Skessuhorn - 09.04.2014, Page 27
27MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Eflaust hafa einhverjir Borgnesing-
ar haldið að um aprílgabb væri að
ræða þegar farið var að grafa fyrir
þvottaplani hjá Olís þriðjudaginn 1.
apríl sl. Þar sem verkinu var fram-
haldið daginn eftir fóru menn þó
að trúa að þetta væri staðreynd, eft-
ir ríflega tveggja ára tíma án þvotta-
plans í einum af fjölfarnari bæjum
á landsbyggðinni. Austan við Olís
verður planið og verður það tilbúið
snemma í sumar. mm/ Ljósm. Tolli.
Hestavöru- og fataverslunin Knap-
inn í Borgarnesi er tíu ára. Í til-
efni af áfanganum eru kaupmenn-
irnir Sveinn Harðarson og Gunn-
fríður Harðardóttir með 15% af-
slátt af öllum vörum úr eigin inn-
flutningi; þ.e. reiðfatnaði, reið-
tygjum, reiðhjálmum og fleiru í
þessari viku. Á sjálfan afmælisdag-
inn, fimmtudaginn 10. apríl, verð-
ur hins vegar slegið upp veislu
þar sem ýmis önnur tilboð verða í
gangi, veitingar og skemmtun. Frá
klukkan 15-17 geta börnin fengið
að skreppa á hestbak í boði Knap-
ans og Guðrúnar Fjeldsted. Kaffi
og meðlæti verður í boði auk þess
sem Mýranaut gefur að smakka
gómsætt nautakjöt beint af grill-
inu. Spilaðir og sungnir verða
sveitasöngvar eftir klukkan 16.
Gestaleikur verður einnig í boði.
„Við hlökkum til að sjá ykkur,“
segir í tilkynningu frá Svenna og
Guffý í Knapanum.
Verslunin er opin klukkan 10-
18 virka daga og 10-14 á laugar-
dögum.
mm
Á síðustu árum hefur leiguverð á
íbúðum farið hækkandi og erfitt er
að fá íbúðir til leigu á viðráðanlegu
verði. Í Reykjavík sem dæmi, hefur
leiguverð hækkað um 8,7% á einu
ári og um 30% síðastliðin þrjú ár.
Það er þó ekki það eina sem hefur
hækkað því matvæli, bensín og aðr-
ar nauðsynjar hafa einnig hækkað.
Þetta er því mjög erfitt ástand fyr-
ir námsmenn sem eru til dæmis á
námslánum.
Skólaárið 2013 mátti einstakling-
ur vera með 700 þúsund í heildar-
tekjur yfir árið, allt umfram það
skerðir námslánin. Tökum sem
dæmi einstakling sem er í sumar-
vinnu með 250 þúsund á mánuði
í heildartekjur og er kominn með
750 þúsund eftir júní, júlí og ágúst.
Það þýðir að það er ómögulegt fyr-
ir hann að vinna með skóla án þess
að námslánin skerðist frekar. Ekki
hafa allir getu í að vinna 100% með
skóla því sumir þurfa að hafa meira
fyrir náminu en aðrir og sjá sér því
ekki fært um að gera svo.
Leigumarkaðurinn er mikið í um-
ræðunni, enda engin furða. Þann 3.
mars síðastliðinn birtist frétt í fjöl-
miðlum þess efnis að verið væri að
gera upp gáma til þess að leigja út.
Þetta eru 27m2 og áætlað leiguverð
er 80.000 krónur á mánuði. Þessar
íbúðir myndu henta vel fyrir ein-
staklinga en ólíklegt er að náms-
maður hafi efni á þessu verði. Ein-
staklingur sem borgar 30.000 kr. í
bílakostnað, 7000 kr. í nettengingu,
5000 kr. í hita/rafmagn og 45.000
kr. í mat á eftir 87.000kr. til að
leigja sér íbúð miðað við 140.000
kr. mánaðarleg námslán. Hann á
þá eftir að kaupa sér námsbækur,
borga skólagjöld og annað.
Leigumarkaðurinn eins og hann
er í dag er orðinn námsmönnum
ómögulegur og erfitt er að safna sér
fyrir sinni fyrstu íbúð. Framboðið
á viðráðanlegum íbúðum þarf að
aukast svo unga fólkið eigi mögu-
leika á að kaupa sér sitt fyrsta hús-
næði.
