Víkurfréttir - 03.11.2011, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 3. nÓVEMbEr 2011
BLÁA LÓNIÐ ÓSKAR EFTIR
Helstu verkefni:
• Greining á markaðs- og sölutækifærum
• Gerð markaðs- og kynningarefnis, textagerð og hönnun
• Verkefnastjórnun og samskipti við hönnuði, birtingahús
og aðra samstarfsaðila
Hæfniskröfur:
• Viðskipta- eða markaðsfræði
• Almenn þekking á myndvinnsluforritum
• Gott vald á talaðri og ritaðri enskri og íslenskri tungu
• Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar til að starfa í hóp
Helstu verkefni:
• Ræsting og dagleg verkstjórn
• Þarfagreining og eftirlit
• Þróun verklags og þjálfun starfsfólks
• Ábyrgð á að notkun hreinsiefna uppfylli kröfur um umhverfisvernd
• Umsjón með tækjum og búnaði sem notaður er við þrif
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegum störfum mikill kostur
• Leiðtogahæfileikar og mikill metnaður
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Samviskusemi, skipulagshæfni og drifkraftur
Ræstingastjóra með tuskuæði
Ræstingastjóri ber ábyrgð á innri og ytri ásýnd húsnæðis
og umhverfis Bláa Lónsins og gegnir lykilhlutverki við upplifun gesta.
Við leggjum áherslu á að ræstingastjóri starfi náið með öflugu teymi
ræstingafólks og næturvarða að því að tryggja óaðfinnanlega
ásýnd Bláa Lónsins á hverjum tíma.
Markaðsfulltrúi starfar í öflugu teymi sérfræðinga sem mótar
og markaðssetur eitt öflugasta vörumerki Íslands. Um er að
ræða tækifæri til að starfa á alþjóðlegum vettvangi að krefjandi
og spennandi verkefnum á sviði markaðsmála.
Markaðsfulltrúa
Umsjónarmanni í kvennaklefa
Bláa Lónið þarf að bæta við í sterkt teymi nuddara vegna
mikillar eftirspurnar eftir frábærum meðferðum sem í boði eru.
Við leitum að kvenkynsnuddara sem hefur haldgóða reynslu
og menntun. Starfið krefst vilja til að veita framúrskarandi
þjónustu, mikillar hæfni í mannlegum samskiptum og almenns
líkamlegs hreystis.
Um framtíðarstörf er að ræða í 2-2-3 vaktakerfi
frá kl. 11.00-18.00.
Starfið felst í að hafa umsjón með ásýnd búningsklefa og sturtu-
aðstöðu kvenna. Starfið krefst vilja til að veita framúrskarandi
þjónustu, mikillar hæfni í mannlegum samskiptum og almenns
líkamlegs hreystis þar sem gestafjöldi er mikill og í mörg horn
að líta. Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg.
Um framtíðarstörf er að ræða í 2-2-3 vaktakerfi. Möguleiki er
á hlutastörfum með öðru skipulagi.
Kvenkynsnuddara
Innan raða Bláa Lónsins starfa úrvals starfsmenn sem búa yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum, eru agaðir og fágaðir í fram-
komu og sinna starfi sínu af mikilli samviskusemi. Nánari upplýsingar um stöfin veitir Helga Jóhanna Oddsdóttir mannauðs-
og gæðastjóri Bláa Lónsins í síma 420 8800 eða á helga@bluelagoon.is á milli kl. 10.00 og 12.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 10. október nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað. Bláa Lónið
er tóbakslaus vinnustaður.