Skessuhorn - 10.12.2014, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Vesturlandsliðin
heppin í
bikardrætti
VESTURLAND: Í hádeg-
inu í gær var dregið í 8-liða
úrslit Powerade-bikars karla
og kvenna. Í karlakeppninni
fær Skallagrímur heimaleik á
móti Fjölni og Snæfell á móti
Tindastóli, það er að segja að
því gefnu að Snæfell hafi unn-
ið Val í Hólminum í gær. Úr-
slit lágu ekki fyrir áður en
Skessuhorn var sent í prent-
un. Það var í gær eini leikur-
inn sem eftir var í 16-liða úr-
slitunum. Í kvennakeppninni
fær Snæfell heimaleik á móti
sigurvegaranum í leik FSu og
Hrunamanna sem fram fer nk.
föstudag. Leikdagar í Powe-
rade bikarnum verða 17.-19.
janúar 2015. Varla verður
annað sagt en Vesturlandslið-
in hafi í heild verið heppin í
þessum drætti að fá öll heima-
leiki, en andstæðingarnir eru
að vísu allir sterkir. Með-
al annarra viðureigna í 8-liða
úrslitunum má nefna að kar-
lalið KR og Keflavíkur mæt-
ast og hjá konunum Grinda-
vík og Haukar, Njarðvík-KR
og Keflavík-Breiðablik.
-þá
Aukið líf í fast
eignaviðskiptum
VESTURLAND: Fjöldi
þinglýstra samninga um
sölu fasteigna á Vesturlandi í
nóvember var 39. Þar af voru
16 samningar um eignir í fjöl-
býli, 15 samningar um eignir í
sérbýli og átta samningar um
annars konar eignir. Heildar-
veltan var 865 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
22,2 milljónir króna. Af þess-
um 39 samningum voru 23
um eignir á Akranesi. Þar af
voru 14 samningar um eignir
í fjölbýli, átta samningar um
eignir í sérbýli og einn samn-
ingur um annars konar eign.
Heildarveltan var 544 millj-
ónir króna og meðalupphæð á
samning 23,6 milljónir króna.
Miðað við fasteignamarkað-
inn undanfarna mánuði má
merkja um þriðjungs fjölgun
samninga um sölu. Á þessu ári
hefur verið algengt að um 30
eignir hafi skipt um eigendur
á mánuði.
-mm
Tíu umferðar
óhöpp
LBD: Hálka, krapi og slæmt
veður hefur reynst ökumönn-
um erfið síðustu vikuna. Alls
hafa orðið tíu umferðaró-
höpp í umdæmi lögreglunnar í
Borgarfirði og Dölum síðustu
daga. Að sögn lögreglu má
rekja flest óhappanna til hálku,
en um helmingur þeirra varð
að kvöldi mánudags. Meðal
annars þegar vöruflutninga-
bíll með tengivagn fauk út af.
Fólksbifreið sem skilin var eft-
ir mannlaus á svipuðum slóð-
um fauk út af veginum og lá
fyrri utan veg á toppnum er
að var komið á þriðjudags-
morgun. Vindhraðinn undir
Hafnarfjalli náði hámarki um
klukkan 23:00 er mælir vega-
gerðarinnar sýndi 60 metra/
sek hviður en veginum var
lokað um klukkan 21:30. Öll
þessi óhöpp voru án slysa. –þá
Í tilefni veðurfars má benda fólki á að
huga að því að gefa smáfuglunum.
Einnig er vert fyrir hrossaeigendur að
huga vel að útiganginum. Nú er hætta
á hnjúskamyndun.
Vetrartíð er í veðurkortunum næstu
daga. Á fimmtudag er spáð hvassri
norðanátt og snjókoma eða éljum, en
yfirleitt þurru og björtu veðri sunn-
anlands. Á föstudag verði minnkandi
norðanátt og él norðaustanlands en
léttir víða til annars staðar. Vestan 5-10
vestantil undir kvöld og él. Talsvert
frost. Á laugardag er útlit fyrir austlæga
eða breytilega átt 5-13 og snjókomu
eða él, einkum sunnan til en vaxandi
norðaustanátt um kvöldið. Á sunnu-
dag er gert ráð fyrir áframhaldandi
norðanátt með éljum fyrir norðan og
snjókomu austan lands, en víða bjart
annars staðar. Frost 2 til 7 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Er nægjanlega spornað við fá-
tækt í landinu?“ Langflestir eru á því að
svo sé ekki. „Nei“ sögðu 78,66%, „já“ var
svar 9,55% og 11,78% vissu það ekki.
