Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Side 28

Skessuhorn - 09.04.2014, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Um tveggja ára skeið hafa sveitar- félögin fimm á Snæfellsnesi unn- ið að gerð svæðisskipulags. Mikill einhugur hefur verið við verkið og fjölmargir komið að málum. Svæð- isskipulagið er unnið undir leiðsögn Bjargar Ágústsdóttur og Matthild- ar Kr. Elmarsdóttur hjá ráðagjafa- fyrirtækinu Alta. Samhliða svæðis- skipulagi hefur verið unnið að und- irbúningi og stofnun Svæðisgarðs Snæfellsness en formleg stofnun hans fór fram 04.04.2014. Svæðisskipulagstillagan er nú til umsagnar hjá umsagnaraðilum og verður kynnt fyrir almenningi inn- an tíðar og síðan auglýst formlega samkvæmt skipulagslögum síðar í vor. Svæðisskipulag Snæfellsness 2014 - 2026 felur í sér sameigin- lega sýn á þróun svæðisins frá sjón- arhóli sveitarfélaganna, sem mótuð er í nánu samstarfi við atvinnulífið, félagasamtök og íbúa. Nánar tiltekið er hlutverk svæð- isskipulagsins að: • veita yfirlit yfir auðlindir og sérkenni í náttúrufari, landslagi, menningu og sögu Snæfellsness. • greina hvernig hægt er að nýta auðlindirnar og viðhalda staðar- anda og sérkennum og með því styðja við þróun á vörum og þjón- ustu á svæðinu. • marka stefnu um viðhald og nýt- ingu sérkenna og verðmæta svæð- isins. Svæðisskipulagið er „stefnu- markandi skipulagsáætlun,“ sem setur fram heildstæða almenna stefnu sem segir í hvaða átt menn ætla að ganga og í grófum drátt- um hvernig, en útfærir ekki land- notkun á uppdrætti eða nákvæma skipulagsskilmála. Svæðisskipulag- ið skiptist í þrjá meginhluta: Fram- tíðarsýn, grunn og áætlun. Að auki er því lýst hvernig staðið verður að framfylgd áætlunar. Framtíðarsýn Dregin er upp mynd af því hvern- ig við viljum að Snæfellsnes líti út þegar til framtíðar er litið. Jafn- framt er lagður grunnur að sam- eiginlegri ímynd (vörumerki) fyr- ir allt Snæfellsnes sem nýtt verði markvisst í allri markaðssetningu og kynningu fyrir snæfellska vöru, þjónustu og svæðið í heild. Grunnur Í grunninum er gerð grein fyrir helstu verðmætum og tækifærum sem liggja í umhverfi, menningu og mannauði Snæfellsness. Dregin eru saman helstu verðmæti og tækifæri Snæfellsness sem fulltrúar í vinnu- hópum tilgreindu eða voru sótt í ýmsar heimildir. Umfjölluninni er ekki ætlað að vera tæmandi, heldur gefa grófa mynd af því sem svæðið býr yfir. Ítarlegri umfjöllun um um- hverfisaðstæður, sögu og menningu svæðisins er að finna í umhverfislýs- ingu sem fylgir með tillögunni. Áætlun Áætlunin sjálf, sem skilgreinir mark- mið og leiðir að þeim, er sett fram í sex málaflokkum eða þemum, þ.e. lífsgæði, landslag, matur, iðnaður og skapandi greinar, ferðalag og að lokum grunngerð og stjórnun. Þessi þemu byggja á hlutverki svæðis- skipulagsins og greiningu á efni frá vinnuhópum. Hvert þema skiptist upp í nokk- ur viðfangsefni. Viðfangsefnin eru útfærð með markmiðum og leiðum að þeim. Markmiðin eru þrennskonar: o Markmið sem snúa að mótun um- hverfis og byggðar, til nánari út- færslu í aðal- og deiliskipulagi og við veitingu framkvæmda- og bygg- ingarleyfa. o Markmið sem snúa að þróun at- vinnustarfsemi, þ.m.t. vöruþróun og þróun opinberrar og einkarek- innar þjónustu við heimamenn og gesti, til nánari útfærslu í fjárhags-, framkvæmda- og verkefnaáætlunum sveitarfélaganna í samvinnu við at- vinnulífið, stofnanir og félagasam- tök. o Markmið sem snúa að þekkingu, miðlun og markaðssetningu, til nán- ari útfærslu í