Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Side 21

Skessuhorn - 09.04.2014, Side 21
21MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. Á aðalfundi Björgunarfélags Akra- ness sem haldinn var í Björgunar- miðstöðinni á Kalmansvöllum 2 Akranesi sl. fimmtudagskvöld, voru teknir fimm nýir félagar inn í sveit- ina. Fjórir af þessum fimm voru stúlkur og segir Þór Bínó Friðriks- son formaður félagsins að stúlk- ur hafi sýnt björgunarsveitarstarf- inu aukinn áhuga síðustu árin. „Það er gleðilegt að stelpurnar eru bún- ar að uppgötva að þetta er ekkert síður stelpu- en strákasport að vera í björgunarsveit. Við höfum allt- af þörf fyrir gott fólk,“ segir Þór Bínó. Nýliðar fá viðurkenningar- skjal þegar þeir ganga inn í sveitina. Jafnframt undirrita þeir eiðstaf þar sem gengist er undir þær skyldur sem fylgja því að taka þátt í björg- unarsveitarstarfi. Aðspurður seg- ir Þór Bínó að árlega komi á bilinu fjórir til tíu nýliðar inn í björgunar- sveitina. „Þetta er bæði endurnýj- un og viðbót. Oft dregur fólk sig aðeins í hlé meðan það er í barn- eignum og stofnar heimili en kem- ur síðan inn af krafti aftur.“ Þór segir félaga í Björgunarfélagi Akraness um 220, þar af um helm- ingur á útkallsskrá. Við stjórnarkjör á aðalfundinum var Þór Bínó Frið- riksson endurkjörinn formaður. Einnig voru Gísli S Þráinsson og Guðrún Birna Ásgeirsdóttir endur- kjörin í stjórn og Björn Guðmunds- son endurkjörinn í varastjórn. Inn í aðalstjórnina voru kosnir Sigurð- ur Axel Axelsson og Kjartan Kjart- ansson og Silvía Lorenz sem vara- maður. þá Sjúkraflutningamenn HVE í Búð- ardal hafa ásamt Lionsklúbbi Búð- ardals hafið söfnun fyrir sjálf- virku hjartnahnoðbretti til að hafa í sjúkrabílum á svæðinu. Framleið- andi tækisins hefur nefnt það Lúk- as en þar er verið að vísa í að tæk- ið jafngildir viðbótar manni við endurlífgun. Tækið sér algjörlega um hjartahnoð án þess að þreyt- ast eða vera fyrir öðrum við end- urlífgunina. Neyðarflutningamenn á Akranesi söfnuðu nýverið fyr- ir samskonar tæki, líkt og Skessu- horn greindi frá í síðasta mán- uði. Sjúkraflutningamenn á lands- byggðinni þurfa stundum að beita hjartahnoði við erfiðar aðstæður sem getur bitnað á gæðum hjarta- hnoðsins. Þeir þurfa oftar en ekki að flytja sjúklinga langa leið og þá skiptast tveir á um að hnoða. Tækið tryggir aftur á móti jafnt og stöðugt hjartahnoð. Eyþór Gíslason sjúkraflutninga- maður í Búðardal sagði í samtali við Skessuhorn að það gæti skipt sköpum við endurlífgun að hafa slíkt tæki við höndina. „Við þjón- ustum mjög stórt svæði. Meðaltími sjúkraflutnings með sjúkling er um það bil tveir og hálfur tími þó að al- gengastur sé tveggja tíma akstur. Ef við metum aðstæður þannig, gæt- um við keyrt á móti þyrlu og tæk- ið gæti skipt sköpum í slíkri ákvarð- anatöku. Þetta myndi því hjálpa til við erfiðar ákvarðanir og auðveld- að flutning á sjúklingum sem þurfa á hjartahnoði að halda. Þá getum við sem sjúkraflutningamenn ein- beitt okkur að öðrum hlutum, svo sem súrefnis- og lyfjagjöf,“ sagði Eyþór. Lúkas er kominn í sjúkrabíla á þremur stöðum á landinu; höfuð- borgarsvæðinu, Selfossi og Suður- nesjum og verður von bráðar einn- ig til á Akranesi. Á öllum þessu stöðum hafa fyrirtæki, félög og ein- staklingar lagt fram fé til