Skessuhorn - 28.11.2012, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
Full búð af
glæsilegri
gjafavöru
Stillholt 16-18 • 300 Akranes • Sími 431-1218
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
Margar góðar hugmyndir í jólapakkann
Sjón er sögu ríkari
Verið hjartanlega velkominn
Opnunartími:
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga 10-15
„Ég byrjaði í þessu starfi sem
forstöðumaður íþróttamannvirkja
þann sjöunda ágúst sl. Í þessu felst
yfirumsjón með íþróttahúsinu,
sundlauginni, knattspyrnuvellinum
og sparkvellinum hér í Grundar
firði," segir Aðalsteinn Jósepsson
34 ára Grundfirðingar sem settist
að á heimaslóðum aftur fyrir
tveimur árum. Auk Steina eru
þrír starfsmenn við íþróttahúsið.
„Við deilum einum þeirra með
skólanum en það er skólaliði sem
er hér á daginn og svo eru hér tveir
starfsmenn af sitt hvoru kyninu til
að sinna baðvörslu eftir að ég fer
eftir dagvinnutíma. „Sundlaugin hér
er lokuð yfir veturinn enda er hún
hituð upp með olíu og það gengur
ekki upp peningalega í vetrar
kuldum. Frá áramótum var orðið
ódýrara að hita upp sundlaugar eins
og þessa með rafmagni en þá þarf
að breyta öllum búnaði sem kostar
mikla peninga og verður varla
gert nema við getum fengið það
sem kallað er ótrygga orku og er á
mun lægra verði. Skólinn er með
íþróttahúsið fyrir hádegi en svo
tekur ungmennafélagið við. Það
er mjög virkt yngri flokka starf hjá
ungmennafélaginu og reglulegar
æfingar í fjórum íþróttagreinum;
fótbolta, blaki, fimleikum og
frjálsum íþróttum. Svo er karate æft
hér í Grundarfirði en þær æfingar
eru í samkomuhúsinu. "
Egilsstaðir voru bara
næstir á landakortinu
Steini, eins og hann er alltaf kallað
ur, ólst upp í Grundarfirði. „Ég
er samt svolítill Þingeyingur, er
ættaður þaðan og fæddist á Húsa
vík en fluttist svo tveggja ára
hingað til Grundarfjarðar." Eftir
grunnskólanám lagði hann hins
vegar land undir fót. „Ég fór í
Menntaskólann á Egilsstöðum og
lauk stúdentsprófi þaðan vorið
2000. Mig langaði í menntaskóla,
vildi ekki fara til Reykjavíkur,
Ísafjarðar eða Akureyrar og þá
voru Egilsstaðir næstir í röðinni
á landakortinu. Ég átti enga
tengingu þangað. Að vísu átti ég
þar ættingja sem ég hafði ekkert
verið í samskiptum við og þekkti
ekki þá. Fyrsta árs nemar í ME
voru þá úti á Eiðum og þar var ég
í heimavist fyrsta veturinn en síðan
á Egilsstöðum. Þetta var mjög
skemmtilegur tími og ég kynntist
mörgum þarna. Það fólk sem ég hef
mest samskipti við núna er einmitt
úr þessum hópi sem ég kynntist
fyrir austan."
Vildi ekki ala upp barn
í umferðargný
Að loknu stúdentsprófi lá leið
Steina aftur heim í Grundarfjörð
og hann vann í málningarvinnu auk
þess að reka vídeóleigu og sjoppu
í fjögur ár. „Svo ákvað ég að fara
í félagsfræði í Háskóla Íslands og
það tók mig heil tvö ár að átta mig
á því hve félagsfræðin væri leiðinleg
svo ég hætti því námi. Eftir það
var í ég í Reykjavík og vann við
steypusögun og kjarnaborun. Svo
kom að því að ég og kona mín
vorum bæði atvinnulaus í bænum
og með hálfs árs gamalt barn
að við ákváðum að skella okkur
hingað vestur í Grundarfjörð. Við
gátum ekki heldur hugsað okkur
að búa með barn þar sem við
bjuggum í umferðarniðnum við
Hringbrautina. Þetta var vorið 2010
og konan fékk vinnu hjá mömmu
minni, sem rekur Kaffi 59, en ég var
í ýmsum störfum en engu föstu. Ég
vann með tengdapabba við hreins
anir á tönkum og mjölsekkjum
en hann rekur fyrirtæki sem sér
um þess háttar. Þetta er aðallega í
fiskimjölsverksmiðju víða um land
en líka vorum við að hreinsa tanka
fyrir Olíudreifingu."
Fékk vinnu út á
óléttu konunnar
Kona Aðalsteins er Heiðrún
Hallgrímsdóttir og er hún frá Seyð
is firði. Þau eiga nú tvö börn; þriggja
ára strák og tveggja ára stelpu.
„Þegar konan gekk með yngra
barnið okkar hætti hún að vinna
á Kaffi 59 og ég tók við hennar
starfi þar. Ég fékk sem sagt vinnu
út á að hún varð ólétt. Ég hafði líka
keypt mér tæki til steypusögunar
og kjarnaborunar og vann við það
með þessu en það var ekki nema
einstaka dag því ekki er mikill
markaður fyrir slíkt hér um slóðir.
Þetta starf hér í íþróttamiðstöðinni
er eiginlega fyrsta fasta starfið
sem ég hef haft síðan ég kom í
Grundarfjörð aftur."
Þjálfar Ólsara í körfu og
spilar með þeim
Körfuboltinn hefur verið helsta
áhuga mál Steina, sem er nú að
spila sinn fimmt ánda vetur í
deildakeppni, ýmist í fyrstu eða
annarri deild. „Ég er spilandi
þjálfari hjá Víkingi í Ólafsvík
í annarri deildinni. Á mennta
skólaárunum spilaði ég tvo vetur
með Hetti í fyrstu deildinni."
Steini segist ánægður með að vera
kominn heim í Grundarfjörð og
það hafi alltaf verið stefnan eftir
að komin væru börn. „Ég bjóst
alltaf við að mín börn vildu vera
frjáls úti við eins og ég var þegar
ég var að alast upp. Slíkt er bara
ekki í boði við Hringbrautina
í Reykjavík," sagði Aðalsteinn
Jósepsson í Grundarfirði, sem er
ánægður með nýja starfið og segir
skemmtilegt að vinna með börnum
og unglingum alla daga. hb
Aðalsteinn Jósepsson í Grundarfirði
Það var alltaf stefnan að koma aftur heim
Aðalsteinn í íþróttasalnum í Grundarfirði.