Þjóðlíf - 01.12.1988, Blaðsíða 72
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
flest atkvæði í fyrri umferð síðustu kosninga.
Pað sem riðlar myndinni af fylgi hans sér-
staklega er sú breyting að Jón Bjarman hefur
nú verið fenginn til að gefa kost á sér í em-
bættið, en hann var einn af hörðustu stuðn-
ingsmönnum Olafs fyrir um átta árum. Einn-
ig hefur það skekkt myndina mjög að nokkur
hópur presta hefur ítrekað beðið dr. Björn
Björnsson að taka þctta embætti að sér, en
Björn var einnig talinn til stuðningsmanna
Olafs áður. Auk þeirra var Sigurður Sigurðs-
son í þeim hópi.
Á þessurn tíma hefur einnig orðið talsverð
fjölgun yngri manna í prestastéttinni og hafa
nokkrir viðmælenda Pjóðlífs sagt að á þeim
vettvangi hafi Ólafur ekki sama fylgi og með-
al eldri manna. Ekki er því auðvelt að áætla
fylgi Ólafs á þessari stundu. Það er hins veg-
ar ekki lengra síðan en í sumar að menn
töluðu í fullri alvöru um að Ólafur væri í raun
sjálfkjörinn í embættið og því ættu engir aðr-
ir að vera að gefa kost á sér. Það yrði til þess
eins að opinbera sundrung meðal kirkjunnar
manna. Samkvæmt heimildum stuðnings-
manna Ólafs er talið að hann hafi nálægt
helming allra kjörmanna og því sé ekki nema
rétt rúmlega helmingur til skiptanna fyrir
hina.
Sigurður Sigurðsson —
sjálfstæður en ungur
Einn sá manna sem virðist ætla að sópa að
sér fylgi meðal yngri prestanna er Sigurður
Sigurðsson. Um það leyti sem hann gaf út
yfirlýsingu um að hann gæfi kost á sér til
embættis biskups, við lok kirkjuþings, hafði
hann öruggt fylgi tíu til tuttugu prósenta allra
kjörmanna. Miðað við að kosið verði á milli
fjögurra eða fimma manna er þetta gott upp-
hafsfylgi. Það eru ekki síst fyrrverandi nem-
endur hans í guðfræðideild sem ætla sér að
velja hann til biskups fyrir sitt leyti, en Sig-
urður er talinn einn af víðlesnari prestum unt
safnaðarstarf, helgisiði og starfshætti kirkj-
unnar, en í þeim efnurn þykir dr. Bjarni Sig-
urðsson frá Mosfelli klerka best að sér.
Sigurði er fundið það til lasts að vera of
ungur til að taka þetta embætti að sér núna,
en hann er yngstur þeirra sem nefndir eru
hér, 44 ára. Stuðningsmenn hans segja hins
vegar að gagnrýni þessi sé tvíeggjuð þar sem
biskupsembættið hafi frekar reynst eldri
mönnum um of erfitt starf og erilsamt. Einn
af stuðningsmönnum hans segir að Sigurður
sé svar sitt við því sem hann kallar valdaklík-
an í Reykjavík. Sigurður er sjálfstæður, hóg-
vær maður og lætur ekki mikið yfir sér, en er
þekktur fyrir að korna þeim málum í höfn
sem honurn er trúað fyrir. Hann er sonur
Sigurðar heitins Pálssonar, vígslubiskups.
Heimir Steinsson — fróður
og fjöllesinn
Heimir Steinsson er sá fimmmenning-
anna, sem hvað minnstar upplýsingar er að
hafa um, hvað varðar fylgi. Hann er þó tal-
inn hafa nokkuð meira fylgi eins og er, en við
síðasta biskupskjör, þar sem hann varð fjórði
að atkvæðum í fyrra kjöri. Stuðningsmenn
hans munu einkum vera meðal hreintrúar-
manna sem auk þess fylgja kirkjuréttar-
stefnu. Telja þeir að með Heimi verði hægt
að endurheimta eðlilegan sess kirjunnar
gagnvart ríkisvaldinu og eignarstöðu kirkj-
unnar. Heimir á nokkra örugga stuðnings-
menn en á þessari stundu er mjög erfitt að sjá
hversu víðtækur sá stuðningur verður. Einn
stuðningsmanna hans sagði að margt ætti eft-
ir að gerast fram að kjöri og ekki væri ráðlegt
fyrir neinn að gera sér vonir urn afgerandi
kosningu.
Heimir er sagður afar vel að sér í flestum
fræðigreinum guðfræði og hefur kappkostað
að halda þekkingu sinni vel við þrátt fyrir að
nokkuð er um liðið frá próflokum hans.
Hann er sá guðfræðingur sem hæsta einkunn
hefur hlotið á kandídatsprófi fyrr eða síðar,
en hann hlaut tæplega 15 stig af 16 möguleg-
um í aðaleinkunn. Af öðrum þeim sem
nefndir eru hér er það aðeins dr. Björn
Björnsson, sem náð hefur að ógna þessu
virðingarsæti afgerandi árangurs á kand-
ídatsprófi.