Í þessari viku er spurt:
Hvernig verður 2015 fyrir þig
fjárhagslega?
Útsvarslið Vesturlands í RUV eru Vest-
lendingar vikunnar. Fólkið hefur verið
að standa sig prýðilega það sem af er
keppni og til alls líklegt í sextán liða úr-
slitum.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
starfandi dómsmálaráðherra hafði
það sem sitt síðasta embættisverk í
ráðuneyti dómsmála sl. fimmtudag
að undirrita reglugerð um umdæmi
lögreglustjóra. Lauk þar með
óvissu sem ríkt hefur um nokkur
atriði er varðar staðsetningu emb-
ætta í landinu. Í reglugerðinni eru
ákveðin mörk hinna níu níu lög-
regluumdæma landsins og um leið
hvar aðal stöð lögreglustjóra skuli
vera innan hvers umdæmis svo og
lögreglustöðvar. Þar kemur fram að
aðalstöð lögreglustjóra Vesturlands
verður í Borgarnesi. Bæði Akranes-
kaupstaður og Borgarbyggð hafa
sótt það stíft að fá embætti lögreglu-
stjóra og lagt fram gild rök fyrir því.
Skagamenn segja t.a.m. flesta íbúa
á sínu svæði meðan Borgfirðingar
nefna að héraðið liggi miðsvæðis í
hinu nýja umdæmi lögreglustjóra.
Nýtt umdæmi er jafnframt gamla
Vesturlandskjördæmið eins og það
var fyrir síðustu kjördæmabreyt-
ingu og nær yfir Akraneskaupstað,
Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp,
Borgarbyggð, Snæfellsbæ, Eyja-
og Miklaholtshrepp, Grundar-
fjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkis-
hólmsbæ og Dalabyggð. Lögreglu-
stöðvar verða jafnframt á Akranesi,
í Stykkishólmi, Búðardal, Ólafsvík
og Grundarfirði.
Breytingar þessar munu koma
til framkvæmda um næstu áramót.
Innanríkisráðuneytið birti drög
að reglugerðinni á vef ráðuneytis-
ins 8. október síðastliðinn og ósk-
aði eftir umsögnum. Í tilkynningu
frá ráðuneytinu segir að fjöldi um-
sagna hafi borist. Eins og fram hef-
ur komið mun sýslumaður Vestur-
lands hafa aðsetur í Stykkishólmi og
mun Ólafur K Ólafsson sýslumaður
Snæfellinga taka við því embætti.
Úlfar Lúðvíksson fráfarandi sýslu-
maður á Patreksfirði verður lög-
reglustjóri Vesturlands, með aðset-
ur í Borgarnesi eins og fyrr segir.
mm/ Ljósm. hlh.
Á fundi bæjarráðs Akraness síð-
astliðinn fimmtudag var tekin fyr-
ir samantekt frá Faxaflóahöfnum
og siglingasviði Vegagerðarinnar
varðandi ósk HB Granda um auk-
ið landrými við Akraneshöfn. Um
er að ræða áform um umfangsmikla
uppbyggingu HB Granda á Akra-
nesi samfara stóraukinni starfsemi í
bænum. Bæjarráð vísaði erindinu til
umsagnar skipulags- og umhverfis-
ráðs og til starfshóps vegna Breið-
ar og hafnarsvæðisins. Ráðið vakti
jafnframt athygli á mikilvægi þess
að greina áhrif landfyllingar á fjör-
una við Langasand. Gísli Gíslason
hafnarstjóri Faxaflóahafna telur lík-
legt að áformað verkefni og breytt
skipulag muni kalla á umhverfis-
mat. Áætlað er að umrædd landfyll-
ing verði 60 - 70 þúsund fermetr-
ar (6-7 hektarar) og muni kosta um
eða yfir tvo milljarða. Landfylling-
in kæmi á svæði sunnan núverandi
hafnargarðs. Gísli telur að ef bæj-
arfélagið ákveði að stefna á þessa
stækkun hafnarsvæðisins þá verði
það væntanlega samstarfsverkefni
Akraneskaupstaðar, Faxaflóahafna
og HB Granda.
