Víkurfréttir - 03.11.2011, Side 32
vf.is
Opið frá kl. 8:00 - 17:00
Engar tímapantanir
Njarðarbraut 7
Bifreiðaskoðun
Til hamingju með grænt
gagnaver!
Við óskum Verne Global til hamingju með opnun á 500 m2 gagnaveri á Ásbrú
í Reykjanesbæ. Gagnaverið er fyrsti áfangi uppbyggingar á alþjóðlegri miðstöð
gagnavera á Ásbrú sem verður knúin af endurnýjanlegum orkugjöfum. Gagna
verið er þar að auki sér hannað til þess að nýta vind kæl ingu á svæð inu sem
sparar gríðar legt magn af orku. Gagnaverið er umhverfisvænn hátækniiðnaður.
Framtíðin er græn.
Verne Global er eitt fjölmargra fyrirtækja
sem kjósa Ásbrú, samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs, sem sína bækistöð.
Nánari upplýsingar um Ásbrú má finna á
www.asbru.is og hjá Kadeco sem hefur frá
árinu 2006 leitt uppbyggingu á Ásbrú.
Ásbrú í Reykjanesbæ er kjörinn staður fyrir fyrirtæki á sviði tækni og
heilsu tengdrar þjónustu, auk fyrir tækja sem sjá hag sinn í nálægð við
alþjóða flugvöll.
Á Ásbrú er stór háskóla garður, spennandi nám í boði hjá Keili, kvikmynda
ver, heilsu þorp í farar broddi heilsu ferða mennsku, tækni þorp og fjöldi
áhuga verðra sprotafyrirtækja. Mikil upp bygging er á svæðinu
og má þar nú meðal annars finna
leikskóla, grunn skóla og veitinga stað.
Verður þín hugmynd að veruleika á Ásbrú?
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA
Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
www.verneglobal.is
Fimmtudagurinn 3. nóvember 2011 • 43. tölublað • 32. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Barnadagar
í nóvember
ÖLL BARNABOX
Á KR. 250, -
Andagift í
eymdinni
Eitt af því sem við hjónin höfum
gaman af, er að fara saman í leik-
hús eða á tónleika.
Getum hreinlega
ekki án þeirra ver-
ið. Leikhúsin veita
manni andagift
sem nauðsynleg
er ímyndunarafl-
inu og innblæstri í
dagsins önn. Sátum
nýverið á fyrsta bekk á nýja svið-
inu í Borgarleikhúsinu og fylgd-
umst með „Fólkinu í kjallaranum“.
Óborganlegt að fá lífið í lúkurnar
og hratið yfir sig allan, ef svo mætti
að orði komast. Ógleymanlegur
nútíma brjálæðisbragur!
Það er gott að vera til, ekki bara
spila spil. Hversdagsljóminn er einn
allsherjar feluleikur, spurning bara
hvernig þú ferð með hann. Lífið er
allt fullt af Pollýönum og þú sérð tár
á hvarmi, ef þú bara leitar og hlust-
ar. Eymdin, harðlífið, biturleikinn,
örbirgðin. Líka velferð, lífsgleði og
tápsemi. Allt í boði og þú einn leit-
ar það uppi, sem þér þykir viðeig-
andi hverju sinni. Endurnæringin
vinnur úr flórunni og þú matreið-
ir útkomuna. Ferð með hana út í
lífið, deilir henni með öðrum og
færð mismunandi svör við ráðgát-
unni. Engum dylst að undir niðri
tekst fólk jafnt á við léttvæg og erf-
ið verkefni, sem á endanum verða
innlegg í reynslubankann. Hann
verður aldrei gjaldþrota og er opinn
allan sólarhringinn! Fit-kostnaður
mismikill.
Tónleikar með Bubba geta líka
verið einn allsherjar rússíbani,
þú ýmist elskar hann eða ekki. Á
tímabili bölvaði hann öllum gel-
greiddum „businessmönnum“ og
bankastjórum eða úreltum alþing-
ismönnum, sem engan áttu banda-
manninn og brugðust í erli dagsins.
Blessunarlega þó á milli laga. Í dag
raular hann um börnin sín í ljúf-
um ljóðum og er löngu búinn að
gleyma því þegar hann seldi sálu
sína og braskaði með afurðina í
fjármálaspekúlantsjónum. Hún féll
eins og spilaborg í vindhviðunni
víðfemu. Ísabella og París Dögun
eru orðin ljóð sem færðu honum
lífshamingjuna á ný og aðra og
miklu betri sál. Það eitt vakti mig til
umhugsunar um að allt í veröldinni
er hverfult, jafnvel stál og hnífur
FIMMTUDAGS
VALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr