Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 31

Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 31
31MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Mikill fögnuður braust út í Stykk- ishólmi á sunnudagskvöldið þegar Snæfellskonur unnu Hauka í þriðja leiknum í úrslitaeinvíginu um Ís- landsmeistaratitilinn í körfubolta. Þetta var í fyrsta sinn sem kvenna- lið Snæfells verður Íslandsmeistari, en kvennaboltinn hefur verið að byggjast upp jafnt og þétt í Hólm- inum síðustu árin. Árangur Snæ- fellskvenna á þessu tímabili er frá- bær. Þær lönduðu deildarmeistara- titli og léku til úrslita í Bikarkeppn- inni. Snæfell sýndi það og sannaði í úrslitaeinvíginu gegn Haukum að það er besta liðið, mesta breidd ungra leikmanna, en enginn lék þó betur en reynsluboltinn Hildur Sigurðardóttir sem að leik loknum var valin besti leikmaður úrslita- keppninnar. Í tveimur fyrstu leikjunum í úr- slitaeinvíginu var Snæfell með und- irtökin frá byrjun. Það var ekki í leiknum í Hólminum í gærkveldi. Haukarnir voru með frumkvæðið fram af. Voru yfir eftir fyrsta leik- hluta 12:10 og í hálfleik var staðan 25:23 fyrir Snæfelli. Það var síðan í þriðja leikhluta sem Snæfellskon- ur gerðu út um leikinn með því að skora 19 stig í röð. Munurinn var 12 stig fyrir lokaleikhlutann, 46:34. Haukakonur náðu að rétta hlut sinn í lokafjórðungi og aftur var kominn spenna í leikinn í stöðunni 48:42. En Snæfellskonur héldu áfram að spila sinn leik og luku leiknum og mótinu á öruggum sigri; 69:62. Það var ekki aðeins Íslandsmeist- aratitlinum sem forráðamenn Snæ- fells höfðu ástæðu til að fagna með stúlkunum, heldur því að Stykkis- hólmsbær styrkti körfuknattleiks- deildina með 1200 þúsund krón- um í tilefni Íslandsmeistaratitilsins. Þá fékk liðið hálfa milljón frá Dom- inos, styrktaraðila deildarinnar. Titill sem stendur upp úr hjá Hildi Sem fyrr segir var Hildur Sigurð- ardóttir valin besti leikmaður út- slitakeppninnar. Hún fór að heim- an úr Stykkishólmi á sautjánda ári og komst fljótlega í hóp bestu körfuknattleikskvenna í landinu. Hún varð nokkrum sinnum meist- ari með KR en segir titilinn núna þann sem stendur upp úr. Hildur kom aftur heim í Hólminn sumar- ið 2011 staðráðin í að hjálpa efni- legu liði Snæfells að verða besta lið landsins. Það tókst henni í þess- ari útslitakeppni. Sigur Snæfells er ekki síst stór fyrir það að leika nán- ast úrslistakeppnina án liðsinnis bandaríska leikmannsins Chynnu Brown. Stigaskorið hjá Snæfelli í þessum þriðja leik úrslitanna var þannig: Hildur Sigurðardóttir 20 stig, 13 fráköst og 9 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 17 stig, 10 frá- köst og 5 varin skot, Hildur Hjör- dís Björgvinsdóttir 13 stig, Guð- rún Gróa Þorsteinsdóttir 11 stig, 10 fráköst og 3 varin skot, Chynna Brown 4 stig og 5 fráköst, Eva Mar- grét Kristjánsdóttir 2 stig og 4 frá- köst og Alda Leif Jónsdóttir 2 stig. þá Systkinin Tinna og Magnús Ingi Helgabörn úr Hvalfjarðarsveit urðu um helgina sigursælasta parið í tvenndarleik á Íslandsmóti í bad- minton. Þau urðu Íslandsmeistar- ar í tvenndarleik sjöunda árið í röð. Tinna gerði gott betur en landa titlinum í tvenndarleik því hún vann einnig í einliðaleik og tvíliða- leik og varð því þrefaldur Íslands- meistari. Þetta var í annað sinn sem Tinna nær þessum árangri, en hún varð einnig þrefaldur meistari 2009. Magnús Ingi bróð r hennar varð þrefaldur meistari fyrir þrem- ur árum, 2011. Systkinin keppa fyr- ir TBR en búa í Danmörku. Tinna er enn að æfa og keppa á fullu en Magnús Ingi hefur dregið úr æfing- um og keppni. Þau eru í sitthvoru íþróttafélaginu í Danmörku. Tinna vann sigur á Margréti Jó- hannsdóttur í hörkurimmu í úrslit- um einliðaleiksins. Hún hafði ásamt Erlu Björg Hafsteinsdóttur betur í úrslitum tvíliðaleiksins gegn Elínu Þóru Elíasdóttur og Rakel