Skessuhorn - 09.04.2014, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Björgunarskóli Landsbjargar stóð
um helgina fyrir námskeiðinu
Fjallamennska 2 á Snæfellsnesi.
Leiðbeinandi var Kjartan Þór. Farið
var yfir vetrarfjallamennsku og klif-
ur í bröttu fjalllendi. Á laugardeg-
inum var æft klifur í Gerðubergi og
á sunnudeginum var gengið á topp
Bárðarkistu. Veður var mjög gott
og gekk námskeiðið vel. Námskeið
sem þetta nýtist vel í starfi björg-
unarsveitanna á svæðinu í þeim að-
stæðum sem eru til fjalla. Nokkrir
félagar Björgunarsveitarinnar Lífs-
bjargar í Snæfellsbæ ásamt félögum
sínum í Klakki í Grundarfirði sóttu
námskeiðið.
þa
Í síðustu viku var hér í Skessuhorni
sagt frá ævintýralegri uppbyggingu
í ferðaþjónustu í Grundarfirði, sem
byggst hefur upp að stórum hluta
í kringum afþreyingu í hvala- og
fuglaskoðun en einnig vegna vin-
sælda Kirkjufellsins. Þetta hefur
lengt ferðamannatímann svo um
munar og endurspeglast ekki hvað
síst í að gistinýting á Hótel Fram-
nesi í vetur hefur verið hátt í 100%
og upppantað var lengi vel í vet-
ur. Það er líka önnur afþreying
sem hefur byggst upp í Grund-
arfirði og á kannski eftir að vinda
enn meira upp á sig. Það er reyndar
nánast einn maður sem hefur stað-
ið fyrir henni og snýst um það að
fræða ferðamenn um Grundarfjörð
og nágrenni á Vesturlandi með því
að segja sögur. Þetta er hann Ingi
Hans Jónsson sagnameistari. Ingi
Hans var á sínum tíma forkólfurinn
fyrir Sögumiðstöðinni í Grundar-
firði. Það samstarf gekk ekki upp
til langframa, stefna hans og nýrrar
stjórnar fóru ekki saman. Nú hef-
ur Ingi Hans skapað sinn eigin vett-
vang til að segja sögur, Sögustof-
una, sem hann er með heima hjá
sér að Læk, sem reyndar ber götu-
heitið Sæból 13.
Leysingin kom
með nafnið
Í húsinu Læk var áður starfrækt vel
þekkt veitingahús, Krákan. Þegar
Ingi Hans og kona hans Sigurborg
Kr. Hannesdóttir keyptu húsið, var
ljóst að finna þyrfti húsinu nýtt nafn.
„Nafnið kom eiginlega af sjálfu sér.
Fljótlega þegar við vorum farin að
taka hér til hendinni gerði allmikl-
ar leysingar og þá flæddi vatn hérna
inn á gólf. Það var því við hæfi að
kalla húsið Læk og það hefur fests
við húsið,“ segir Ingi Hans. Læk-
ur er mikið hús, um 300 fermetrar
að stærð. „Þetta er einföld skipting
hér innan dyra. Konan er með um
hundrað fermetra, þar sem meðal
annars er starfsaðstaða hennar, en
hún rekur ráðgjafarfyrirtæki okk-
ar hjóna, Ildi. Ég hef hundrað fer-
metra fyrir Sögustofuna og annað
grúsk og svo erum við með hundr-
að fermetra í sameiginlegt rými,“
segir Ingi Hans og brosir. „Endur-
bygging hússins hefur verið vinn-
an mín að miklu leyti síðustu þrjú
árin,“ segir Ingi Hans þar sem hann
fylgir blaðamanni um húsið og sýn-
ir þar vistarverur. Þar er stofa mik-
il og segir Ingi Hans að ítrekað hafi
birst þar inni á gólfi síðasta sumar-
hópar ferðamanna. Það hafi þá sýnt
sig að þörf væri fyrir starfsemi eins
og Sögustofan ætlar að standa fyr-
ir. Húsið er smekklega innréttað og
m.a. má sjá í stofunni viðarþiljur
sem setja skemmtilegan svip á rým-
ið. Aðspurður segir Ingi Hans að
þetta séu plankar af skipsdekki sem
hann hafi orðið sér út um.
Hlaðborð minninganna
Blaðamaður hefur orð á því við Inga
Hans að ekki sé annað að sjá en hér
hafi ágætir iðnaðarmenn verið að
stöfum. Ingi Hans segir að hann
eigi náttúrlega að kunna þetta allt
saman, bakgrunnurinn sé þannig.
