Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Síða 25

Skessuhorn - 09.04.2014, Síða 25
25MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Létt og góð stemning var á fjórðu Mýraeldahátíðinni sem fram fór í Lyngbrekku um síðustu helgi. Í til- efni hátíðarinnar var efnt til véla- sýningar og kynningar á ýmsum landbúnaðartengdum vörum milli klukkan 13-17 á laugardeginum og lögðu fjölmargir gestir leið sína að Lyngbrekku til að skoða hana. Svangir gestir komu ekki að tóm- um kofanum því boðið var upp á grillað nautakjöt frá Sláturhúsinu á Hellu, kjötsúpu frá Félagi sauð- fjárbænda í Borgarfirði og kaffiveit- ingar frá kvenfélaginu á Mýrunum. Fjölmargir gestir glímdu síðan við Mýranautið sem náði með mikl- um tilburðum að hrista af sér hvern áskorandann á fætur öðrum. Um kvöldið fór loks fram kvöldvaka þar sem boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar sló síðan botn- inn í hátíðina með balli í lok kvöld- vökunnar sem stóð fram á rauða nótt. hlh Félagar í Skotfélagi Vesturlands héldu fyrsta skotmótið sitt í nýju inniaðstöðu félagsins í gamla slát- urhúsinu í Brákarey í Borgarnesi 1. apríl sl. Að sögn Þórðar Sigurðs- sonar formanns félagsins var mót- ið með léttu ívafi og fyrst og fremst haldið til að prófa inniaðstöðuna. Hún hefur verið í byggingu frá árs- byrjun 2013. Tíu manns tóku þátt í keppninni en keppt var með .22cal rifflum í tveimur flokkum. Sigur- vegarar á mótinu voru þeir Kristján Pálsson og Ómar Jónsson. Þórð- ur segir að framkvæmdir í inniað- stöðunni séu nú á lokametrunum og er kærkomið að sjá fyrir end- ann á þessu metnaðarfulla verkefni. „Geta má þess að vinnustundirn- ar skipta hundruðum hjá okkur en öll vinna hefur verið unnin í sjálf- boðavinnu. Okkur hefur tekist með mikilli útsjónarsemi og hjálp góðra manna og kvenna að halda félaginu réttum megin við núllið í kostnaði vegna framkvæmda,“ segir Þórður sem kveðst ánægður með kraftinn í félaginu. Stefnt er á að opna aðstöðuna til æfinga á morgun, fimmtudag, sama dag og félagið fagnar tveggja ára af- mæli. Formleg opnun er loks áætl- uð 27. apríl næstkomandi. Þórð- ur segir að búið sé að ákveða æf- ingatíma og verða þeir á mánu- dagskvöldum og fimmtudagskvöld- um frá kl. 20-22 og á laugardög- um frá kl. 10-14. Stök æfing mun kosta 1.500 kr. fyrir ófélagsbundna skotmenn, en 1000 kr. fyrir félags- menn. Árskort í æfingaaðstöðuna eru einnig í boði og kostar hvert kort 15.000 kr. Þórður vill hvetja sem flesta til að koma og kynna sér starfsemina. Lánsbyssur verði t.d. í inniaðstöðunni sem gestir geta fengið að prófa. Skotfélagið áformar einnig að byggja upp útiæfingaaðstöðu og segir Þórður að deiliskipulagsv- inna vegna þess sé hafin hjá Borg- arbyggð. „Því fögnum við mjög,“ segir Þórður en svæðið sem er til skoðunar eru gömlu ruslahaugarn- ir skammt fyrir ofan bæinn Braut- arholt ofan við Borgarnes. hlh Stutt er í að skotæfingaaðstaðan opni formlega. Skotfélag Vesturlands hélt sitt fyrsta mót Hressir skotfélagar sem tóku þátt í fyrsta skotmótinu. Góð stemning á fjórðu Mýraeldahátíðinni Góð stemning var í kaffisölutjaldi kvenfélagskvenna. Ungir sem aldnir fengu að prófa nýjustu vélarnar. Elías Hartmann Hreinsson og Anna María Grönfeldt hjá Sláturfélagi Suðurlands sáu um kynningarbás fyrirtækisins á hátíðinni. Ib Göttler og Óskar Harðarson hjá Kemi voru hressir. Pétur Már Jónsson og Gísli Guðjónsson færðu gestum ófáa skammta af kjötsúpu fyrir hönd borgfirskra sauðfjárbænda. Góð mæting var á hátíðina sem fór fram í fjórða skipti. Hér er Mýranautið að fleygja einum áskorandanum af mörgum af baki.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.