Jón Bjarman — starfar í
kyrrþey — kemur á óvart
Jón Bjarman hefur ekki áður verið nefnd-
ur í sambandi við biskupskjör en hann hefur
fram til þessa verið álitinn einn af allra hörð-
ustu stuðningsmönnum Ólafs Skúlasonar.
Hann hefur nú verið nefndur til kjörsins af
nokkrum stuðningsmönnum, sunnan lands
og norðan. Hafa nokkrir viðmælendur sagt
að Jón Bjarman eigi eftir að koma vel út í
kjöri, en aðrir telja að þörf sé á ákveðnari og
meira áberandi manni á stól biskups. Víst er
að Jón á eftir að hljóta nokkurt fylgi en í
samanburði við hina fjóra er það á þessari
stundu ekki nægilegt til að ná einu af þremur
efstu sætum í fyrra kjöri, hvernig sem málin
kunna að þróast fram að því.
Segja stuðningsmenn hans að Jón eigi eftir
að koma verulega á óvart. Starfsvenjur hans
eru þannig að hann vinnur störf sín í kyrrþey
og kynnir þau af auðmýkt. Hann hefur til
dæmis unnið mjög að endurskipulagi starfs-
hátta í kirkjunni og eru tveir af helstu stuðn-
ingsmönnum hans fyrrum samstarfsmenn
hans í nefnd um það mál. Hann nýtur bæði
stuðnings kjörmanna úr liði Sunnlendinga og
manna á Akureyri.
Dr. Björn Björnsson — tregur
til en vinsæll
En það er líklegast að fylgið við dr. Björn
Björnsson eigi eftir að valda mestu um end-
anleg úrslit. Nokkrir af kjörmönnum hafa
alls ekki gefið upp alla von um að fá að nefna
nafn hans við þetta háa embætti. þrátt fyrir
yfirlýsingar hans í suntar um að hann gæfi
ekki kost á sér. Fremstir í þeim flokki eru
fyrrverandi nemendur hans í guðfræðideild,
hluti af samkennurum og nokkrir þekktir
prestar. Hann hefur oftar en ekki kosið að
nýta félagsfræðilegar aðferðir til athugunar á
raunverulegri trúarhneigð íslendinga, til
undirbúnings fyrir ákvarðanatöku um skip-
an kirkjumála og boðun kristinnar trúar.
Björn er eini doktorinn af biskupsefnun-
um. Hann hefur verið deildarforseti guð-
fræðideildar og forstöðumaður Guðfræði-
stofnunar Háskóla íslands, en í því embætti
hefur hann m.a. staðið fyrir mánaðarlegum
málstofum, þar sem fram fer ein helsta opin-
bera umræðan um guðfræði um þessar
mundir.
Miðað við lauslega könnun Þjóðlífs fyrir
skömmu bendir ýmislegt til að Ólafur Skúla-
son og Sigurður Sigurðsson verði nær örugg-
lega í tveimur af þremur efstu sætum fyrri
umferðar. Hinir þrír sem nefndir hafa verið
hér eru hver öðrum líklegri til að verða þriðji
maðurinn við fyrra kjör. í seinna kjöri verð-
ur þá kosið á milli Ólafs, Sigurðar og eins af
hinum þremur, þeirra Björns, Heimis eða
Jóns. Þetta er þó aðeins spá byggð á þeim
upplýsingunt sem þegar liggja fyrir, en stað-
an getur breyst á hvaða veg sem er. T.d. er
enginn frestur á því að gefa kost á sér til kjörs
þar sem flestir kjörmenn eru í raun í kjöri.
Verður efnt til prófkjörs?
Þessi mikla, og að margra mati eðlilega
óvissa, um eftirmann herra Péturs Sigur-
geirssonar, hefur valdið kjörmönnum og
öðrum miklum heilabrotum undanfarnar
vikur. Ein hugmyndin sem skotið hefur upp
kollinum er að efnt verði til prófkjörs áður
en kjörið fer fram og er í því sambandi talað
um að stjórn Prestafélags íslands standi fyrir
slíku prófkjöri. Hefur tillaga um þetta þegar
verið lögð fram af einum stjórnarmanni P.í.
Þegar Þjóðlíf ræddi við hann um rökin fyrir
prófkjörinu kom í ljós að ekki var eingöngu
um að ræða vilja þeirra til að kanna fylgi
einstakra manna eða leita enn nýrra kandí-
data, heldur hangir fleira á spýtunni.
Hugmyndin var að þeir sem lenda ofarlega
í slíku prófkjöri eigi jafnframt að koma fram í
sviðsljósið til að svara ákveðnum grundvall-
arspurningum um eðli og hlutverk biskups-
embættisins. Efstu menn ættu einnig að
kynna viðhorf sín varðandi hlutverk og
skipulag kirkjunnar til að allir kjörmenn geti
á aðgengilegan hátt kosið um hugmyndir
manna og málefni, en þurfi ekki að einblína
á viðkomandi persónu. Þessar tillögur um
prófkjör og opinbera greinargerð kandídat-
anna er sprottin af þeirri hugsun að reyna að
koma biskupsvali á það svið að ekki verði
eingöngu kosið um persónu guðfræðing-
72