Lærður sýningarhönnuður og eftir
að hafa kynnt sér leiktjaldasmíði og
unnið við húsasmíðar og rafvirkjun,
þá séu þetta ekki flóknir hlutir að
innrétta hús. Þegar blaðamaður var
á ferðinni hjá Inga Hans á dögun-
um var hann kominn langt með að
innrétta sýningaraðstöðu og sögu-
leikhússhorn í öðrum enda húss-
ins. Sögustofan er fyrst og fremst
rými um sagnaarf og fjölbreyti-
leika hans. Umgjörðinni er ætlað
að skapa andrúmsloft þar sem hver
hlutur á sér sögu. Þannig á Sögu-
stofan í raun meira skylt við leikhús
en safn. Sýningarhlutinn á að bera
það skemmtilega nafn „hlaðborð
minninganna“. Þar er Ingi Hans
m.a. búinn að koma fyrir safni leik-
fanga og hlutum sem tengjast því
sem hann hefur mestar mætur á úr
sínu grúski. „Það er allt frá Barbie
til James Bond og hvernig heims-
frægar persónur tengjast okkur og
höfðu eða hafa áhrif á daglegt líf
okkar,“ segir Ingi Hans. Hann átti
von á stórum hópi ferðamanna á
næstu dögum og var tilbúinn með
eina 20 klappstóla upp í rjáfrinu til
að skjóta undir þá. Formlega stend-
ur þó ekki til að opna Sögustof-
una fyrr en á sumardaginn fyrsta.
Ingi Hans á von á mörgum hópum
í heimsókn í sumar og segist full-
ur tilhlökkunar að takast á við kom-
andi verkefni. „Það hefur sýnt sig
að ferðamenn eru að sækjast eftir
náttúru, menningu og sögu. Skáld-
ið sagði að landslag væri lítils virði
ef það héti ekki neitt. Sama á við
um hluti og persónur sem eru lítils
virði án sögu,“ sagði Ingi Hans að
endingu. þá
Afar líflegt var í Stykkishólmi um
síðustu helgi þegar fram fór lands-
mót skólalúðrasveita. Þar komu
saman um 200 börn í 13 skóla-
lúðraveitum í landinu. Þétt dag-
skrá var á mótinu frá því síðdeg-
is á föstudag og fram á sunnudag.
Martin Markvoll málmblásara-
kennari við Tónlistaskóla Stykkis-
hólms og stjórnandi Lúðrasveitar
Stykkishólms sagði að mótið hefði
tekist einstaklega vel. Þátttöku-
sveitirnar komu flestar af höfuð-
borgarsvæðinu, en einnig í aust-
ur alveg frá Höfn í Hornafirði og
í norður frá Blönduósi. Foreldr-
ar fylgdu sumum börnunum og
alls voru það vel á þriðja hundrað
manns sem komu í Hólminn vegna
mótsins. „Pallarnir í íþróttahús-
inu voru líka þétt setnir bæjarbú-
um sem komu til að fylgjast með.
Það voru allir rosalega ánægðir og
það hentar okkur mjög vel hérna í
Hólminum að halda svona mót,“
sagði Martin Markvoll í samtali
við Skessuhorn.
Þátttökusveitum í mótinu var
blandað sama í þrjár sveitir og
byrjuðu þær æfingar strax í upp-
hafi móts síðdegis á föstudag.
Sameiginlegur kvöldverður var
svo um kvöldið og mótssetning
að honum loknum og skemmt-
un. Á laugardeginum var m.a. far-
ið í skemmtisiglingu út á Breiða-
fjörð með Sæferðum og færi gafst
til leikja í sundlauginni. Ball var
svo í íþróttahúsinu um kvöld-
ið. Lokaæfing fyrir tónleika var
á sunnudagsmorgun en lands-
mótinu lauk með tónleikum eft-
ir hádegi á sunnudaginn þar sem
sameiginlegu hljómsveitirn-
ar þrjár léku hver um sig nokkur
lög við mikla hrifningu fjölmargra
áhorfenda. Að tónleikunum lokn-
um héldu gestasveitirnar með sínu
fylgdarfólki hver til sín heima eftir
skemmtilega helgi í Stykkishólmi.
þá/ Ljósm. sá.
Björgunarsveitarmenn á
námskeiði í fjallamennsku
Þátttökusveitum var skipt í þrjár stórar lúðrasveitir.
Vel heppnað landsmót skólalúðrasveita
í Stykkishólmi
Mikið fjölmenni var saman komið á landsmóti skólalúðra-
sveita.
Ingi Hans opnar brátt Sögustofuna í Grundarfirði
Ingi Hans er kominn vel á veg með að innrétta Sögustofuna.
Ingi Hans hefur týnt til gamla muni í sviðsmynd í söguleikhússhorninu.
Þetta verður vörumerki Sögustofunnar.