fjárhags-, framkvæmda- og verkefnaáætlunum sveitarfélag- anna í samvinnu við atvinnulífið, stofnanir og félagasamtök. Framtíðarmynd af Snæfellsnesi Í svæðisskipulagstillögunni er sett fram sú framtíðarmynd að á Snæ- fellsnesi virði íbúar einstakan nátt- úru- og menningararf, nýti hann og viðhaldi honum, með áherslum í byggðaþróun, atvinnustarfsemi, skóla- og rannsóknarstarfi og dag- legu lífi. Svæðið verði því eftirsótt til búsetu og ferðalaga og „Snæfells- nes“ verði sterkt vörumerki. Framtíðarmyndin lýsir því sem samstarfi sveitarfélaganna og at- vinnulífsins er ætlað að snúast um. Ætlunin er að samstarfið ýti undir að samfélagið allt nýti sér þau verð- mæti sem felast í náttúru- og menn- ingarauði Snæfellsness og að byggð- in og umhverfismótunin taki mið af honum; svæðinu og samfélaginu til framdráttar. Svæðisskipulagið er verkfæri til að stuðla að þessu. Styrking staðaranda og uppbygging vörumerkis Svæðisskipulagsáætlunin miðar að því að styrkja staðaranda Snæfells- ness. Hún ýtir undir það að unnið sé út frá sérkennum svæðisins við mót- un umhverfis og byggðar, þróun at- vinnustarfsemi og uppbyggingu þekkingar, miðlun og markaðssetn- ingu. Með því er stuðlað að því að Snæfellsnes verði sterkt vörumerki. Útfærsla stefnu svæðisskipulags Stefna svæðisskipulagsins verð- ur útfærð nánar með landnotkun- arákvæðum og skipulagsskilmálum í aðalskipulagi sveitarfélaganna og deiliskipulagi einstakra svæða. Með tímanum verði framsetning aðalskipulags allra sveitarfélaganna samræmd þannig að auðvelt verði að draga upp heildarmynd af stefnu um landnotkun. Svæðisskipulagið er sóknaráætl- un Snæfellsness og leiðarljós fyr- ir Snæfellinga. Með því að fylgja svæðisskipulaginu eftir aukum við samfélagsvitund íbúanna og aukum og eflum byggð á Snæfellsnesi. Við sköpum framtíðina. Tillöguna og fylgigögn hennar er að finna á eftirfarandi vefslóð:http:// ssk-snaef.alta.is/ Gretar D. Pálsson Formaður svæðiskipulagsnefndar Snæfellsness Ég er fyrsti flutn- ingsmaður frumvarps um lögbindingu lág- markslauna sem lagt var fram á Al- þingi á dögunum. Steingrímur J. Sig- fússon alþingismaður VG og Birgitta Jónsdóttir alþingismaður Pírata eru meðflutningsmenn þingmálsins. Verði frumvarpið að lögum mun upp- hæð lægstu launa verða bundin í lögum og fylgir þróun neyslu- og framfærslukostn- aðar í landinu með tengingu við neysluvið- mið velferðarráðuneytisins, en þau byggj- ast á mælingum á neyslu Íslendinga og ráð- stöfun fjár til helstu útgjaldaflokka einstak- linga og heimila. Sá eiginleiki neysluvið- miðs, að sýna raunveruleg útgjöld vegna framfærslu, er vel til þess fallinn að mæla breytingar á framfærslukostnaði í landinu. Tengsl milli neysluviðmiðs og lægstu launa ættu því að tryggja að lágmarkslaunin fylgi verðlagsþróun. Vinnumálastofnun er ætl- að að hafa eftirlit með því að lögunum sé framfylgt og fær í þeim tilgangi aðgang að launaútreikningum atvinnurekenda. Umbóta er þörf Enda þótt verkalýðshreyfingin hafi gert margt vel á undanförnum árum verður ekki fram hjá því litið að lægstu laun sem heim- ilt er að greiða hér á landi eru alltof lág og í raun alls ekki sæmandi í okkar þjóð- félagi sem telst vel efnum búið á heimsvísu. Frumvarp okkar þremenninganna miðar vissulega að því að hækka lægstu launin og tryggja þau en því er alls ekki stefnt gegn hlutverki verkalýðsfélaga sem munu hér eftir sem hingað til gegna meginhlutverki í baráttunni fyrir bættum hag almennings og vera helsti málsvari launafólks í