Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2014 PANTAÐU Á NETINU OG FÁÐU AFSLÁTT REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562 Ætla að byggja safnaðarheimili fyrst Kirkjubygging Ástjarnarkirkju kemur síðar Ástjarnarsókn efnir í sam­ vinnu við Arkitektafélag Íslands til opinnar samkeppni um frum­ hönnun lóðar, kirkju og safnaðar­ heimilis að Kirkjuvöllum 1. Tilgangur samkeppninnar er að fá heildarsýn á skipulag lóðar sóknarinnar. Verkefnið er áfanga skipt. Í fyrsta áfanga verður safnaðar­ heimili byggt, auk tenginga við næsta nágrenni og lóð næst safn­ að ar heimilinu. Auk Ástjarn ar­ sóknar koma kirkjuyfirvöld og Hafnarfjarðarbær að fjármögnun verkefnisins. Ekki er til fjármagn til að ráðast í kirkjubygginguna sjálfa né frágang allrar lóðarinnar á næstu árum og því er ekki verið að óska eftir útfærslu kirkju­ byggingar á þessu stigi. Einungis er verið að leita eftir heildarsýn. Veitt verða verðlaun fyrir þrjár bestu tillögurnar að mati dóm­ nefnd ar, samtals að upphæð 5 milljónir króna. Dómnefndina skipa Sigríður Sigurðardóttir arkitekt sem er formaður nefndarinnar, Erlendur Geir Arnarson vél­ og iðn­ rekstrarfræðingur, fulltrúi sókn­ ar nefndar og Þórhallur Sigurðs­ son arkitekt. Ástjarnarsókn var stofnuð árið 2000, um leið og Grafarholtssókn og Lindasókn, til að þjóna nýjasta hverfi Hafnarfjarðar, hverfi sem áætlað er að muni telja um 15.000 manns þegar það verður fullbyggt. Nú þegar eru íbúar hverfisins orðnir um 8.000. Fyrstu árin var starfsemi sóknarinnar í Haukahúsinu en árið 2006 var söfnuðinum úthlutað lóð við Kirkjuvelli og ári síðar færði Hafnarfjarðarbær söfnuðinum tvær gamlar kennslu stofur að gjöf sem komið var fyrir á framtíðarlóð kirkj­ unnar. Meginmarkmið sóknarnefndar með samkeppninni er að skapa heildarumgjörð utan um kirkju­ og safnaðarstarf sóknarinnar. Leitað er eftir raunhæfum og hag kvæmum hugmyndum um lóð og byggingar og tenginga þeirra innbyrðis sem uppfylla vænt ingar til starfseminnar. Áhersla er lögð á vandaðar, ein­ faldar, sveigjanlegar og hlýlegar lausnir. Verkefnið er áfangaskipt og því er mikilvægt að fyrri áfangi framkvæmdarinnar geti staðið sjálfstæður þar til síðari áfangi verði byggður og að tenging áfanga verði eðlileg. Í þessum áfanga er lögð áhersla á að reisa safnaðarheimili sem er notendavæn fjölnota bygging fyrir fjölbreytta starfsemi safn­ aðarins. Skilafrestur tillagna er til 14. nóvember nk. Áætlað er að framkvæmdir við safnaðar heim­ ilið hefjist haustið 2015 og verði lokið í desember 2016. Sóknarprestur Ástjarnarkirkju er dr. Kjartan Jónsson en formaður sóknarnefndar er Geir Jónsson fv. bæjarfulltrúi. Lóð Ástjarnarkirkju er við Kirkjuvelli, við hlið Ástjarnarlaugar. Töpuðu ekki leik í sumar Stelpurnar í 4. fl. FH urðu Íslandsmeistar sl. laugardag Stelpurnar í 4. fl. FH í fótbolta sigruðu Breiðablik 2­0 á laugar­ daginn í Kaplakrika í úrslitum Íslandsmóts 4. flokks kvenna. Þær sigruðu Val, Þrótt R. og Aftureldingu samtals 15­0 í undanúrslitum. Breiðablik sigr­ aði á sama tíma Hauka og Hött en gerði jafntefli við ÍA. Í riðlakeppninni lék liðið 10 leiki og