Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2014
Það er alltaf gaman í
Gaaraleikhúsinu
“Þú verðrur að drífa þig á
Unglinginn. Hún er skrifuð
og leikin af verðandi
stjórstjörnum”
Auðunn Lútherson LG
Lík Mitt - Mój Trup
með Boguslav Kierc
sýnt í Gaflara
leikhúsinu
laugardaginn
20. september
kl. 20.00
Ókeypis miðar fást í miðasölu
Tickets free of charge
Víkingastræti 2
midasala@gaflaraleikhusid.is
íslenskur texti og
sjónlýsing fyrir blinda
og sjónskerta
ALFA - námskeið
Alfa-námskeið er lifandi og skemmtilegt
námskeið um kristna trú þar sem fjallað er á einfaldan hátt
um mikilvægustu atriði kristinnar trúar á mannamáli.
Nýtt námskeið hefst
fimmtudaginn 18. september kl. 19:00
Námskeiðið er ókeypis að þessu sinni,
aðeins greitt upp í helgarferð.
Skráning og nánari upplýsingar á heimasíðu kirkjunnar
www.astjarnarkirkja.is
Lækjarrallý á köldum læknum
Árleg keppni á heimagerðum fleytum
Unglingarnir í Setrinu, félags
miðstöðinni í Setbergsskóla
keppa árlega í siglingu niður
Hamarskotslækinn sem rennur
nánast í gegnum skólalóðina.
Keppendur, tveir í hverju liði
útbúa sér fley sem þeir geta
dregið, ýtt eða með öðru móti
komist ákveðna vegalengd eftir
læknum á sem stystum tíma.
Fimm lið kepptu að þessu sinni
og greinilegt var að markmiðið
var ekki síður að hafa gaman af
en að sigra.
Dominik Przybyla og Bergur
Magnússon sem sigldu á fleka
með flotholtum úr gosflöskum
sigruðu í keppninni og það tók
þá 1,00.22 mínútu að fara
leiðina. Munaði aðeins sekúndu
broti á þeim og næsta liði. Fengu
þeir að launum 1000 kr. gjafabréf
frá Vesturbæjarís.
Júlíus Freyr Bjarnason og
Vignir Guðnason fengu viður
kenningu fyrir flottasta fleyið en
þeir höfðu gert fleka úr krossviði
og sterklegum plastdunkum.
Lækjarrallýið eða „River
rafting“ eins og krakkarnir kusu
að kalla þetta er aðeins eitt af
mörgu skemmtilegu sem gert er í
félagsmiðstöðinni sem er ætluð
unglingadeildum skólans.
Fleyin voru mismunandi og flutu misvel. Sum flutu alls ekki og
má segja að þau hafi verið botnlæg. Sigurvegararnir til hægri.
Hjólabretti fór ekki hratt yfir á
ójöfnum botninum.
Snjósleðinn flaut en hélt ekki
uppi farþeganum.
Flottasta fleyið lenti í þriðja
sæti.
Bæði keppendur og áhorfendur skemmtu sér vel.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Framhaldsskólar og heilsuefling
Flensborgarhlaupið
Flensborgarhlaupið er orðinn
fastur liður í hlaupadagskránni
en það verður á þriðjudaginn og
hefst við Flensborgarskóla kl.
17.30. Boðið er upp á 3 km
göngu/hlaup án tímatöku, 5 og
10 km hlaup með tímatöku og er
öllum frjálst að vera með, hvort
sem þeir tengjast Flensborg
sérstaklega eða ekki. Hlauparar
fara frá skólanum og í átt að
Kaldárseli og tilbaka. Leiðin
verð ur vel merkt og verða
um ferðarstjórar á öllum gatna
mótum.
Að venju er hlaupið áheita
hlaup og er í ár verið að safna
áheitum fyrir Barnaheill. Allur
ágóði af hlaupinu rennur til
Barnaheilla.
Alltaf er leitað nýjunga og í ár
er öðrum framhaldsskólum
sérstaklega boðið að vera með í
framhaldsskólakeppni í 10 km
hlaupi. Fljótasti karlinn og konan
úr framhaldsskóla hlýtur titilinn
Framhaldskólameistarinn í 10
km og fær bikar að launum. Að
auki er keppt um titilinn Fljótasti
Flensborgarinn en það er innan
skólatitill.
Skráning er á hlaup.is og
mikil vægt er að skrá skóla við
kom andi (þar sem skrá á
hlaupahóp). Að sjálfsögðu eru
allir velkomnir og hlökkum við
til að sjá sem flesta.
Fjölmörg útdráttarverðlaun
eru í boði og góð aðstaða fyrir
hlaupið. Hafnarfjarðarbær býður
keppendum í sund að hlaupi
loknu.
Nánari upplýsingar eru á á
www.hlaup.is.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Vilja afslátt í Hafnarfirði vegna tafa hjá
úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamál
Nýir eigendur fengu samþykkt nýtt skipulag og ætluðu að selja
Fyrirtækið Costa Invest ehf.
vill, í ljósi óvissu með niðurstöðu
í kæru til úrskurðarnefndar um
hverfis og auðlindamála og tafa
á þeim úrskurð, að Hafnar
fjarðarbær veiti þeim undanþágu
frá uppsettu verið á gatna
gerðargjöldum fyrir væntanlegar
nýbyggingar að Austurgötu 22 og
Strandgötu 19.
Upphafið að þessu máli má
rekja til þess þegar Nýsir ehf. og
Fríkirkjan mynduðu með sér
félagið Austurgötu ehf. til kaupa á
húsum við Austurgötu, við hlið
safnaðar heimilis kirkjunnar. Hús
in voru rifin en er Nýsir fór á
haus inn fór þetta félag líka á haus
inn og kirkjan tapaði sínu hlutafé,
nokkr um milljónum. Fyrir rúmu
ári síðan eignaðist félagið Costa
Invest ehf. lóðirnar Austurgötu 22
a og b ásamt efstu hæð Strandgötu
19 í makaskiptum við félögin
Skák ehf. og Mát ehf. en bæði
félögin voru stofnuð árið 2009.
Lagði Costa Invest inn tillögur
að nýju skipulagi fyrir lóðirnar í
júní 2013 og var það samþykkt af
bæjaryfirvöldum. Eigendur Aust
ur götu 24 kærðu nýtt skipulag til
úrskurðar nefndar innar í febrúar sl.
en sökum manneklu hjá stofn u
ninni hefur úrskurður ekki borist.
Hafa forsvarsmenn Costa
Invest ákveðið að hefja fram
kvæmdir þrátt fyrir óvissuna um
niðurstöðuna og telja meiri líkur
en minni á að kærunni verði vísað
frá.
Í ljósi óvissunnar og þeim
fjárhagslega skaða sem fyrir tækið
segist vera búið að verða fyrir
óskar Sverrir Sverris son fram
kvæmdastjóri Costa Invest eftir
að fá undanþágu frá uppsettu
verði á gatnagerðargjöldum og
greiða 12 þúsund kr. á fermetra
sem hann segir nálægt því sem
þekkist í miðbæ Hafnarfjarðar.
Kæran er eflaust ekki fyrsta
kæra til úrskurðarnefndar sem
dregst að svara þrátt fyrir ákvæði
laga um að skera eigi úr deilum
innan þriggja mánaða en senni
lega fátítt að þriðji aðili eigi að
bera skaðann.