Víkurfréttir - 03.11.2011, Síða 10
10 FIMMTudagurInn 3. nÓVEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
K.Steinarsson, - söluumboð ÖSKJU í Reykjanesbæ.
Holtsgötu 52, 260 Reykjanesbær - Sími 420 5000
Dæmi um kjarabíla
Tegund Gerð Mán. Tilboðsverð Afborgun
pr. mánuð*
Kia Sorento 60 3.090.000 44.890 kr.
Honda CRV 60 2.190.000 31.890 kr.
VW Tiguan 72 3.990.000 49.990 kr.
Kia cee´d 60 1.790.000 25.990 kr.
VW Passat 60 2.990.000 43.490 kr.
Toyota Rav4 60 2.190.000 31.890 kr.
Mitsubishi Lancer 36 990.000 22.390 kr.
Mercedes-Benz A-Class 36 1.690.000 38.090 kr.
*Afborgun miðast við 30% útborgun og óverðtryggðan bílasamning á 8,95%
föstum vöxtum fyrstu 36 mánuðina. Nánari upplýsingar á www.landsbankinn.is.
KJARADAGAR
Notaðir bílar á góðu verði.
Sérstök kjör á völdum bílum og frábærir lánamöguleikar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-0
8
6
5Kia cee’d 2008
Verð 1.790.000 kr.
Útborgun 537.000 kr.
25.990 kr.
m.v. 60 mán.
6 ára ábyrgð eftir frá framleiðanda
Dæmi um frábær kaup
Sæljós GK 2 var dregið til hafnar í Sandgerði á mánudagskvöld eftir að báturinn var sóttur
vélarvana nokkrar sjómílur út frá Sandgerði. Það
var björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein sem sótti
Sæljós.
Þegar komið var í innsiglinguna til Sandgerðis kom
björgunarbáturinn Gunnjón frá Björgunarsveitinni
Ægi í Garði til aðstoðar, en veður var þannig að að-
stoð Gunnjóns var nauðsynleg.
Þegar björgunarskipið var komið með Sæljós í höfn
hrökk vélin í gang og lagði báturinn því sjálfur að
bryggju.
Sæljós GK dregið
vélarvana til hafnar
Sæljós GK komið inn í höfnina í
Sandgerði. Björgunarbáturinn smái
en knái, Gunnjón, á stjórnborða.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Landfestum Sæljóss GK komið í land. Björgunarskipið
Hannes Þ. Hafstein í baksýn, en það sótti bátinn á
haf út. Gunnjón aðstoðaði svo þegar komið var í inn-
siglinguna til Sandgerðis.
Það eru fáar þúfur, stígar eða
grundir í Garðinum sem Karl
Njálsson hefur ekki markað spor
sín í. Garðurinn er sviðið sem
hann lék eitt af aðalhlutverkunum
á alla ævi. Hann var Garðmaður
eins og þeir gerast bestir. Vaxinn
úr grasi þar sem dugnaður var
dyggð og orð látin standa. Lífs-
björgin dregin úr Garðsjónum
og afkoman undir áræði hvers og
eins komin. Lífið var ekki dreg-
ið fram af hagtölum mánaðarins
eða súluritum sem teigðu sig til
himins. Kalli Njáls vissi það alla
tíð að lífsvonin felst í verðmæta-
sköpun, sem hefur verið í hönd-
um sjósóknara og verkafólks við
sjávarsíðuna, þar sem lífið var og
er salfiskur. Hann var vart kom-
in af fermingaraldri þegar hann
var búinn að leggja línurnar fyrir
framtíðina. Kominn í útgerð og
hark löngu fyrir tvítugt, útskrif-
aður úr Háskóla lífsins með láði.
Kalli Njáls var af þeirri kynslóð
sem lagði grunnin af velferð nú-
tímans með áræði og hörku til
vinnu alla tíð og hefði átt að njóta
launanna lengur. Hann gekk þó
stoltur frá verkum sínum, mætti
örlögunum af reisn. Hann var
skuldlaus við Guð og menn, var
alla tíð með sitt á hreinu. Dugn-
aður Karls og lífsförunautar hans
Guðrúnar Sigurðardóttur bar
ávöxt í lífi og starfi. Þau voru sam-
taka í öllum málum, studdu hvort
annað og voru jafningjar í rekstr-
inum. Gunna í bókhaldinu, Kalli
í atinu. Fjölskyldan og fyrirtækið
varð eitt þar sem natni, gæfa og
góðmennska spratt úr jarðvegi
sem gaf af sér fimm vænleg börn
og hagsæld í rekstri. Karl gekk
vasklega til verka og varð fljótt
þekktur af drifkrafti og góðum
rekstri fyrirtækis þeirra hjóna.
Hann tók þátt í öllum verkum
og dró hvergi af sér. Karl var eft-
irsóttur til ábyrgðarstarfa og spor
hans liggja víða í atvinnulífinu.
Kynni okkar hófust þegar hann
kom á bæjarskrifstofuna til að
leggja bæjarstjóranum sínum lín-
urnar. Hann bar einkenni veikinda
sinna þegar þessi fíngerði maður
stakk aðeins við og gekk hokinn
inn ganginn, tók niður pottlok-
ið og kastaði kveðju á stelpurn-
ar. Greip rauðan vasaklútinn og
snýtti sér kröftuglega. Hristi klút-
inn settist og tróð aftur fullfermi
af neftóbaki í rjótt nefið. Ég fann
það strax að þarna var kominn
maður að mínu skapi. Kalli Njáls
var góður leiðbeinandi, varkár og
traustur maður. Hann var sjóaður
í starfi og leik. Fór yfir málin af
yfirvegun, varaði bæjarstjórann
við pyttum lífsins og sagði frá því
góða sem Garðurinn hafði upp
á að bjóða. Sagði mér hvar brot-
sjóina bæri varast í risjóttu mann-
lífinu. Varaði mig við kvíguskap
og undanlátsemi, en hvatti til
sparnaðar og ráðdeildarsemi. Ég
þakkaði fyrir ráðin hollu, þétt
handtakið og vináttuglampann í
augunum. Kalli Njáls var af gamla
skólanum, fór hljóðlega um og
vildi ekkert prjál, en skildi þeim
mun meira eftir sig. Ég finn enn
tóbaksþefinn í loftinu sem varð
eftir þegar hann fór og tóbakið
hristist úr rauða tóbaksklútnum
þegar hann gekk hægum skrefum
út í síðasta sinn og setti upp pott-
lokið. Karl Njálsson skildi eftir
sig farsæl spor í Garðinn sinn.
Samúðarkveðjur sendum við til
Guðrúnar, barna, barnabarna og
fjölskyldunnar.
Sigríður Magnúsdóttir
Ásmundur Friðriksson
Karl Njálsson - minning
Auglýsingadeild í síma 421 0001
Fréttadeild í síma 421 0002
Afgreiðsla í síma 421 0000
Vikulegar Víkurfréttir
- inn á öll heimili á Suðurnesjum!