Víkurfréttir - 03.11.2011, Qupperneq 17
17VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 3. nÓVEMbEr 2011
Í TILEFNI AF ÞVÍ AÐ BÍLAR & HJÓL EHF HEFUR TEKIÐ VIÐ ÞJÓNUSTUUMBOÐ
I FYRIR
ÖSKJU BÍLAUMBOÐ KIA OG MERCEDES BENS ÞÁ BJÓÐUM VIÐ EFTIRFARAN
DI TILBOÐ Í NÓVEMBER
N Ó V E M B E R T I L B O Ð
20%
AFSLÁTTUR
AF OLÍU OG VINNU
SM
URNING
15%
AFSLÁTTUR
AF VINNU SAM-
KVÆMT VERÐSKRÁ
VER
KSTÆÐI
15%
AFSLÁTTUR
AF VINNU OG
ÖLLUM DEKKJUM
DEKK
15%
AFSLÁTTUR
AF VERÐSKRÁ
SP
RA
UT
UN OG RÉTTING
MEÐ ÖLLUM TILBOÐUM ER BOÐIÐ UPP Á ÓKEYPIS ÁSTANDSSKOÐUN Á DEKKJUM, BREMSUM, ÞURRKUBLÖÐUM,
LJÓSABÚNAÐI OG FROSTLÖG ÁSAMT FRÍRRI ÁFYLLINGU AF RÚÐUVÖKVA
ÞEIR SEM VILJA NÝTA SÉR ÞETTA TILBOÐ VINSAMLEGA PANTIÐ TÍMA
Í SÍMA 421 1118 BÍLAR OG HJÓL, NJARÐARBRAUT 11ATH!ATH!AT
!A !
Starfsdagur Suðurnesjavaktarinnar fór fram sl. fimmtudag og tókst mjög vel en það mættu tæp-
lega 130 manns í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.
Markmiðið með starfsdeginum var að kynna öll
úrræði og athafnir sem eru í boði á Suðurnesjum á
sviði velferðarþjónustu en um langt bil hefur verið
talin þörf á markvissri kynningu fyrir þá sem starfa
að ráðgjöf og þjónustu við einstaklinga á svæðinu.
Þarna voru komnir saman aðilar sem standa að baki
fulltrúum í Suðurnesjavaktinni ásamt öðrum sem
starfa að velferðarmálum á svæðinu. Þarna voru
meðal annars fulltrúar frá öllum félagsþjónustum
sveitarfélaganna á svæðinu, Vinnumálastofnun, Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, menntastofnunum, kirkj-
unni, fræðsluskrifstofum og fleirum.
Ingibjörg Broddadóttir frá velferðarráðuneytinu og
formaður Suðurnesjavaktarinnar flutti ávarp í upp-
hafi dags. Eftir það hélt Lovísa Lilliendahl, verkefnis-
stjóri Suðurnesjavaktarinnar, kynningu á úrræðum
og fleiru sem er í boði á svæðinu og í framhaldinu
fengu allir fulltrúar tækifæri til þess að kynna nánar
sínar eigin stofnanir og samtök. Suðurnesjakonan
Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Ís-
lands hélt skemmtilegt erindi og góð hvatningarorð
til okkar Suðurnesjamanna. Lára Björnsdóttir for-
maður stýrihóps velferðarvaktarinnar hélt svo stutta
tölu í lok dags. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sand-
gerði sá um fundarstjórn.
Í tilefni dagsins var einnig kynntur nýr bæklingur sem
Suðurnesjavaktin tók saman og inniheldur úrræði og
athafnir á sviði velferðarmála á Suðurnesjum 2011.
Velferðarvaktin var sett á laggirnar í kjölfar efnahags-
hrunsins en hlutverk hennar er að fylgjast með félags-
legum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum banka-
hrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu
með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í
þágu heimilanna. Velferðarvaktin er óháður álitsgjafi
sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmuna-
aðila. Suðurnesjavaktin hefur verið starfandi frá því í
janúar á þessu ári.
Við erum hópur fólks - hugmynda-
og tækifærissmiðja. Bærinn er að
koma til móts við okkur, sem og
menningarráð Suðurnesja sem
hefur verið með okkur í liði.
130 þátttakendur á starfsdegi
Suðurnesjavaktarinnar