Víkurfréttir - 03.11.2011, Blaðsíða 24
24 FIMMTudagurInn 3. nÓVEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Þau hjónin Hulda Sveins og Hrafn Jónsson eiga hand-
verksfyrirtækið Raven Design,
sem þau reka í Reykjanesbæ, í
Fjósinu í Koti, í Ytri Njarðvík. Á
þessu ári hefur þeirra fyrirtæki
verið valið til að taka þátt í tveim-
ur sérstökum verkefnum Íslands-
stofu (áður nefnt Útflutningsráð
Íslands) og er þetta mikill heiður,
því takmarkaður fjöldi fyrirtækja
komast að á öllu landinu hverju
sinni.
Fyrra verkefnið sem Raven Design
var valið í heitir Hönnun í Útflutn-
ing sem er þróunarverkefni sem
Íslandsstofa leiðir í samstarfi við
Hönnunarmiðstöð Íslands, Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands og Sam-
tök iðnaðarins. Markmið verkefn-
isins er að leiða saman hönnuði og
fyrirtæki í samvinnu um hönnun
og framleiðslu á útflutningsvörum.
Þátttaka Raven Design var tvíþætt,
annars vegar var að finna umbúðir
fyrir stærri vörur s.s. plexí- og leð-
urvörur og hins vegar að hanna
borð- og gólfstanda fyrir alla vöru-
línuna.
Þátttakendur í verkefninu munu
fá framlag að upphæð 500.000 kr.
til að standa straum af hönnunar-
kostnaði, gegn a.m.k. jafnháu mót-
framlagi fyrirtækisins. Þriðjudag-
inn 21. júní skrifuðu Raven Design
og Sóley Þórisdóttir vöruhönnuður
sín á milli undir samstarf í verkefn-
inu og hófst þar með fimm mánaða
ferli sem lýkur núna í nóvember.
Fyrirtækin sem voru valin í þetta
verkefni eru Amivox, Bjarmaland,
Glófi, Matorka, Raven Design, Saga
Medica, Sif Cosmetics og Triton.
Seinna verkefnið sem Raven De-
sign var nýlega valið í kallast ÚH
(Útflutningsaukning og hagvöxtur)
sem er markaðs- og þróunarverk-
efni fyrir fyrirtæki þar sem starfs-
menn eða stjórnendur vinna með
viðskiptahugmynd er varðar út-
flutning á vöru eða þjónustu.
Að þessu sinni var verkefnið Keilir
heilsukoddi fyrir valinu. Verkefn-
ið stendur yfir í 12 mánuði og er
skipt í þrennt þar sem fyrirtækin
fá fræðslu og þjálfun með áherslu
á markaðs- og sölumál, stefnumót-
un, og áætlanagerð. Þar fá eigend-
ur Raven Design góðan grunn að
undirbúningi á erlendan mark-
að með áherslu á markaðsval og
markaðsrannsókn sem unnið er í
samvinnu við meistaranema í HÍ.
Einnig kemur til þjálfun í sölu- og
samningatækni, sýningarþátttöku
og kynningartækni samhliða vöru-
aðlögun og markaðs- og kynn-
ingarefni fyrir erlenda markaðs-
setningu. Markaðssetning erlendis
verður í samstarfi við erlenda ráð-
gjafa þar sem markmiðið er að ná
viðskiptasamböndum og að lokum
sölu.
Að ÚH verkefninu standa Íslands-
stofa, Samtök iðnaðarins, Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, Byggða-
stofnun og Félag kvenna í atvinnu-
rekstri. Fjöldi fyrirtækja í ÚH er
takmarkaður við 8 þátttakendur á
landinu og var Raven Design eitt
þeirra.
Margrét Sesselja Magnúsdótt-ir og tenórsöngvarinn Stef-
án H. Stefánsson standa saman
að verðugu verkefni sem hefur
svo sannarlega undið upp á sig.