Hvað varðar kaup á íbúð þá er
yfirleitt gott að geta greitt um 20%
af heildarverði hennar. Segjum sem
svo að ef íbúð kostar 20 milljónir
þá þarf einstaklingur að geta reitt
fram 4 milljónir í útborgun til þess
að geta keypt hana. Svo ekki sé tal-
að um greiðslumat og annað sem
fáir námsmenn standast. Hvernig
eiga þeir að geta safnað slíkri upp-
hæð á meðan skólagöngu stendur?
Hvernig eigum við unga fólkið að
geta safnað og keypt íbúð að skóla
loknum?
Harpa Jónsdóttir og Kristinn
Lúðvíksson.
Höf. eru nemar í tómstunda- og
félagsmálafræði við HÍ.
Ert þú með hugmynd sem gæti
bætt mannlífið eða umhverfið í
bænum okkar? Ef svo er, þá þurfum
við að tala saman. Það skiptir ekki
máli hvort hugmyndin þín sé risa-
stór eða pínulítil, gáfuleg eða snar-
geggjuð. Ef þú ert með hugmynd
þá viljum við fá að heyra hana. Þá
þurfum við að tala saman.
Í stefnu hins alþjóðlega stórfyr-
irtækis Apple má finna þessi orð:
„Heill þeim geggjuðu, uppreisnar-
seggjunum og vandræðagemling-
unum. Heill þeim sem sjá hlutina
frá öðrum sjónarhornum en aðr-
ir. Þá sem sumir álíta geggjaða telj-
um við vera snillinga, vegna þess að
þeir sem eru nógu geggjaðir til að
halda að þeir geti breytt heiminum
eru einmitt þeir sem gera það.“
Stjórnendur Apple hafa áttað sig
á því að allar hugmyndir eiga er-
indi, sama hversu geggjaðar eða
heimskulegar þær virðast vera við
fyrstu sýn. Allar hugmyndir eiga
það skilið að þeim sé komið á fram-
færi og að á þær sé látið reyna, því
heimskuleg hugmynd getur orðið
að einhverju sem breytir heiminum
– eða Skaganum.
Síðastliðið haust hélt Samfylk-
ingin á Akranesi málefnafundi þar
sem íbúum bæjarins gafst kostur á
að koma og ræða hin ýmsu mál sem
varða stjórnsýslu bæjarins, skipulag,
umhverfi og lífsgæði íbúa á Akra-
nesi. Fundirnir voru vel sóttir og
afraksturinn af þeim eru ótal hug-
myndir sem frambjóðendur flokks-
ins fá nú tækifæri til að vinna úr og
marka þannig stefnuna til framtíð-
ar.
Nú tökum við upp þráðinn þar
sem frá var horfið og efnum að nýju
til samtals við bæjarbúa undir yfir-
skriftinni „Tölum saman.“ Við vilj-
um heyra hvað Skagamenn hafa að
segja um fjölskylduna og velferð
hennar, um atvinnulífið, menningu
og stjórnsýslu bæjarins, um skólana
okkar, íþróttir og æskulýðsstarf
og um fegrun bæjarins og skipu-
lag. Við viljum fá fleiri hugmyndir,
fleiri skoðanir og fleiri sjónarhorn.
Við viljum heyra hvað þú hefur að
segja.
Það skiptir ekki máli hvort hug-
myndin þín sé stór eða lítil, geggj-
uð eða gáfuleg, úthugsuð eða alger-
lega á byrjunarreit. Þú þarft ekki
einu sinni að hafa einhverja sérstaka
hugmynd, það nægir að hafa áhuga
og löngun til að taka þátt í því að
gera bæinn okkar að enn betri stað
til að búa á.
Fundirnir eru haldnir í húsnæði
Samfylkingarinnar að Stillholti 16-
18, tímasetningar eru nánar aug-
lýstar í þessu blaði og á face book
síðu flokksins. Við hvetjum Ak-
urnesinga til að koma, hitta fram-
bjóðendur og skiptast á hugmynd-
um og skoðunum - því við þurfum
að tala saman.
Valgarður Lyngdal Jónsson
Höfundur skipar 2. sætið á lista
Samfylkingarinnar á Akranesi.
