Víkurfréttir - 03.11.2011, Qupperneq 16
16 FIMMTudagurInn 3. nÓVEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Um hvað fjallar Endalok Alheims-
ins?
„Endalok alheimsins hafa átt sér
stað og fjórar síðustu manneskj-
unar á jörðinni er fólk sem þú
myndir ekki láta passa börnin
þín. Þetta fjallar semsagt um það
hvernig þetta fólk ætlar að halda
áfram. Þetta er í raun soldið eins
og hrunið okkar. Hvernig ætlum
við að halda áfram? Ætlum við
að halda gömlu góðu gildunum?
Ætlum við að fjalla um siðferði og
haga okkur eins og manneskjur eða
ætlum við að halda áfram að bjarga
bönkum og telja peninga?“ spyr
Bergur Ingólfsson leikstjóri Enda-
loka alheimsins sem er senn verður
sýnt í Kvikunni í Grindavík.
Bergur heldur svo áfram „Í sýn-
ingunni eru persónur verksins að
reyna að koma sér saman um eitt-
hvað og svo er spurning hvort að
þeim tekst það. Hagsmunaárekstr-
ar eru gífurlegir. Setja þarf fólk í
hlutverk og búa til goggunarröð.
Þau eru í raun með hreint borð eftir
að allt hefur hrunið, allir fara að
berjast fyrir sínu plássi, þó svo að
nóg sé til af plássinu.“
Fæðist hugmyndin að leikritinu í
kjölfar hrunsins?
„Já algerlega. Þetta er ofarlega í
hugum okkar allra og þegar Geir
H. Haarde sagði guð blessi Ísland
og skýrslan var gefin út þá hugsaði
ég með mér að nú væri tækifæri
til þess að við kæmum okkur öll
saman um eitthvað heilbrigt en mér
sýnist það tækifæri vera að renna
okkur úr greipum. Mér líst ekki á
blikuna ef umræðan í þjóðfélaginu
endurspeglar hugarfarið.“
Bergur segir verkið þó ekki vera
fullt af leiðinda pólitík, þó svo að
hann voni að það sé einhver ádeila
þarna inn á milli. „Þetta er fyrst
og fremst gamanverk um þessa
fjóru gölluðu einstaklinga sem eru
að reyna hvað þeir geta að búa
saman.“
Bergur segir æðsta markmið GRAL
vera að efla leiklist og menningu í
Grindavík og á Suðurnesjum sem
og á Íslandi öllu. Það sé draumur
þeirra að hægt sé að vera með leik-
hússtarfsemi í Grindavík sem laðar
fólk allstaðar frá til að koma og
njóta menningarinnar í Grindavík.
„Því setjum við mikinn metnað
í sýningarnar okkar og er hvergi
slakað á gæðakröfum. Það leikhús
sem við sköpum stenst fyllilegan
samanburð við stóru leikhúsin sbr:
LA, Borgó og Þjóðleikhúsið. Til
vitnis um það ber að nefna það hér
að GRAL fékk tilnefningu til Grím-
unnar árið 2008 fyrir besta handrit
fyrir verkið 21 manns saknað,“ en
gagnrýnendur hafa gefið GRAL
einstaklega góða dóma fyrir bæði
21 manns saknað og Horn á höfði.
Hvernig gengur að halda úti at-
vinnuleikhúsi í Grindavík?
„Það hefur gengið alveg ótrúlega
vel, miðað við að við erum ekki
með húsnæði. Við erum hópur
fólks - hugmynda- og tækifær-
issmiðja. Bærinn er að koma til
móts við okkur, sem og menn-
ingarráð Suðurnesja sem hefur ver-
ið með okkur í liði. Þetta er þriðja
sýningin sem við setjum upp og
við höfum þegar fengið styrk til að
byrja á þeirri fjórðu frá menningar-
ráðinu. Ein sýning er uppákoma,
tvær sýningar er endurkoma, þriðja
skiptið gerir þetta að seríu og við
það fjórða erum við orðin að ein-
hverjum pósti.“ segir Bergur og það
má greina það á orðum hans að
GRAL er komið til að vera.
