Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 13

Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 13
www.fjardarposturinn.is 13 Fimmtudagur 18. september 2014 Bambo Nature bleiurnar eru einstaklega mjúkar og þægilegar. Þær eru afar rakadrægar og ofnæmisprófaðar auk þess sem gott snið og teygjur í hliðum gera það að verkum að þær passa barninu fullkomlega. Sölustaðir Bambo Nature Umhverfisvænar og ofnæmisprófaðar bleiur Bambo Nature Bambo Nature – er annt um barnið þitt. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 31 46 Nýlega fann ég í blaðasafni mínu sögulega mynd af Hallsteini Hinriksssyn með drengjum, sem voru í unglingavinnu hjá bænum sumarið 1961, en Hallsteinn var í mörg ár stjórnandi þeirrar vinnu. Myndin birtist í blaðinu Rödd æskunnar, sem ungir jafnaðar­ menn gáfu út. – Húsið á myndinni með svörtu þaki var að Suðurgötu 11, nefnt Ögmundarhús. Þar bjó Ögmundur Sigurðsson skólastjóri og kona hans Guðbjörg Kristjáns­ dóttir. Síðar bjuggu þar hjónin Einar Andrésson og Pálína Þor­ leifsdóttir, en Einar var lengi sótari í Hafnarfirði. Húsið var rifið nokkrum árum eftir að mynd in var tekin 1961. Í tilefni þessarar myndar og að á þessu ári voru liðin 110 ár frá fæðingu Hallsteins og í næsta mánuði 40 ár frá dánardegi hans vil ég minnast Hallsteins með nokkrum orðum fyrir farsælt framlag hans og forystustarf til eflingar íþrótta í Hafnarfirði. Hallsteinn tók íþrótta kennara­ próf í Kaupmannahöfn árið 1929. Áhugi hans á frjálsum íþróttum gerði hann einu sinn að Íslands­ meistara í stangarstökki og einnig í 100 metra hlaupi árið 1936. Hallsteinn var forgöngumaður að stofnun FH 1929 (Fimleikafélags Hafnarfjarðar) og þjálfaði FH í frjálsum og fleiri íþróttum um langt árabil án endurgjalds. Þá var hann í 44 ár íþróttakennari við Barna skóla Hafnarfjarðar og Flensborg. Hallsteinn þjálfaði FH um langt skeið í frjálsum íþróttum. Æfingar fóru fyrst fram á skóla­ mölinni við Lækjarskóla, en frá um 1940 á íþróttasvæðinu á Hörðu völlum. Að frumkvæði Hall steins voru í nokkur ár haldin keppnismót í frjálsum íþróttum milli Hafnfirðinga og Vestmanna­ eyinga og eru þau mót mér einkar eftirminnileg. Meðal þeirra, sem þá skipuðu lið FH voru Oliver Steinn, Þorkell Jóhannesson, Sæv ar Magnússon, Gísli Sigurðs son, Árni og Sigurður Friðfinns synir, Pét ur Kristbergsson, Sig urður Kristjánsson og undir ritaður. Þá stofnaði Hallsteinn og þjálfaði fimleikaflokka, sem fyrst sýndu listir sínar í leikfimihúsinu við Suðurgötu og einnig í sama húsi eftir að það var flutt 1934 á lóðina við Lækjarskóla. Einkum minnist ég þess, hversu Kristján Gamalíelsson var frábær í fim­ leikum, en hann var fyrsti for­ maður FH. Hallsteinn og Kristján voru góðir söngmenn og var Hall steinn um tíma í stjórn Karla­ kórsins Þrasta. Þá var hann í stjórn íþróttakennarafélags Íslands 1936­46. Hallsteinn var réttilega kallaður faðir handboltans í Hafnarfirði og þjálfaði lengi FH í þeirri íþrótt. Börn Hallsteins, Ingvar, Örn, Geir og Sylvía iðkuðu öll hand­ bolta og aðrar íþróttagreinar eftir hvatningu föður síns. Eiginkona Hallsteins, Ingibjörg Árnadóttir kenndi skrift og handavinnu við Flensborgarskóla 1939­1946. Áður en Sundhöll Hafnarfjarðar var opnuð 1943 hafði Hallsteinn kennt sund í fjörunni skammt frá sundhöllinni. Í fróðlegu viðtali við Hallstein í jólablaði Alþýðu­ blaðs Hafnarfjarðar 1964 kemur fram, að mikil þáttaka hafi verið í sundinu og að sundgestir hafi skipt hundruðum suma dagana og sumir komið þangað á hverj­ um degi hvernig sem viðraði. Þá kemur fram í viðtalinu, að á hverju ári hafi verið haldin sund­ mót, oftast hjá Gömlu bryggjunni, hjá bryggu, sem var framan við íshús Ingólfs Flygerings og einn­ ig í fjörunni þar sem skipa smíða­ stöðin Dröfn stóð. Þar var keppt til frægðar og verðlauna og ýmsir gátu sér góðan orðstír eins og Halls teinn komst að orði. Við eldri Hafnfirðingar, sem nut um leiðsagnar Hallsteins í íþrótt um munum ætið minnast hans með þökk í huga fyrir farsæl og fórnfús störf í þágu íþrótta­ lífsins í Hafnarfirði. Megi minn­ ingin um heiðursmanninn Hall­ stein Hinriksson lifa um alla framtíð í sögu íþrótta í Hafnarfirði. Árni Gunnlaugsson fv. bæjarfulltrúi. Minningar um Hallstein Hinriksson Árni Gunnlaugsson minnst föðurs handboltans í Hafnarfirði Hallsteinn með drengjum sem voru í unglingavinnu bæjarins 1961.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.