Jóhann- esdóttur. Í tvenndarleik kepptu þau Tinna og Magnús Ingi við Atla Jó- hannesson og Snjólaugu Jóhanns- dóttur og unnu í tveimur lotum, 21:17 og 21:15. þá Dansparið unga Brynjar Björnsson, Borgfirðingur frá Neðri Hrepp í Skorradal, og Perla Steingríms- dóttir keppa í undanúrslitaþætti Ísland got talent sunnudaginn 13. apríl nk. Eins og fram kom í viðtali við Brynjar í aðventublaði Skessu- horns hafa þessi duglegu ungmenni æft dans í fjöldamörg ár og unnið marga Íslands- og bikarmeistara- titla. Þau hafa farið á mörg heims- meistaramót fyrir Íslands hönd og staðið sig afar vel. Sumarið 2013 fóru þau til Kína og náðu þar 10. sæti af 130 danspörum í flokki full- orðinna, en þau eru aðeins 16 og 17 ára. Brynjar og Perla eru bæði í landsliði Íslands í dansi og voru valin sem afreksefni hjá ÍSÍ sem er mikill heiður. Einnig hefur Perla fengið sérstaka viðurkenningu frá Afrekskvennasjóði ÍSÍ fyrir góðan árangur þá aðeins 14 ára gömul. Brynjar og Perla eru bæði á fyrsta ári í menntaskóla, Brynjar á myndlistarbraut í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ og Perla í Versló. Þau eru sannarlega listrænt par og hefur Brynjar t.d. unnið keppni í hönnun á stuttermabolum og fyr- ir nokkrum dögum unnu þau sam- an hönnunarkeppni Kjörís. Brynj- ar veit fátt skemmtilegra en að mála og hefur hann verið dugleg- ur að fjármagna dansinn með sölu á málverkum. Brynjar og Perla hafa núna komið fram tvisvar í keppninni Ís- land got Talent með dansatriði og í hvert skipti hafa þau notað mál- verk eftir Brynjar sem hluta af at- riðinu. Það verður því spennandi að sjá málverkið sem Brynjar hef- ur málað fyrir undanúrslitin en at- riðið þeirra er víst stórglæsilegt. Borgfirðingar eru hvattir til að styðja við bakið á þessum ungu og hæfileikaríku dönsurum. mm Magnús Ingi og Tinna Helgabörn. Ljósm. badminton.is Systkinin úr Hvalfjarðarsveitinni sigursælasta parið í badmintoninu Ungur Borgfirðingur í undan- úrslitum Ísland got talent Héraðssambönd á svæðinu frá Kjal- arnesi í suðri vestur á sunnanverða Vestfirði hafa síðustu árin haft með sér samstarf sem kallast SamVest. Samstarfið byggist á því að gefa börnum og unglingum sem æfa frjálsar íþróttir kost á því að hittast á sameiginlegum æfingum sem haldn- ar eru nokkrum sinnum á ári. Síðast- liðinn sunnudag var ein af þessum samæfingum haldin í Laugardals- höll. Þar voru mætt 27 ungmenni af umræddu svæði, flestir frá UDN en mikill frjálsíþróttaáhugi er á svæði Dalamananna og Norður-Breiðfirð- inga um þessar mundir, aðallega á Reykhólum. Hópurinn æfði undir stjórn nokk- urra þjálfara á þessari æfingu, m.a. þeirra Gunnars Páls Jóakimsson- ar, Hlyns Guðmundssonar og Óð- ins Björns Þorsteinssonar. Á þess- ari æfingu fengu krakkarnir að kynn- ast greinum sem mörg þeirra hafa ekki æft eins og t.d. sleggjukasti, en einnig stökkum og hlaupum. Gunn- ar Páll fór m.a. yfir hlaupaprógr- amm sem hann hefur sniðið sér- staklega að þörfum barna og ung- linga á landsbyggðinni, sem kannski æfa eins síns liðs við ófullkomnar að- stæður. Skafti Steinólfsson sem á sæti í framkvæmdanefndinni fyrir Sam- Vest sagði að æfingin hefði tekist vel og áhuginn hafi verið mikill hjá þess- um duglega hópi sem mætti á æf- inguna. Með Skafta í framkvæmda- hópnum eru Björg Ágústsdóttir í Grundarfirði og Hrönn Jónsdóttir í Borgarfirði. Í fyrra var í fyrsta sinn sent sameiginlegt lið SamVest í Bik- arkeppni unglinga 15 ára og eldri og stóð liðið sig vel í þeirri keppninni. þá/ Ljósm. Björg Ágústsd. Samæfing SamVest í Laugardalshöll Bróðurpartur hópsins frá SamVest á æfingunni ásamt þjálfurum. Teygt á að lokinni æfingunni. Snæfellskonur Íslandsmeistarar í fyrsta sinn Sigri fagnað og Íslandsmeistarabikarinn í höfn. Ljósm. sá. Þjálfarinn kampakátur. Ljósm. sá. Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.