Það byrjaði allt með því að Mar-
gréti langaði að gleðja móður
sína, heitina á afmælisdaginn, en
hún var með Alzheimer sjúkdóm-
inn. Margrét og systkini hennar
vildu gefa mömmu sinni öðruvísi
afmælisgjöf þar sem gjafir hefðu
ekki skipt miklu máli fyrir móð-
urina sem ástands hennar vegna.
„Okkur datt í hug að það gæti ver-
ið skemmtileg tilbreyting að fá
einhvern til að syngja fyrir hana
og ég nefndi það við deildarhjúkr-
unarfræðinginn á Hrafnistu, sem
tók vel í hugmyndina. Úr varð
að við fengum tvo söngvara, en
annar þeirra var Stefán Helgi og
undirspilara til þess að syngja
gömul íslensk lög.“ Afmælisgjöf-
in skilaði svo sannarlega sínu
en þegar söngurinn byrjaði lifn-
aði yfir heilli 18 manna deild og
það kom glampi í augu fólksins,
en flest þeirra eru í hjólastól og
bregðast venjulega ekki við miklu
í umhverfi sínu.“
Í kjölfar þessarar vel heppnuðu
uppákomu ákvað Margrét að gera
eitthvað gott úr þessu og gaf hún
sig á tal við Stefán Helga og hann
tók vel í þessa hugmynd Margrétar
að fara á fleiri heimili og syngja
fyrir íbúana. Verkefnið sem hlaut
nafnið Elligleðin ferðast nú um
landið og heldur áfram að gleðja
Alzheimer-sjúklinga og þá sem
glíma við heilabilanir, en heimili
fyrir aldraða á höfuðborgarsvæð-
inu fá nú orðið mánaðarlega heim-
sókn frá þeim. Stefán hefur svo
sannarlega sungið sig inn í hug og
hjörtu sjúklinganna en mikil gleði
hefur brotist út á skemmtununum
en blaðamaður var viðstaddur slíka
skemmtun í Selinu í Njarðvík á
dögunum. Stefán söng þá listavel
og sagði skemmtilegar sögur þess á
milli. Hann lét þó ekki þar við sitja
heldur bauð hann konunum upp í
snúning og kraup á kné og söng til
þeirra, hann gjörsamlega heillaði
þær upp úr skónum.
Verkefnið gengur eingöngu á styrkj-
um en Lionsklúbbur Njarðvíkur
styrkti einmitt verkefnið við þetta
tækifæri. „Þetta gengur á styrkjum
og við höfum verið það lánsöm að
fólk og ýmis samtök hafa lagt okkur
lið,“ segir Margrét. Hún segir að
það vanti alltaf fleira fólk til þess að
leita styrkja þó svo að henni finn-
ist vinnan vera skemmtileg en hún
hefur ekki verið sem best til heils-
unnar sjálf. „Þó svo að það geti ver-
ið erfitt að fjármagna þetta og mikil
vinna sem fylgi þessu þá munum
við ekki láta einhver peningamál
stöðva þetta verkefni,“ sagði Mar-
grét að lokum.
Menntastoðir er nám unn-ið í samstarfi við Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum,
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og
Keili, miðstöð vísinda, fræða og
atvinnulífs. Námið er hugsað sem
undirbúningur til áframhaldandi
náms og miðar við háskólabrú
Keilis og frumgreinadeildir við
Bifröst, Háskólann á Akureyri og
HR. Boðið er upp á þrjár mismun-
andi leiðir, staðnám, dreifinám og
fjarnám. Helsti munurinn er sá að
staðnám tekur um 6 mánuði og er
kennt alla virka daga en dreifi- og
fjarnám tekur 10 mánuði og er
kvöld/helgarskóli með fjarnáms-
sniði. Fyrsti hópur fjarnámsnema
lýkur námi í desember næstkom-
andi og nýr hópur fer af stað í
janúar 2012.
