Víkurfréttir - 03.11.2011, Síða 31
31VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 3. nóveMber 2011
„Eldri leikmönnum og
þjálfurum sýnd mikil virðing“
›› Grindvíkingurinn Gunnar Þorsteinsson
gerir það gott með unglingaliði Ipswich
Grindvíkingurinn Gunnar Þ o r s t e i n s s o n h e f u r
undanfarna fjóra mánuði dvalið
hjá hinu þekkta knattspyrnuliði
Ipswich þar sem hann leikur með
unglinga- og varaliði félagsins.
G u n n a r e r 1 7 á r a g a m a l l
miðjumaður sem ætlar sér stóra
hluti í heimi knattspyrnunnar.
„ Mér hefur gengið rosalega
vel. Ég hef náð öllum þeim
markmiðum sem ég setti mér
og í rauninni gott betur en það,“
segir Gunnar en hann hefur
unnið sér fast sæti í undir 18 ára
liði félagsins og hann hefur verið
að fá að spila með varaliðinu.
„Maður renndi dálítið blint í
sjóinn og vissi í raun ekki hvar
maður stæði í samanburði við
þessa stráka þarna úti.“ Gunnar
er varnarsinnaður miðjumaður
sem hefur ágætis auga fyrir spili.
Hann er að eigin sögn svolítill
hlaupagikkur.
Gunnar, sem er þaulreyndur
landsliðsmaður í yngri landsliðum
Íslands bauðst að fara á reynslu
til Ipswich í vor og í framhaldi
buðu þeir honum að ganga til liðs
við félagið. „Ég er vinnusamur
leikmaður og legg hart að mér, ég
reyni svo að sýna fagmennsku og
gera hlutina rétt,“ segir Gunnar
aðspurður um það hvers vegna
hann teldi að Ipswich hefði sýnt
honum áhuga.
Gunnar neitar því ekki að hafa leitað
í reynslubanka Óskars Péturssonar,
markvarðar Grindvíkinga sem
lék um skeið með unglingaliðum
Ipswich. „Ég sagði ekki já fyrr en
ég hafði rætt við Óskar. Hann sagði
að þetta væri tækifæri sem maður
ætti ekki að sleppa.“ Gunnar telur
að þetta hafi verið rétti tíminn
til að fara út á vit ævintýranna í
atvinnumennskunni. „Ég hefði
ekki getað farið yngri út. Það er
annað hvort hægt að slá í gegn á
Íslandi og komast þannig erlendis,
eða að fara ungur út og komast í
gegnum unglingastarf félaganna í
aðalliðið. Án þess að lasta Ísland
og þá frábæru umgjörð sem er hér
í fótboltanum, þá er þetta topp
klúbbur þar sem samkeppnin er
miklu meiri og þú ert að vinna
við það að spila fótbolta allan
daginn. Til þess að komast í liðið
þá þarftu að vera á tánum hvern
einasta dag. Ég leit á þetta sem
áskorun og tækifæri til að þróa enn
frekar sem leikmann í umhverfi
atvinnumanna.“
Ertu búinn að setja þér
háleitari markmið?
„Ég hef að s j á l f s ögðu mín
langtímamarkmið en ég kýs að
halda þeim fyrir mig,“ segir Gunnar
hógvær en hann sleit takkaskónum
að mestu leyti í Grindavík en
hann fluttist til Grindavíkur sjö
ára að aldri. „Ég hafði búið áður í
Vestmannaeyjum og hafði eitthvað
verið að sprikla þar.“ Annars hefur
Gunnar leikið með Grindvíkingum
og þar hafði hann aðeins fengið
smjörþefinn af meistaraflokknum
áður en hann hélt í víking til
Englands.
Hvernig klúbbur er Ipswich?
„Þetta er bara topp klúbbur og það
er hugsað mjög vel um okkur. Þó
að Ipswich sé stór klúbbur þá er
þetta allt á fremur persónulegum
nótum. Við erum mikið í kringum
aðalliðið og það kemur oft fyrir að
við spilum á móti þeim svo að þetta
sé frek. Þetta er því alls ekkert svo
aðskilið eins og hjá allra stærstu
klúbbunum.“
Hefurðu bætt þig sem
leikmaður á þessum tíma
hjá Ipswich?
„Ég hef tvímælalaust bætt mig
sem leikmaður og það er fullt af
hlutum sem ég hef náð betri tökum
á. Aðallega það að aðlagst hröðum
leik eins og tíðkast á Englandi.“
Hvernig er staðurinn
Ipswich?
