Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2014 RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 Hreinsunarátak er að hefjast í bænum og veitir víst ekki af. Þetta er þriðja átakið sem Hafnar­ fjarðarbær fer af stað með á stutt­ um tíma og alltaf er af nógu að taka. Það er í raun undarlegt að það þurfi skattpeninga íbúa bæjarins til þess að fá fyrirtækjarekendur til þess að taka til í eigin garði. Við hljótum að búa við mjög ófullkomnar reglur og eða ófullkomnar verklagsreglur sem valda því að fyrirtæki sjái ekki hag sinn í að hafa snyrtilegt í kringum sig. Er það lögmál að sá sem rekur bílaverkstæði þurfi að hafa bílhræ út um allt í kringum sig. Það ber ekki vott um gott verkstæði. Hvernig stendur á því að skipulag er með þeim hætti í iðnaðarhverfum að lóðarmörk eru óljós og ekki er kvöð um girðingu ef geyma þarf mikið af lausamunum á lóð. Í lóðarsamning­ um í einu rótgrónu iðnaðarhverfinu er ákvæði sem veitir Hafnarfjarðarbæ rétt til að setja girðingakvöð telji menn ástæðu til þess. Ekki veit ég neitt dæmi um að Hafnarfjarðarbær hafi nýtt sér þá heimild. Veitir þó ekki af í því hverfi þar sem bílapartasölur eru með bílhræ flæðandi út að götu. Linkind gagnvart þeim sem drasla til og brjóta af sér er með ólíkindum og ber vott um slæma stjórnsýslu. Til hvers er verið að setja reglur ef ekki á að fara eftir þeim. Fyrri minnihluti gagnrýndi harðlega linkind gagnvart þeim byggingarstjórum og eigendum húsa sem ekki kölluðu eftir viðeigandi úttektum og því tapaði Hafnarfjarðbær töluverðum fjármunum þar sem húsin voru ekki skráð á rétt byggingarstig. Blessunarlega eru þessir stjórnmálamenn komnir í meirihluta og geta því breytt þessu til betri vegar. Hreinsunarátök hafa vakið menn til umhugsunar og fjölmargir hafa gert átak í að gera snyrtilegra hjá sínum fyrirtækjum. Það ber að þakka og mikilvægt er að hampa því sem vel er gert. Mætti jafnvel taka upp á því að veita viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og veita viður­ kenningar í hverju hverfi fyrir sig. Þó alltaf sé gaman að viðurkenna snyrtilegustu lóðirnar, þá er mikilvægara að viðurkenna mestu framfarirnar. Það er hvatning til þeirra sem enn eiga eftir að gera snyrtilegt hjá sér. Stjórnmálamennirnir geta svo farið að skoða hvernig þeir geta markað stefnu sem tryggir að skipulag hverfa sé þannig að það geri mönnum erfitt um vika að drasla til svo það sé til ama fyrir aðra. Íbúar Valla hafa fengið í gegn átak um grænkun Valla. – Af hverju er það ekki áhugamál Skógræktarfélagsins að auka skógrækt inni í Hafnarfirði, á iðnaðarsvæðum og víðar? Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Sunnudagurinn 21. september Sunnudagaskóli kl. 11 Sálmamessa kl. 11 með nýjum sálmum Sr Jón Helgi, Guðmundur organisti og félagar í Barbörukórnum leiða stundina. Morgunmessa miðvikudaga kl. 8.15 Kvenfélagsfundur 18. sept kl. 20 www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Laugardagurinn 20. september Fríkirkjudagurinn tónlistarveisla kl. 14-15 Vöfflukaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Sunnudagurinn 21. september Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldvaka kl. 20 „Að sjá með hjartanu“: Inga Harðardóttir flytur hugleiðingu. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Sjá nánar um starfið í fréttabréfinu okkar hér annars staðar í blaðinu og á: www.frikirkja.is Víðistaðakirkja Sunnudagur 21. september: Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Molasopi á eftir. Börn á öllum aldri velkomin. Kyrrðarstundir alla miðvikudaga kl. 12. Súpa á eftir. Starfsfólk Víðistaðakirkju www.vidistadakirkja.is Sunnudagurinn 21. september Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Fríðu og Bryndísar. Gospelguðsþjónusta kl. 20 Kór Ástarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldursonar. Ole Lilleheim, sérfræðingur í málefnum kirkna í Mið-Austurlöndum, prédikar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson Barnastarf kirkjunnar á þriðjudögum Eldriborgarastarf á miðvikudögum kl. 13:30 Alfa-námskeið hefst fimmtudaginn 18. september kl. 19:00. Þátttaka er ókeypis. Nýr unglingagospelkór æfir á föstudögum kl. 16:30 www.astjarnarkirkja.is Á Völlum Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.