samskipt- um þess við atvinnurekendur. Frumvarpi um lögbindingu lágmarks- launa er ekki ætlað að fara fram með yfirboð, heldur taka mið af raunsæjum grunni og ráðstöfununum er ætlað að falla að því félagslega stuðningskerfi sem hér er í landi svo sem vaxtabótum, húsaleigubót- um, barnabótum og þrepaskiptu skattkerfi. Viðhorf til hækkunar lægstu launa og launajöfnuðar Ósjaldan heyrast háværar raddir gegn hækkunum lægstu launa frá atvinnulífinu, einnig frá ríkinu, og nú síðast frá Seðla- banka Íslands þegar launafólk á almenna vinnumarkaðnum gerði kröfu til sérstakr- ar hækkunar á lægstu laun. Láglaunafólki virðist öllum öðrum fremur ætlað að bera ábyrgð á verðbólgu/þenslu og annari efna- hagslegri óáran of því heyrist einatt hljóð úr horni ef krafist er hærri launa þeim til handa. Samanburður launa innan launþega- hreyfingarinnar hefur verið ákveðinn drag- bítur á verulega hækkun lægstu launa. Nauðsynlegt er að horfast í augu við það. Þrátt fyrir það að hlutfall Íslendinga undir lágtekjumörkum sé verulega lægra en innan ESB þá er enn mikið verk að vinna hjá aðilum vinnumarkaðarins við að ná launum upp miðað við raunframfærslu fólks, þar sem allir þættir eru teknir inn í myndina þó án neinna lúxusviðmiða. Vinnumarkaðurinn glímir enn við mik- inn kynbundinn launamun og benda má á bág kjör t.d. erlends verkafólks, umönnun- arstétta og almenns verkafólks í landinu. Verkakonur voru t.d. með lægstu laun full- vinnandi launamanna hér á landi árið 2012. Lögbundin lágmarkslaun gætu stuðlað að breytingum á þessu. Lágmarkslaun gegn félagslegum und- irboðum Þeim fullyrðingum hefur verið haldið á lofti að lögbinding lágmarkslauna veikti verka- lýðshreyfinguna og að þeirra væri ekki þörf þar sem sterk verkalýðshreyfing starfar. Ég tel þessa staðhæfingu vera barns síns tíma og veruleikinn er sá að í 21 ríki af 28 ríkj- um ESB eru lögbundin lágmarkslaun og í Þýskalandi sem er fjölmennasta ríki ESB er stefnt að lögbindingu lágmarkslauna 1. janúar 2015. Vinstri menn settu þá kröfu fram og börðust fyrir henni. Helsta ástæða þess að lögbinding lágmarkslauna þykir nauðsynleg eru svonefnd félagsleg undir- boð sem fylgja flutningum vinnandi fólks milli ólíkra hagsvæða. Fólk sem býr við lág laun í heimalandi sínu er líklegt til að sætta sig við rýrari kjör en almennt eru í boði á efnaðri svæðum og verður þetta til þess að lækka lægstu launin. Ýmsar vísbendingar eru um að hér á landi sé einmitt sótt hart að lægri enda launaskalans. Í Kanada og í Bandaríkjunum eru lög- bundin lágmarkslaun og enn fremur í fjölda annarra ríkja sem teljast hafa þróað efnahagskerfi og hefur útbreiðslan aukist frá síðustu aldamótum og ein skýringin á því er talin vera vaxandi undirboð á vinnu- markaði í kjölfar aukins flæðis vinnuafls á milli ríkja. Þróun undanfarinna ára og ára- tuga sýnir að þörfin fyrir lögbindingu lág- markslauna er vissulega til staðar í nútíma- samfélagi. Lögbindingunni er ekki ætl- að að veikja kjarabaráttuna heldur þvert á móti að bregðast við aðkallandi vandamáli og verða hvatning til þess að ná fram betri árangri til handa launafólki. Samfélagið ber ábyrgð á því fólki sem býr við lökust kjörin og því er það líka á ábyrgð löggjafans ekki síður en aðila vinnu- markaðarins að fólki séu tryggð mannsæm- andi kjör. Lilja Rafney Magnúsdóttir Höf. er alþ.m. VG í Norðvesturkjördæmi. Pennagrein Svæðisskipulag Snæfellsness Pennagrein Frumvarp um lögbindingu lágmarkslauna

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.