Skessuhorn - 10.12.2014, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Fimmtudagskvöldið 4. deseem-
ber var haldið aðventukvöld í
Kolbeinsstaða- og Fáskrúðar-
bakkasókn. Að þessu sinni var það
haldið í Lindartungu. Var þetta
mjög ljúf og notaleg stund, Séra
Páll Ágúst Ólafsson fluttu hug-
vekju og kveikti á fyrsta kertinu
í aðventukransinum með hjálp
tveggja fermingardrengja. Barna-
kór Laugargerðisskóla tók nokk-
ur falleg lög. Hjónin Branddís
og Kristján á Snorrastöðum tóku
lagið. Kirkjukór sóknarinnar flutti
einnig nokkur lög og svo kórón-
uðu kvöldið Valgerður Guðna-
dóttir ásamt Vigni Þór píanóleik-
ara en þau tóku nokkur hress og
skemmtileg lög fyrir mannskap-
inn. Að lokum gæddu gestir sér á
dýrinds kaffiveitingum sem kven-
félagið Björk sá um.
iss
Búskapurinn til sveita á Íslandi hef-
ur tekið miklum breytingum síð-
ustu áratugina. Ferðaþjónustan
er sumsstaðar komin í stað hefð-
bundnu búgreinanna og fyrir löngu
orðið viðurkennd atvinnugrein
enda sú sem skapar hvað mestar
þjóðartekjur. Sem betur fer segja
margir því útiljósin á bæjunum
væru án hennar mun færri fram til
dala og sveita. Dalasýslan býður á
margan hátt upp á mikla kosti varð-
andi ferðaþjónustu. Það er ekki að-
eins þessi aragrúi sögustaða sem
þar er, heldur hitt að stutt er frá
þjóðvegi jafnvel alveg fram í dal-
botna og ekki langt í Dalina af höf-
uðborgarsvæðinu. Þennan kost
komu þau auga á Níels S Olgeirs-
son matreiðslumeistari og kona
hans Ragnheiður Valdimarsdóttir
þegar þau árið 2007 keyptu jörðina
Seljaland fremst í Hörðudal. Þar
hafa þau síðustu fimm árin starf-
rækt Seljaland ferðaþjónustu. Bær-
inn er í þjóðleið þeirra hópa sem
ferðast um á hestum að sumrinu og
göngufólks. Níels í Ferðaþjónust-
unni Seljalandi segir að mikil ásókn
sé í það hjá hestafólki að koma við
og gista. Síðasta sumar hafi færri
fengið en vildu koma og meirihlut-
inn verið útlendingar. „Íslendingar
eru oft svolítið seinir að panta en ég
er þegar farinn að taka á móti þó-
nokkrum pöntunum og næsta sum-
ar lítur vel út,“ segir Níels.
Reyna að vera sjálfbær
Níels og Ragnheiður eru bæði
af höfuðborgarsvæðinu en voru
áður með bústað og aðstöðu fyr-
ir sín hross á Rauðanesi á Mýr-
um, en Ragnheiður tengist fólkinu
þar. „Við vildum stækka við okkur
og það var ástæðan fyrir því að við
keyptum hérna á Seljalandi,“ segir
Níels. Þau Ragnheiður hafa kom-
ið sér upp mjög skemmtilegri að-
stöðu. Auk hestanna eru þau með
nokkrar kindur og hænur, en einn-
ig ræktar Ragnheiður grænmeti og
garðávexti í litlu gróðurhúsi. „Ég er
með lítinn hitalampa í því og hann
dugar alveg til að skapa nægan hita.
Við reynum að vera sjálfum okkur
nóg og vera sjálfbær,“ segir Ragn-
heiður. Níels bætir við að skóg-
ræktin sé líka þeirra áhugamál og
Valgerður Guðnadóttir kom og
söng nokkur skemmtileg lög við
undirleik Vignis Þórs píanóleikara.
Aðventukvöld í Lindartungu
Kirkjukór Fáskrúðarbakka- og Kolbeinsstaðarsóknar.
Starfrækja ferðaþjónustu á Seljalandi
fremst í Hörðudal í Dölum
búið sé að gróðursetja 70 þúsund
skógarplöntur í Seljalandi.