Fjarnámið byggir á einni helg-
arstaðlotu í mánuði en tvisvar
í viku er nýtt kennsluefni sett á
netið, sem nemendur vinna með
heima. Námið veitir nemandanum
færi á því að þjálfa þá námstækni
sem nauðsynleg er við fjarnám,
kynnast kennslukerfi sem notað
er við fjarnám auk þess að þjálfa
sjálfstæði í vinnubrögðum. Nú
þegar hefur skapast góð reynsla
af náminu og komið í ljós að þörf
var á möguleika til þess að stunda
nám með vinnu og heimilisrekstri,
fjarri heimabyggð. Mikil áhersla er
lögð á að þróa námið í samráði við
nemendur svo koma megi til móts
við þarfir fullorðinna námsmanna
og að undirbúningur fyrir frekara
nám sé sem bestur.
Þá er lögð áhersla á að nemend-
ur læri að læra, öðlist aukna trú á
eigin getu og átti sig á því að nám
er raunhæfur möguleiki en ekki
fjarlægur draumur. Flestir nem-
endur sem koma í Menntastoð-
ir, óháð því hvaða leið þeir velja,
eru í svipuðum sporum. Þeir hafa
ekki stundað nám í langan tíma,
tekið sér frí frá skólagöngu af ein-
hverjum ástæðum og hafa áhuga á
að mennta sig og breyta til í lífinu.
Það getur reynst mörgum erfitt að
stíga fyrsta skrefið og setjast aftur á
skólabekk en staðreyndin er sú að
langflestir nemendur koma sjálfum
sér á óvart í náminu, segjast öðlast
meira sjálfstraust og skemmtilega
reynslu þrátt fyrir mikið álag á
stundum.
Nú þegar hafa 122 nemendur lokið
fullu námi í Menntastoðum og um
80% þeirra hafið nám í Háskólabrú
Keilis. Menntastoðir opna mögu-
leika þinn til þess að setjast aftur
á skólabekk og taka fyrsta skref-
ið að áframhaldandi námi. Gríptu
tækifærið og komdu með!
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu Miðstöðvar símennt-
unar á Suðurnesjum, www.mss.is
eða hjá Særúnu Rósu Ástþórsdóttur
í síma 412 5952/421 7500. Skráning
er þegar hafin á www.keilir.net
Skráning hafin fyrir vorönn 2012
Menntastoðir
– tækifærið bíður þín!
Sigrún Elísabeth Arnardóttir stundar fjarnám í Menntastoðum:
Með 7 börn og stórt heimili var ég farin að sjá að ég myndi ekki geta
farið í neitt nám næstu árin. En ég skellti mér af stað fyrst loksins var
boðið upp á þetta snilldar fjarnám svo ég gæti haldið áfram og komist
í Háskólabrú Keilis. Og þó ég myndi ekki halda áfram í námi þá er ég
búin að læra það mikið að ég get hjálpað mínum börnum með margt í
sínu námi sem ég hefði ekki getað áður.
Í Menntastoðum er kennslan mjög vel upp sett og öll aðgengileg á
netinu, svo ég get lært þegar ég hef tíma. Mér finnst frábært að hafa
lotukerfi og samskipti við kennara eru þægileg og góð.
Svo þetta nám er bara akkúrat eins og ég vil hafa það, alveg sniðið fyrir
mig. Og með 8. barn á leiðinni þá ætla ég að skella mér í Háskólabrú
hjá Keili í janúar að loknum Menntastoðum.
Handverksfyrirtæki valið í tvenn verkefni Íslandsstofu
Elligleðin
ferðast um landið
- með stuðningi frá Lionsklúbbi Njarðvíkur
Stefán hefur svo sannarlega sungið sig inn í hug og hjörtu sjúklinganna
en mikil gleði hefur brotist út á skemmtununum en Víkurfréttir voru við-
staddar slíka skemmtun í Selinu í Njarðvík á dögunum. Stefán söng þá
listavel og sagði skemmtilegar sögur þess á milli. Hann lét þó ekki þar við
sitja heldur bauð hann konunum upp í snúning og kraup á kné og söng til
þeirra, hann gjörsamlega heillaði þær upp úr skónum. Verkefnið gengur
eingöngu á styrkjum en Lionsklúbbur Njarðvíkur styrkti einmitt verkefnið
við þetta tækifæri. Myndin var tekin við það tækifæri.