Stóraukin umsvif og uppbygging-
aráform HB Granda og breytingar á
skipulagi samfara þeim hafa verið til
umfjöllunar hjá bæjarstjórn og um-
hverfis- og skipulagsnefnd í nokk-
urn tíma. Vilhjálmur Vilhjálms-
son forstjóri HB Granda greindi
lesendum Skessuhorns frá þess-
um áformum í sérblaði um sjávar-
útvegstengda starfsemi á Akranesi í
mars síðastliðnum. Stærsti hlutinn
af þeim er stækkun verksmiðjuhúsa
bæði í bolfiski, uppsjávarfiski og
fiskþurrkun (Laugafiski). Með þess-
Stjórn Landssambands hesta-
mannafélaga samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum 2. desember
síðastliðinn að verða við beiðni
Gullhyls um breytt staðar-
val á Landsmóti hestamanna
árið 2016. Mótsstaðurinn verð-
ur færður frá Vindheimamel-
um í Skagafirði heim að Hólum
í Hjaltadal. Fyrirhugaðir samn-
ingar miðast við þá staðetningu.
Samþykktin er með þeim fyr-
irvara að Gullhylur sendi stað-
festingu þess efnis til LH, frá
mennta- og menningarmálaráð-
herra og sveitarstjórn Skagafjarðar
fyrir 22. desember nk.
Eins og kemur fram í beiðni Gull-
hyls, þá var Landsmót síðast haldið
að Hólum 1966 og því viðeigandi
að fagna þeim tímamótum að slétt
50 ár séu liðin með því að halda
glæsilegt Landsmót á þessum
sögufræga stað að nýju. Á Hólum
er góð aðstaða fyrir hendi; mikill
fjöldi hesthúsplássa, þrjár reið-
hallir, mikið gistirými auk þess
sem Sögusafn íslenska hestsins
er að Hólum. Þar er einnig rekin
hestafræðideild Hólaskóla sem
er opinber miðstöð menntunar
og rannsókna á sviði hrossarækt-
ar, tamninga, reiðmennsku og
reiðkennslu á Íslandi. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu sem Lár-
us Ástmar Hannesson formað-
ur LH sendi út eftir fundinn í síð-
ustu viku.
mm
Lögreglustjóri Vesturlands
verður í Borgarnesi
Mikil uppbyggingaráform HB Granda á
Akranesi kalla á umfangsmiklar landfyllingar
Þannig líta grunnhugmyndirnar út um stækkun hafnarsvæðisins.
Ríðum heim til Hóla eftir fimmtíu ára bið
um framkvæmdum myndi fylgja
stórbætt aðstaða ekki síst á kæl-
ingu og færslu hráefnis um svæð-
ið á lyfturum en ekki bílum eins og
þarf í dag. Einnig er í áformum HB
Grandamanna að með tíð og tíma
rísi frystigeymsla á stækkuðu at-
hafnasvæði á Akranesi.
Frekari viðræður
nauðsynlegar
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
segir bæjaryfirvöld jákvæð gagn-
vart áformum HB Granda. „Við
höfum kallað eftir því að fjölga
störfum í sjávarútvegi á Akranesi
og einnig að hér fari fram löndun
í ríkari mæli en verið hefur. Akra-
nes býr að sterkri sjávarútvegs-
hefð og hér er mikill mannauður
fólginn í þekkingu starfsfólks sem
vinnur við sjávarútveginn. Einnig
hafa ýmis smærri fyrirtæki í bæn-
um sérhæft sig í þjónustu við at-
vinnugreinina,“ segir Regína.
Hún segir málið þó á frumstigi
varðandi skipulagsmálin en gild-
andi aðalskipulag geri engu að
síður ráð fyrir enn stærri landfyll-
ingu en þeirri sem um ræðir. Reg-
ína segir að frekari viðræður verði
að eiga sér stað við HB Granda
og Faxaflóahafnir um aðkomu að
verkefninu og framkvæmd.
HB Grandi hefur aukið starf-
semi mikið á Akranesi síðustu
misserin sem og fjárfest í sjávar-
útvegsfyrirtækum, svo sem með
kaupum á hrognavinnslu Vign-
is G Jónssonar ehf. og Norð-
anfiski. Einkum er það bolfisk-
svinnsla fyrirtækisins sem hef-
ur aukist og starfsfólki fjölgað
um tugi. Bolfiskur til vinnslu á
Akranesi hefur aukist á nokkrum
árum frá því að vera 2000 tonn á
ári upp í að verða um 6.500 tonn
eins og stefnir í á þessu ári. For-
svarsmenn HB Granda sjá fram á
aukinn bolfisk til landvinnslunn-
ar í kjölfar breytinga í skipaflota
félagsins þar sem frystitogurum
hefur verið breytt úr frystitogur-
um í ferskfiskskip og byrjaði með
breytingum á Helgu Maríu AK
á síðasta ári. Þrengt hefur mjög
að athafnarými fyrirtækisins við
Reykjavíkurhöfn á síðustu árum
við aukin umsvif ferðaþjónust-
unnar.
þá