Akureyri - 27.11.2014, Qupperneq 1
44. tölublað 4. árgangur 27. nóvember 2014
VI
KU
BL
AÐ
„Kostaði mig næstum lífið“
Bónus hefur dregið til baka málsókn
gegn verslunarstjóra á Akureyri að sögn
verslunarstjórans. Fyrir þremur árum
sökuðu Bónusmenn Óðin Svan Geirsson
um þjófnað þar sem honum var gefið að
sök að hafa rænt vörum úr búðinni sem
hann stýrði. „Þeir hafa nú þurft að draga
málið gegn mér til baka og gera upp við
mig laun sem ég átti inni hjá þeim,“ segir
Óðinn.
Í Akureyri Vikublaði fyrir þremur
árum viðurkenndi Óðinn að hafa tekið
hluti í búðinni án þess að greiða fyrir þá.
„Það voru heimskulegar réttlætingar í
gangi hjá mér. Ég hegðaði mér eins og ég
ætti búðina. Samt var þetta ekki meira
en brot af daglegri neyslu matar og að-
eins innan veggja búðarinnar,“ sagði
hann þá.
Spurður í hverju vörn hans hafi
falist svarar Óðinn Svan því ekki beint.
Ákveðin óreiða hafi verið í kringum hann
á þessum tíma, hann hafi ekki verið með
allt á hreinu. Meðferðin sem hann og
fjölskylda hans hafi orðið fyrir af hállfu
Bónuss hafi þó verið með eindæmum og í
engu samræmi við málið þegar það kom
upp. „Þeir gengu mjög harkalega fram
í þessu máli gegn mér, það kostaði mig
næstum lífið. En ég kom niður á lapp-
irnar aftur. Lífið leikur við mig,“ segir
Óðinn Svan sem rekur nú lítið bakarí og
kaffihús á skíðasvæði í Noregi. -BÞ
Ásýnd eldgossins í Holuhrauni hefur breyst á þeim 88 dögum sem það hefur staðið. Kvikan æðir nú á milli gíganna sem einn væri og rennur
ofan eftir brún þeirra niður á slétturnar austan við eldstöðina. Hraunflóðið er ægifagurt í ljósaskiptunum eins og þessi mynd, sem tekin var í
útsýnisflugi í fyrradag sýnir glögglega. Völundur
flóra
* * * * * Erwin van der Werve / Innrömmuð rými / 29. nóvember - 23. desember 2014 * * * * *
Hafnarstræti 90 / 600 Akureyri / 6610168 / floraflora.is / opið fim.-fös. kl. 11-18 og lau. 11-16
S: 571-9331 - akureyri@boggmisetrið.is - www.boggmisetrið.is
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
12:00 - 22:00
HEFUR ÞÚPRÓFAÐBOGFIMI ?
AUSTURSÍÐA 2 - 603 AKUREYRI
Barnavöruverslun með öll helstu merkin í boði í dag
Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð