Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2014 Kynning á félagsstarfi aldraðra Félagsmiðstöðin Hraunsel er með opið hús og kynningu á félagsstarfinu fyrir alla Hafnfirðinga, dagana 24., 25. og 26. september kl. 13-16. Starfsmenn hinna ýmsu nefnda verða með kynningu. Verðum með heitt á könnunni og vonumst til að sjá sem flesta. Félag eldri borgara og Hafnarfjarðarbær Næsta  skriðsundsnámskeið   fyrir  byrjendur  verður  haldið   25. sept  - 21.  okt,  alls  8  skipti. Kennd  verða  undirstöðuatriði  í   skriðsundi.  Tími:  þri  og  fim  kl.                   19:00-­‐19:50   Staður:  Sundhöll  Hafnarfjarðar   Skráning:  Holmsteinn10@gmail.com   HR  sundkennsla  er  á  facebook   Hafnarfjarðarbær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks. „Með fötlun er átt við það ástand sem skapast þegar einstaklingur þarf fjölþætta þjónustu og aðstoð til langframa vegna alvarlegrar þroskaröskunar eða annarrar röskunar á færni.“ Hafnarfjarðarbær veitir styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita fötluðu fólki sem er 18 ára og eldra styrk til verkfæra­ og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluð fólki að skapa sér atvinnu. Umsókn er fyllt út á vef bæjarins www.hafnarfjordur.is, á Mínar síður. Umsóknarfrestur er til með 30. september 2014. Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðar Strandgötu 6 220 Hafnarfjörður STYRKIR VEGNA NÁMSKOSTNAÐAR OG VERKFÆRA- OG TÆKJAKAUPA FATLAÐS FÓLKS Samið um þjónustu við 6 manna flóttafjölskyldu frá Afganistan Víðtækur stuðningur samfélagsins mikilvægur Eygló Harðardóttir, félags­ og húsnæðismálaráðherra og Harald ur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, undir­ rituðu sl. föstudag samning um móttöku, aðstoð og stuðning við sex manna fjölskyldu frá Afgan­ istan sem hingað er komin á grundvelli ákvörðunar ríkis­ stjórnarinnar um móttöku flótta­ fólks. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar miðaðist við að tekið skyldi á móti konum í hættu frá Afgan­ istan. Flóttamannanefnd í sam­ vinnu við Flóttamannastofnun Sam einuðu þjóðanna gerði til­ lögu um einstaklinga sem tekið skyldi á móti og var sú tillaga sam þykkt í ríkisstjórn. Flótta­ mannanefnd var falið að undir­ búa móttöku fólksins og var leitað til Hafnarfjarðar um mögu leika og vilja bæjarfélagsins til þess að taka að sér verkefni sem þetta. Samningurinn sem Hafnar­ fjarðarbær undirgekkst er um helstu verkefni sem móttaka flóttafólks felur í sér og bæjar­ félagið mun sjá til að fólkið fái notið. Þessi verkefni varða eink­ um ýmsa félagslega þjónustu, stuðning og aðstoð en lúta einnig að heilbrigðis þjón ustu, grunn­ skólamenntun og annarri þjón­ ustu sem íbúar sveitarfélaga njóta almennt. Rauði krossinn á Íslandi gegnir einnig hlutverki í móttöku og aðlögun flóttafólks samkvæmt viðmiðunarreglum flóttamanna nefndar og verður samningur um aðkomu hans að stuðningi við fjölskylduna í Hafnarfirði undirritaður innan skamms. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra við undirritunina í Bungalowinu. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Vellir fá grænan lit á sumrin Grjótmanir verða tyrfðar en trjágróður ekki í spilunum Vinna hófst í vikunnu við undirbúning að tyrfingu á grjót­ mönum meðfram Ásbraut inni en íbúar á Völlum hafa barist fyrir því að svæðið verði grænna og a.m.k. í samræmi við deili­ skipulag. Mold verður sett yfir manirnar og þær tyrfðar en ekki er gert ráð fyrir gróðursetningu trjáa eða runna eins og margir íbúar hafa kallað eftir. Verktakar hafa hafið undirbúning þess að moka mold yfir manir við Ásbrautir. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n ..bæjarblað Hafnfirðinga Hvar auglýsir þú?

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.