Góður andi í
gamla húsinu
Þau byrjuðu með ferðaþjónstuna á
Seljalandi vorið 2009. Þá var ekki
búið að innrétta fjárhúsin fyrir veit-
inga- og gistiþjónustu og því tek-
ið á móti fólki til gistingar í gamla
íbúðarhúsinu og þremur smáhýs-
um. Níels og Ragnheiður hafa reist
fimm smáhýsi á jörðinni, um 15
fermetra hvert, þrjú eru til gisting-
ar og tvo hús fyrir snyrtingar. „Við
héldum fyrst að það þyrfti að laga
gamla húsið mikið til að nýta það
en þegar við skoðuðum það betur
var með litlum lagfæringum hægt
að gera það að algjörri antik, enda
líkar fólki vel þar. Það er svo góð-
ur andi í þessum gömlu húsum,“
segir Níels. Hann segir reið- og
gönguleiðirnar þarna í nágrenn-
inu mjög skemmtilegar. „Hérna
fyrir framan er Laugardalurinn
sem er algjör perla. Upp af hon-
um er Sópandaskarð þar sem farið
er í Langavatnsdal. Þetta er mjög
vinsæl reiðleið og héðan er ekki
nema 39 kílómetrar í Svignaskarð.
Á þessari leið eru gangamannakofi
Borghreppinga Torfhvalastað-
ir við Langavatn og gagnamanna-
kofi Álfthreppinga sem hóparnir
gista gjarnan í á leið sinni í Dalina.
Hingað eru að koma hópar með
allt að 100 hesta, þá um 25 manns
í hverjum hópi. Mér finnst sjálfum
mjög fallegt að koma hingað ríð-
andi úr Borgarfirðinum. Það hag-
ar líka svo skemmtilega til hjá okk-
ur að börnin okkar fjögur eru líka
hrifin af sveitinni. Linda Sif dóttir
okkar býr á Hellum í Bæjarsveit og
er að ljúka BS í búvísindum. Hún
er mikil hestamanneskja og temur
og járnar fyrir okkur. Svo er elsta
systirin af þremur líka í búvísinda-
námi á Hvanneyri.“
Ættarmót og
afmælisveislur
Níels segir að til að byrja með hafi
aðallega kjötsúpa verið á borðum
í Seljalandi fyrir hópana og fólk
mjög ánægt með það. „Svo hef-
ur fólk farið að gera betur við sig í
mat og það er talsvert um að gest-
irnir séu farnir að taka sér steikur
og betri mat. Hestamönnum finnst
mjög gott að grilla hérna hjá okk-
ur og hafa þá aðstöðu í hlöðunni
ef þannig viðrar. Hérna eru haldin
ættarmót og svo eru sveitungarnir
líka farnir að koma í mat til okkar.
Hérna hafa verið haldnar fámenn-
ar afmælisveislur,“ segir Níels.
Hann gekk um hús og vistarver-
ur ásamt blaðamanni og sýndi að-
stöðuna. Veitinga- og gistiaðstað-
an er mjög skemmtileg og það er
ýmislegt sem Níels heldur upp á og
er hluti af þessari skemmtilegu vin
sem þau Ragnheiður eiga á Selja-
landi. Þar hefur greinlega ekki ver-
ið setið auðum höndum í þau sjö
ár sem þau hafa átt jörðina. Meira
að segja eru komið ágætis geymslu-
húsnæði í kjallara fjárhúsanna. Þar
eru meðal annars gamlir uppgerðir
traktorar, en gamlir munir eru upp-
áhald þeirra Níelsar og Ragnheið-
ar. „Já, hérna leiðist okkur ekki og
hér er alltaf hægt að hafa nóg fyrir
stafni,“ sagði Níels þar sem blaða-
maður kvaddi hann á bæjarhlaðinu
á Seljalandi.
þá
Virðulegur Farmall Cub er meðal uppgerðra dráttarvéla og tækja í kjallara fjár-
hússins.
Níels S Olgeirsson matreiðslumeistari og kona hans Ragnheiður Valdimarsdóttir.
Veitingaaðstaða og hluti gistiaðstöðunnar er í gamla fjárhúsinu sem var
innréttað fyrir starfsemina.
Séð heima að Seljalandi en þar eru m.a. fimm smáhýsi. Heimilisleg herbergi eru í gamla íbúðarhúsinu.
Níels og Ragnheiður eru mikið fyrir gamla muni og þeir skreyta húsakynni á Selja-
landi.