Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 7
www.fjardarposturinn.is 7 Fimmtudagur 18. september 2014
www.hafnarfjordur.is
22. september - 22. nóvember 2014
Hreinsun íbúðar-, iðnaðar- og nýbyggingarsvæða
Hausttiltekt
Þann 22. september næstkomandi mun hreinsunarátak hefjast í
Hafnarfjarðarbæ þar sem við tökum höndum saman við að gera
bæinn okkar enn fallegri. Bæjarbúar eru hvattir til að hreinsa lóðir
sínar og nærumhverfi. Komið verður upp gámastöðvum á sex stöðum í
bænum þar sem hægt er að henda timbri, stáli og blönduðu rusli í þar
til merkta gáma.
Á Mínum síðum á vef Hafnarfjarðarbæjar, hafnarfjordur.is, geta
fyrirtæki og húsfélög óskað eftir að rusl verði sótt.
Nánari upplýsingar eru á www.hafnarfjordur.is
Fallegur bær er okkur kær!