„Þetta er svipað Reykjavík að stærð
og mér skilst að borgin sé frekar
róleg. Miðbærinn er ágætur en ég
bý í frekar rólegu úthvefi hjá enskri
fjölskyldu. Englendingarnir eru
fínir og það er gaman að upplifa
öðruvísi menningu og víkka þannig
sjóndeildarhringinn.“ Gunnar segir
það töluverð viðbrigði að venjast
því að þarna er eldri leikmönnum
og þjálfurum sýnd mikil virðing
en það tíðkast ekki jafn mikið hér
á Íslandi.
„Það er miklu meiri agi hvað
það varðar, á Íslandi er allt miklu
afslappaðra, það er helsti munurinn.
Svo er margt í menningunni sem
tekur smá tíma að venjast en það
hefur bara gengið vel.“
Gunnar hefur verið varafyrirliði hjá
undir 18 ára liðinu og einnig hefur
hann verið með fyrirliðabandið hjá
yngri landsliðum Íslands.
Ertu leiðtogi á vellinum?
„Ég læt i mér heyra og reyni að
láta verkin tala. Það er alltaf mikill
heiður að fá að bera bandið,“ segir
hann og bætir því við að auðvitað
sé samkeppni um það eins og
stöðurnar á vellinum.
Hvernig finnst þér annars
yngriflokkastarfið hjá
Grindavík?
„Það er mjög vel haldið utan um
það og það er gott. Málið er samt að
þó að það sé aldrei afsökun þá er svo
mikill munur á fólksfjölda hérna og
í stærri klúbbunum hérlendis. Það
hafa þó alltaf skilað sér leikmenn
í úrvalsdeildarklassa úr hverjum
árgangi hér í Grindavík.“
Gunnar ætlar sér að gera hvað hann
getur til þess að ná sem allra lengst
í fótboltanum. „Ég lagði þetta
þannig upp að ég ætla að leggja
allt í sölurnar til þess að ná árangri
og til þess að ná þeim markmiðum
sem ég hef sett mér,“ hver þau
markmið eru verður svo tíminn
að leiða í ljós en ljóst er að Gunnar
ætlar sér stóra hluti.
LIÐ Í ENSKA? ARSENAL.
GRINDAVÍK EÐA
VESTMANNAEYJAR?
GRINDAVÍK EN HEF STERKAR
TAUGAR TIL EYJA.
EITTHVAÐ ÁHUGAVERT
UM ÞIG SEM FÁIR VITA? ER
SÉRLEGUR ÁHUGAMAÐUR UM
KROSSGÁTURNAR Í LESBÓK
MORGUNBLAÐSINS.
HVER ER EFTIRLÆTIS
BÍÓMYNDIN ÞÍN OG HEFURÐU
SÉÐ EINHVERJA GÓÐA
NÝLEGA? PULP FICTION ER
KLÁRLEGA NÚMER EITT. SÁ DRIVE
NÝLEGA OG RYAN GOSLING ER
EKKI ÚTI AÐ AKA ÞAR.
BESTU SJÓNVARPSÞÆTTIR?
HIMYM, THE BIG BANG THEORY,
THE VAMPIRE DIARIES (TAKK
KJARTAN) OG FRIENDS.
HVERS SAKNARÐU MEST
AÐ HEIMAN, FYRIR UTAN
ÆTTINGJA OG VINA? MATARINS,
NÁTTÚRUNNAR OG FEGURÐAR
ÍSLENSKS KVENFÓLKS.
DRAUMURINN ER AÐ SPILA
MEÐ?
ÍSLENSKA A-LANDSLIÐINU
TÓNLIST SEM KEMUR ÞÉR Í
STUÐ?
SKRILLEX ÞYKIR VERA FAGMAÐUR
Á ÞVÍ SVIÐI.
SUMARIÐ HJÁ GRINDAVÍK
VAR?
FYRSTI KAFLI Í NÝJU
TÍMABILI, VAKNING ÞAR SEM
MENN ÁTTUÐU SIG Á AÐ
HUGARFARSBREYTING ÞYRFTI AÐ
EIGA SÉR STAÐ. FRAMTÍÐIN ER
BJÖRT.
EFTIRMINNILEGASTA ATVIK Á
FÓTBOLTAFERLINUM?
ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI FYRSTI
LANDSLEIKURINN OG FERÐ
ÞRIÐJA FLOKKS Á GOTHIA CUP
2010.