Eru Suðurnesjamenn duglegir að
sækja sýningar ykkar, eða er þetta
fólk að koma af höfuðborgarsvæð-
inu?
„Ég held að meirihlutinn sé af
höfuðborgarsvæðinu. Tilfinningin
er sú að þetta sé svona í hlutfalli við
íbúafjölda, þó svo að ég hafi ekki
staðið við dyrnar og talið Suður-
nesjamennina.“
Gagn og gaman
Hvers vegna hérna í Grindavík?
„Ég spyr sjálfan mig að þessu mjög
oft. Ég veit það ekki, jú kannski það
að alast hér upp og sjá áhugaleik-
félagið í basli og kannski ekki mjög
Grindvíska atvinnuleikhúsið, eða GRAL hefur hægt en örugglega byggt upp
starfsemi sína undanfarin ár. Leikfélagið byrjaði á því að setja upp einleik um Séra Odd
V. Gíslason. Svo kom 3ja manna barnaleikrit, Horn á höfði, sem var sýnt fyrir fullu húsi í
Grindavík við frábærar undirtektir áhorfenda á öllum aldri. Horn á höfði hlaut svo íslensku
leiklistarverðlaunin – Grímuna árið 2009 sem besta barnasýningin og var í framhaldi færð
í Borgarleikhúsið og sýnd þar við frábærar undirtektir. Allt þetta ber vitni um þau gæði
og þann metnað sem leikfélagið leggjur í sýningarnar og alla umgjörð. Nú í október 2011
heimsfrumsýnir GRAL, Endalok alheimsins, glænýtt íslenskt leikverk í Grindavík. Á teikni-
borðinu er svo einnig fjölskyldusöngleikurinn HALARASS sem er sjálfstætt framhald af
Horn á höfði.
virkt. Ég hafði mikinn áhuga á leik-
húsi sem barn og vildi gera eitt-
hvað þessu líkt hér í bænum. Nú
er ég orðinn fullorðinn og vinn við
leikhús í Reykjavík. En það liggja
líka tækifæri í þessu fyrir mig, að
vinna að mínum hugmyndum
í mínu umhverfi, og í mínu leik-
húsi.“ Bergur segir að Grindavík
gæti vel verið svefnbær þar sem
fólk fer kannski frekar á kvöldin í
höfuðborgina þar sem hér sé t.d.
ekkert bíó. „Bærinn þarf ekkert að
vera svefnbær. Þetta getur líka verið
að hinn veginn, hér var bíósalnum
lokað af því að það er svo stutt í
bæinn að sækja alla menningu, það
er líka stutt úr bænum hingað og
því má þetta alveg vera öfugt. Ég
vil líka láta gott af mér leiða, hvort
sem það er í leikhúsinu eða annars
staðar, mér finnst ég bæði gera gagn
og hef gaman af.“
Ertu meira að fara út í leikstjórn?
„Já það gæti verið. Ég fékk tækifæri
til að leikstýra Galdrakarlinum í
Oz í Borgarleikhúsinu eftir að hafa
leikstýrt Hornum á höfði hérna í
Grindavík. Gralið finnst mér svo-
lítið eins og að vera í hljómsveit,
við vinnum þannig. Hérna fæ ég
að framkvæma hugmyndir mínar,
með vinum og samstarfsmönnum
sem eru öll frábærir listamenn.
Þegar mig langaði til að vera leikari
sem lítill strákur, þá langaði mig
til að leika, skrifa, leikstýra og gera
þetta allt saman. Mér fannst starfið
snúast um að vera leikhúsmaður,
ekki bara leikari, Gralið gefur mér
tækifæri til þess koma að öllum
þessum þáttum.“
Hverju má fólk eiga von á í þessari
sýningu?
„Það á von á því að kannast við
ýmislegt úr eigin lífi og samfélaginu.
Fólk mun vonandi hlæja með kökk
í hálsinum og hugsanlega koma
auga á eigin galla og annarra hér
og þar og hafa gaman af,“ sagði
Bergur að lokum.
Endalok
alheimsins
• vf.is • m.vf.is
Nýjustu fréttir!