Nýlega samþykkti meirihluti há-
skólakennara að fara í verkfall ef
kjarasamningar næðust ekki og
leggja niður störf prófatímabilið
25. apríl til 10. maí 2014.
Ég er á fyrsta ári í tómstunda-
og félagsmálafræði og hef ég hugs-
að mikið út í það hvað gerist ef það
yrði verkfall og hvaða áhrif það
myndi hafa á okkur nemendurna
sem og skólann sjálfan og starfs-
fólk hans.
Það eru margar spurningar í gangi
hjá háskólanemum þessa dagana
eins og til dæmis hvenær lokaprófin
verða og hvenær útskrift yrði. Það
myndi hafa áhrif á útborgun náms-
lána sem myndu seinka. Nemendur
myndu fara seinna í sumarfrí og þar
með myndu þeir sem hafa nú þegar
ráðið sig í vinnu ekki getað byrjað á
tilsettum tíma.
Orðrómur hefur verið innan
veggja skólans að prófin yrðu hald-
in jafnvel í ágúst og myndi það
skerða atvinnumöguleika nemenda
í sumar til að afla sér fjár fyrir næst-
komandi skólaár og gæti orðið til
þess að einhverjir hellist úr hópn-
um vegna bágrar fjárhagsstöðu.
Þórey Hólm Heimisdóttir
Ég tel það lán mitt að tengjast
báðum grunnskólunum á Akra-
nesi. Sjálfur gekk ég í Brekkubæj-
arskóla sælla minninga og tvær af
dætrum mínum hafa lokið námi við
Grundaskóla og sú þriðja unir vel
sínum hag þar í þriðja bekk.
Eðli málsins samkvæmt hafa
skólarnir vaxið og dafnað með bæj-
arfélaginu. Svo vel að þeir eru hvor
um sig orðnir með stærstu vinnu-
stöðum bæjarins. Fjöldi nemenda
er nú kominn að þolmörkum hús-
næðis skólanna. Í Brekkubæjarskóla
eru nú ríflega 400 nemar við nám
og í Grundaskóla eru þeir rúmlega
600 talsins. Í báðum skólum eru því
öll rými nýtt og gott betur.
Árgangar hafa stækkað og munu
stækka enn frekar á komandi árum.
Fyrir þann tíma verður því að liggja
fyrir hvernig við viljum byggja upp
skólana okkar og í þeirri vinnu verð-
um við ávallt að horfa til framtíðar.
Þar þarf að huga að ýmsum þátt-
um. Mikilvægt er að nálgast hlutina
á sem hagkvæmastan hátt, hvern-
ig bætt verður við húsnæði um leið
og tryggt verður að skólastarfið sé
sem allra best. Skagamenn eiga að
tryggja með stolti sem bestar að-
stæður fyrir bæði nemendur og
starfsmenn. Skóli er meira en hús.
Við eigum að mæta þessum áskor-
unum með opnum huga. Í þessari
vinnu eigum við að sameina krafta
bæjarbúa öllum til heilla. Getum
við tryggt stoðirnar og gert enn
betur með auknum tengslum skóla-
stiga á Akranesi? Getum við aukið
gæði starfsins með tryggum kjör-
um starfsmanna en um leið hagrætt
þannig að hverri krónu sem sé best
varið með hagsmuni nemanda að
leiðarljósi?
Á næstu vikum þurfa frambjóð-
endur til bæjarstjórnar á Akranesi
að ræða stefnumál sín í skólamál-
um. Þeirri umræðu ætla ég að mæta
ásamt félögum mínum með opnum
huga. Tryggja lifandi umræðu um
framtíðarskipan skólamála á Akra-
nesi með það eitt að markmiði að
gera gott skólastarf enn betra.
Skólakveðjur,
Þórður Guðjónsson.
Höfundur skipar 6. sæti á lista
Sjálfstæðismanna á Akranesi
Pennagrein
Með opnum huga
Pennagrein
Verkfall háskólakennara:
Hvaða áhrif mun það hafa?
Byrjað að grafa
fyrir þvottaplani
Pennagrein
Við þurfum að tala saman
Pennagrein
Húsnæðismál unga fólksins
Sveinn og Guffý í Knapanum.
Knapinn í Borgarnesi tíu ára