sigraði í þeim öllum og markatalan var 61­5. Heild­ armarkatalan varð því 77­5! Ekki amalegur árangur það. Aníta Dögg Guðmundsdóttir fyrirliði, Aþena Þöll Gunnarsdóttir, Bjarkey Líf Halldórsdóttir, Diljá Ýr Zomers, Embla Jónsdóttir, Fanney Elfa Einarsdóttir, Guðný Árnadóttir, Gunnhildur Ýr Þrastardóttir, Helena Ósk Hálfdánardóttir, Helga Magnea Gestsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Kristín Fjóla Sigþórsdóttir, Saga Magnúsdóttir, Sigrún Björg Ólafsdóttir, Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir, Þórdís Eva Steinsdóttir og þjálfararnir Kári Freyr Þórðarson og Þórarinn Böðvar Þórarinsson. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Starfshópur skipaður um heilsdagsskóla, frístundastyrki og gjaldskrár Í júní sl. lögðu fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna fram tillögu í fræðsluráði og fjöl­ skylduráði um endurskoðun greiðslu fyrirkomulags og greiðslu þátttöku vegna ýmissa út gjalda barnafjölskyldna, svo sem gjöld hjá dagfor­ eldrum, í leikskólum, Tón­ listarskóla, frístunda heimil­ um og vegna máltíða í grunn skólum. Jafnframt lögð um við til að mótaðar yrðu tillögur til að tryggja jafnan aðgang barna að íþrótta­ og tómstundastarfi t.a.m. með auknum sveigj­ an leika í nýtingu niður­ greiðslna á þátttökugjöldum vegna íþrótta­ og tómstunda­ iðkunar barna. Útgjöld barnafjölskyldna Við teljum mikilvægt að fara í það verkefni að skoða útgjöld barnafjölskyldna og reyna með einhverjum hætti að koma til móts við þá hópa sem mestu útgjöldin hafa. Við lögðum upp með það að starfshópi yrði falið að móta tillögur sem miðuðu að því að lækka heildarþjónustugjöld að teknu tilliti til heimilistekna og setja skilgreint hámarksþak á þjónustugjöld hverrar barna­ fjölskyldu. Með þessu viljum við m.a. leita leiða til að hækka niðurgreiðslur í íþrótta­ og tóm­ stundastarfi þannig að þær tryggi að öll börn geti tekið þátt óháð efnahag foreldra. Samhljóða samþykkt Það er ánægjulegt frá því að segja að tillagan hefur nú fengið afgreiðslu og með örfáum breytingum orðið að veruleika. Fræðsluráð tók málið upp á fundi sínum mánudaginn 8. september þar sem tillagan var samþykkt með áorðnum breyt­ ingum af öllum fulltrúum ráðsins. Hin endanlega samþykkt er í meginatriðum samhljóma hinni upphaflegu tillögu þar sem áætlað er að endurskoða stuðning bæjarins við íþrótta­ og tóm­ stundastarf með það að markmiði að efla þjónustuna, notendum til hagsbóta. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr þjónustu könn­ unum og ábendingar frá notendum þjónustunnar verði hafðar til hliðsjónar í stefnu­ mótum og aðgerðum. Nánar má lesa um tillögurnar í fundar­ gerðum fræðsluráðs á vef bæjar­ ins. Undirritaðar fagna þessu og óska eftir góðu samstarfi og samráði við fulltrúa allra flokka sem og alla þá sem málið varða. Höfundar eru fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í fræðsluráði. Adda María Jóhannsdóttir Elva Dögg Ásu dóttir Kristinsdóttir Hvar auglýsir þú?..bæjarblað Hafnfirðinga síðan 1983 ...blaðið sem allir Hafnfirðingar lesa

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.