Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2014 Verjum þá tekjulægstu Við teljum nauðsynlegt að einfalda virðisaukaskattskerfið og draga úr undanþágum í því flókna kerfi sem við höfum búið við í fjöldamörg ár. Fjármála­ ráðherra hefur nú kynnt fjárlaga­ frumvarpið fyrir árið 2015. Í frumvarpinu má finna aðgerðir að einföldun virðis aukaskattskerfisins. Hluti þeirra aðgerða er að hækka lægra þrep virðis­ aukaskatts úr 7% í 12%, sem þýðir að virðis auka­ skattur á matvæli hækkar um 5% á einu bretti. Í frum varpinu er einnig gert ráð fyrir að efra þrep kerfisins muni lækka úr 25,5% í 24%. Slík lækkun og afnám vörugjalda eru mjög já ­ kvæðar breytingar. Það er einlæg skoðun okkar að fulllangt sé gengið í hækkun virðisaukaskatts á matvæli, skattur sem oft er nefndur matarskattur í almennri umræðu. Matvæli er nauð synja­ vara sem ekkert heimili kemst hjá því að kaupa og eiga sem slík að njóta sérstakrar meðferðar. Það er erfitt að sjá að áhrif frumvarpsins, eins og það lítur út í dag, muni auka ráðstöfunartekjur hjá öllum tekjuhópum og þá sérstaklega hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Nauðsynlegt er að mæta þessari hækkun virðisauka­ skatts á matvæli með sterkum mótvægisaðgerðum. Sem dæmi um slíka mótvægisaðgerð er gert ráð fyrir hækkun barnabóta í frumvarpi fjármálaráðherra. Fyrir utan það að sú aðgerð er alls ekki nægilega sterk, nær hún einungis til afmarkaðs hóps. Slík aðgerð mun því ekki nýtast barn­ lausum, eldri borgurum og öryrkjum svo einhver dæmi séu nefnd. Frekari aðgerða er þörf. Frumvarp fjármálaráðherra gerir ráð fyrir því að vísitala neyslu verðs muni jafnframt lækka en ekki hækka við þessar breytingar. Gangi það eftir munu skuldir heimilanna lækka en ekki hækka þar sem vísitala neyslu­ verðs hefur bein áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána. Slík áhrif væru auðvitað mjög jákvæð en erfitt er að sjá slíkt gerast. Dæmin einfaldlega sýna annað. Það getur þó gerst ef ríkið sýnir mikið aðhald og fylgir því fast á eftir að lækkanir muni skila sér í lægra vöruverði til neytenda en ekki beint í vasa kaupmanna. Það væri til dæmis hægt að gera með sérstöku verðlagseftirliti. Eins og þetta lítur út í dag teljum við ákveðna hættu á því að vístala neysluverðs muni hækka en ekki lækka og verðtryggð húsnæðislán muni hækka í kjölfarið. Slíkt myndi grafa verulega undan áhrifum á leið­ réttingu verðtryggðra húsnæðis­ lána sem nú er yfirstandandi af hálfu ríkisstjórnarinnar. Við lýsum yfir efasemdum og trúum því og treystum að þingmenn Framsóknarflokksins muni taka málið föstum tökum og ná fram nauðsynlegum breyt­ ingum í meðförum þingsins. Það hefur Karl, annar höfundur greinarinnar gert undanfarna daga. Við þurfum að verja þá tekjulægstu. Annað færi gegn gildum flokksins. Ágúst Bjarni er oddviti Fram - sóknarflokksins í Hafn arfirði og varaformaður SUF. Karl Garðarsson, er þingmaður Framsóknar flokksins. Ágúst Bjarni Garðarsson Karl Garðarsson Blak Góðan daginn Hafnfirðingar, núverandi og verðandi blakarar Við, fyrir norðan ykkur, höfum áhuga á að fá ykkur í lið með okkur! Bjóðum upp á byrjendablak í Ásgarði www.stjarnan.is/blak/aefingatafla og síðan erum við eldhressir strákar (nokkrir á besta aldri) með öldungablak í Ásgarði og Álftanesi sjá töflu. Nánar um öldungablak: Einar, einar.georgsson@arionbanki.is eða Halldór brosid@simnet.is Spjaldtölvuvæðing leikskóla hafin Ein spjaldtölva komin á hverja leikskóladeild Leikskólastjórum í leikskólum Hafnarfjarðar voru á föstudag afhentar 86 spjaldtölvur til notkunar í leikskólum. Hver leikskóli fékk eina spjaldtölvu á hverja leikskóladeild og eina eða tvær til viðbótar eftir stærð skóla. Er þetta hluti af átaki í tæknivæðingu hafnfirskra skóla. Það er stefna fræðsluyfirvalda að innan þriggja ára verði hafnfirskir leik­ og grunnskólar í fremstu röð í notkun upplýsingatækni í kennslu. Í fjárhagsáætlun ársins var gert ráð fyrir 45 milljónum króna til kaupa á tölvum, skjávörpum og uppsetningu þráðlauss nets í leik­ og grunnskólum. Auk þess voru 35 milljónir króna ætlaðar til þróunar og nýsköpunar, sem nýtist að stórum hluta til þessa verkefnis í formi námskeiða fyrir starfsfólk, verkefnastjórnunar, kennsluráðgjafar og fleira í þeim dúr. Keyptir hafa verið 120 skjávarpar sem eru komnir upp í leik­ og grunnskólum. Vantar enn nokkra skjávarpa til að fullnægja þörfinni. Þá er vinna langt komin við að setja upp þráðlaust net í alla leik­ og grunnskóla bæjarins. Ein tölva á hverja deild. Leikskólastjórarnir voru hæstánægðir með nýju tölvurnar. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.