kaupanna. „Lionsmenn hafa opnað reikn- Nýir rekstaraðilar eru nú komnir að þjónustumiðstöðinni í Munað- arnesi í Borgarfirði. Það eru hjón- in Börkur Hrafn Nóason og Hel- ena Rut Hinriksdóttir. Þau ætla að opna föstudaginn 11. apríl og formleg opnun verður síðan fyrir páskana miðvikudaginn 16. apríl. Opið verður síðan yfir páskana og um helgar út maí, en í sumar verð- ur opið alla daga í þjónustumið- stöðinni. Börkur Hrafn segir í samtali við Skessuhorn að þau hafi lagt mikla vinnu í það að undanförnu að gera staðinn enn hlýlegri og notalegri, jafnt orlofshúsagestir sem aðrir gestir ættu að geta notið veitinga í notalegu umhverfi. „Hér í Munað- arnesi ætlum við að reka veitinga- stað þar sem hægt verður að koma að fá sér að borða í huggulegu um- hverfi og reynum við að stilla verði í hóf þannig að fjölskyldur geti far- ið saman út að borða á viðráðanlegu verði. Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi, létta fiskrétti og lambakjöt þar sem við búum í blómlegu land- búnaðarhéraði. Við vonumst líka til að sveitungar okkar komi til með að heimsækja okkur og eiga nota- lega stund yfir kaffibolla eða öðrum veitingum,“ segir Börkur Hrafn. Í Munaðarnesi er sem kunnugt er mikil orlofshúsabyggð að lang- stærstum hluta í eigu stéttarfélag- anna í landinu og eru opinberir starfsmenn þar í miklum meirihluta. Börkur Hrafn og Helena Rut fluttu á Varmaland haustið 2007, hófu þá störf við skólann þar og starfa nú. Börkur er frá Tálknafirði og Hel- ena úr Stykkishólmi. „Hér í Borg- arfirðinum erum við búin að festa rætur og ákváðum því að sækja um rekstur þjónustumiðstöðvarinnar í haust þegar við sáum það auglýst,“ segir Börkur Hrafn. þá Nýliðarnir sem teknir voru inn í Björgunarfélag Akraness á aðalfundinum sl. fimmtudagskvöld: Júlíana, Ingibjörg, Guðjón Snær, Freyja og Halla. Ljósm. ki. Stúlkur sýna björgunarsveitar- starfi aukinn áhuga Taka við rekstri þjónustumið- stöðvarinnar í Munaðarnesi Börkur Hrafn Nóason og Helena Rut Hinriksdóttir taka við rekstri þjónustu- miðstöðvarinnar í Munaðarnesi. Börkur og Helena hafa lagt mikla vinnu í það að gera staðinn enn hlýlegri og notalegan. Safna fyrir tæki sem getur bjargað lífum ing og ætla að styrkja okkur í leið- inni. Við sjúkraflutningamennirn- ir ætlum svo að fara í fyrirtæki og á kaffistofur á kaffitímum. Ætlun- in er að kynna tækið á næsta fundi Lionsklúbbsins og á fundi hjá sveit- arstjórn Dalabyggðar. Söfnunin gekk vel á Akranesi og við ákváðum að byrja að safna í framhaldi af því. Það er nauðsynlegt að fá Lúkas á okkar svæði, við erum oft bara fáir. Við erum bara tveir í bílnum og lít- um svo á að það sé ekki síður þörf á svona tæki í fámenninu. Í bænum eru jafnvel fjórir sjúkrabílar send- ir á staðinn ef um hjartastopp er að ræða en hér eru bara tveir sjúkra- flutningamenn á vakt.“ Tæki sem þetta kostar tvær og hálfa milljón króna og leita þeir fé- lagar nú til fyrirtækja, stofnana, fé- laga og einstaklinga með ósk um styrki til kaupa á hjartahnoðtæki og óska eftir góðum undirtektum. Allt til að sjúklingar fái sem best hjarta- hnoð á erfiðum ferðalögum. Söfn- unarreikningur fyrir tækinu er: 312-13-110023. Kt: 530586-2359. grþ Sjúkraflutningamenn í Búðardal safna nú fyrir hjartahnoðbretti. Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.