Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 09.04.2014, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Laugardaginn 29. mars hélt Sí- menntunarmiðstöðin á Vesturlandi skemmtilegt námskeið á Snæfells- nesi fyrir fólk með fötlun. Nám- skeiðið var í höndum Ásu Hlínar Svavarsdóttur leikara og leiklistar- kennara sem fór með þátttakendur í fjölbreytt verkefni. Má þar nefna traust- og áræðniæfingar, samhæf- ingu og rýmisskynjun, kyrrmynd- ir og spunaæfingar. Þátttakend- ur túlkuðu einnig hugmyndir sem urðu til í spunaæfingum og mynd- gerðu á pappír. Að námskeiði loknu var slegið á léttari strengi og allir gæddu sér á snæfellskum pítsum, sem reyndust hinar ljúfengustu. hbb Freisting vikunnar Elskar þú skinku- horn? Ef svo er, þarftu að skoða þessa uppskrift. Hún hefur hitt í mark í ansi mörg- um veislum og saumaklúbbum enda bragðgóð með eindæmum. Það er alltaf fljótlegt og þægilegt að skella í skinkuhorn og eru þau alltaf jafn góð. Þessi eru langbest heit en geymast þó vel. Eini gallinn við þau er að þau klár- ast alltof fljótt! Skinkuhorn: 2½ dl mjólk 2 tsk þurrger 450 gr hveiti 2 tsk salt 1½ tsk timjan (þurrkað) 1½ tsk oregano (þurrkað) ½ dl olía (helst létt ólífuolía) 1 eggjarauða – athugið að geyma hvítuna. Fylling: 1 dós skinkumyrja 1 pakki skinkustrimlar eða smátt skorinn skinka 1 eggjahvíta til að pensla hornin. Aðferð: Byrjið á að leysa gerið upp í volgri mjólk. Öllu hinu blandað saman við og látið lyfta sér undir rökum klúti í klukkutíma. Skipt- ið deiginu í sex hluta. Hver hluti er flattur út í hring, smurður með skinkumyrju og skorinn í sex eða átta geira (eins og pizzusneiðar). Dreifið svo smá skinku á hvern geira. Hverjum geira er svo rúll- að upp frá breiðari endanum. Látið hornin hefast í 20 mínút- ur áður en þau eru pensluð með eggjahvítunni og loks bökuð í 15 – 20 mínútur við 200°C. Skinkuhorn Styrkingarnámskeið á Snæfellsnesi verið upptekin af því að koma mér fyrir og setja upp stúdíóið. Nýlega setti ég svo upp síðu á Facebook og vefsíðuna ragnakphotography. com,“ segir Ragna sem einnig hef- ur myndað fyrir Akraneskaup- stað. Hún segir að það sé sérstök stund að mynda barnsfæðingar. „Nýverið myndaði ég heimafæð- ingu hér á Akranesi. Þetta er svo mögnuð stund. Fyrstu myndirn- ar af barninu geta verið svo stór- kostlegar og svo er hægt að taka myndir af báðum foreldrunum og jafnvel ljósmóðurinni líka. Ég reyni að láta lítið fyrir mér fara og trufla sem minnst og passa vel upp á að sjónarhornin séu vel og smekklega valin.“ Ragna afhendir þær myndir sem hún tekur fullunnar á USB lykli eða geisladiski. „Ég vel bestu myndirnar af fólki sem eru þá jafnframt tæknilega fullkomnar. Ég afhendi aldrei óunnar myndir. Það nota allir myndvinnsluforrit í dag. Myrkraherbergin sem notuð voru áður fyrr voru myndvinnslur þess tíma en í dag er „Photos- hop“ framköllunarferlið. Mynd- irnar eiga að vera tæknilega góð- ar og unnar. Það fer mun meiri vinna fram í vinnslunni á myndum en í stúdíóinu. Kúnstin er að vinna myndina passlega mikið. Reyndar vilja til dæmis ungar stelpur í dag fá mikið unnar myndir, þær vilja oft líta út eins og á glansmynd í tímariti. En auðvitað vilja ekki all- ir það sama og ég reyni að koma til móts við óskir viðskiptavinarins,“ útskýrir Ragna. Myndar fyrir stærsta myndabanka heims „Still life“ myndirnar eru allt öðruvísi listform. Þar stillir ljós- myndarinn til dæmis upp hlutum og býr til ákveðna sýn. Ragna hef- ur gaman af slíkri myndatöku og hefur tekið margar slíkar myndir. „Allt lífið er í myndum og sumar festast hjá manni. Sumar mynd- irnar hafa komið til mín í gegn- um drauma. Ég man eftir því að eitt sinn var ég niðri við Reykja- víkurtjörn og tók eftir hvað það var fallegt þar. Ég tók mynd af því með augunum en var ekki með myndavélina. Ég vildi endilega ná þessari sömu mynd með vélinni en aðstæðurnar komu ekki aft- ur fyrr en þremur árum síðar. Þá fór ég og tók mynd með mynda- vélinni,“ segir hún. Ragna tekur einnig myndir fyrir Getty Images, sem er stærsti myndabanki heims. Þeir fundu svokallaða Flickr síðu Rögnu á netinu og höfðu samband við hana í kjölfarið. „Þeir buðu mér að taka myndir frá mér og selja þær. Upphaflega völdu þeir myndirnar. Núna nýlega buðu þeir mér svo reikning hjá sér. Þannig að nú má ég bjóða þeim myndir í stað þess að þeir velji þær. Ætli það megi ekki líkja þessu við að ég hafi fengið nokkurs konar stöðu- hækkun,“ segir hún. „Ég hef mjög mikinn áhuga á fólki. Mér finnst ég vera í minni draumastöðu í dag. Ég er fósturforeldri og ljósmynd- ari sem myndar fólk. Það gæti ekki verið betra,“ bætir ljósmyndarinn Ragna Kristinsdóttir við að lok- um, sátt við lífið og tilveruna. grþ / Ljósm. Ragna Kristinsdóttir. Hér má sjá svokallaða „still life“ ljósmynd eftir Rögnu. Þessi heitir „Lets meet at the stars“ eða Hittumst hjá stjörnunum. Tími áburðarflutninga er runn- inn upp þetta vorið. Öllum tún- áburði til notkunar á Vesturlandi er skipað upp á Akranesi. Eitt áburð- arskipanna kom í byrjun vikunn- ar með 3900 tonn af áburði. Það heitir Wilson Sky, siglir undir kýp- versku flaggi og er gert út af norsku skipafélagi. Það eru m.a. Skeljung- ur, Sláturfélagið, Fóðurblandan og Lífland sem selja Vestlending- um áburð en það var Fóðurbland- an sem hafði milligöngu um sölu áburðarins sem Wilson Sky kom með, samkvæmt upplýsingum frá Akraneshöfn. Í nógu er að snúast hjá starfsmönnum ÞÞÞ á Akranesi við uppskipun og flutning á áburð- inum og voru meðal annars fjór- ir lyftarar á vegum ÞÞÞ á fullu við uppskipun. þá Leikskólabörnin á Sólvöllum í Grundarfirði una sér vel í sólinni. Börnin fóru í vikulokin í göngutúr með starfsfólki og könnuðu gróð- urinn og annað sem vaknar til lífs- ins með hækkandi sól. sk Sólvallabörn í gönguferð Áburði skipað upp á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.