvænt settist að á Akranesi
Klassísk portrait mynd eftir Rögnu. Fyrirsætan heitir Guðný.
Ragna Kristinsdóttir, ljósmyndari og
fósturforeldri.
Ragna tekur fallegar barnamyndir, hér er litla stúlkan Thelma steinsofandi í myndatöku.
Gamli vitinn á Suðurflös hefur verið valinn einn af myndrænustu vitum heims. Hér
er mynd af honum sem Ragna tók.