Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2009, Síða 2

Víkurfréttir - 30.04.2009, Síða 2
2 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 18. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR DETOX NUDD Birgitta Jónsdóttir Klasen Náttúrulæknir HP 4 skipti á 2 vikum til þess að hreinsa líkamann og sálina. Næringar-og heilsuráðgjöf. Tímapantanir í síma 847 6144 Oddný Guðbjörg Harðar- dóttir, bæjarstjóri í Garði, er á leiðinni inn á Alþingi eftir sögulegar kosningar um liðna helgi. Samfylkingin bætti við sig þing manni í kjördæminu og á nú þrjá fulltrúa á þingi, eins og Sjálf- stæðisflokkurinn, sem tap- aði einum manni. Framsókn fékk tvo fulltrúa inn á þing og Borgarahreyfingin einn. Sandgerðingurinn Grétar Mar Jónsson féll hins vegar af þingi en hann hafði setið þar fyrir Frjálslynda flokkinn. Oddný er eini þingmaður þjóðarinnar sem er búsettur á Suðurnesjum en Ragn- heiður Elín, oddviti Sjálfstæð- isflokksins í Suðurkjördæmi, er að leita að húsnæði hér suður með sjó. Oddný hefur ekki gert upp við sig hvort hún ráði sér aðstoðarmann, eins og þingmönnum utan Reykjavíkur er heimilt. Odd ný seg ir að við brögð hennar við úrslitum kosning- anna séu fyrst og fremst þakk- læti fyrir stuðning Suðurnesja- manna og Sunnlendinga við Samfylkinguna. Einnig þakk- læti til þeirra sem komu á kosn- ingaskrifstofuna á hverjum degi og unnu að þessum góða árangri með mikilli vinnu, góðu skipulagi og léttri lund. Það er ekki síst þessu barátt- uglaða og hæfa fólki að þakka að ágæt niðurstaða náðist í kosningunum, segir Oddný í samtali við Víkurfréttir. Aðspurð um árangur Sam- fylkingarinnar í kjördæminu sagði hún það ánægju legt að hafa bætt við þingmanni. „Við fundum fyrir miklum Oddný Guðbjörg Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði, er á leiðinni á þing: Helguvíkurálver á grænni grein - stóra verkefnið á þingi er að skapa rekstrarumhverfi fyrir fyrirtæki og leysa vanda heimilanna stuðningi hér á Suðurnesjum og miðað við hann gerði ég mér vonir um að ná inn fjórða manninum. Þúsundir manna og nú er ég ekki að ýkja því gestir voru rúmlega tvö þús- und sem komu á kosninga- skrifstofuna okkar í Bolafæti á kosningadaginn. Ein mæt kona sem unnið hefur lengi með Samfylkingunni var gráti nær af gleði yfir fjölda gesta og stemningunni á kjördag“. Aðspurð um hvað kjósendur hafi vilj að segja við fram- bjóðendur í vinnustaðaheim- sóknum, sagði Oddný að við- brögð á vinnustöðum voru yfirleitt þau að fólk vildi gefa sér tíma til að tala um stöðuna og mögulegar lausnir. „Það var auðvitað staða heimila og atvinnulífs sem brann á fólki og svo ESB, kostir og gallar við aðild að Evrópusambandinu“. Hvaða við brögð hef ur þú verið að fá í Garðinum með þá ákvörðun að sækjast eftir þingsæti? „Garðbúar eru flestir stoltir af því að þeirra kona hafi átt þetta tækifæri og gleðjast með mér. Ein hverj ir voru ekki mjög glaðir í fyrstu, kannski skiljanlega því þessu fylgja breytingar. Starfsmenn og bæj- arfulltrúar þurfa að vinna með nýjum bæjarstjóra og vita ekki hvað tekur við. Ég mun verða áfram bæjarfulltrúi út kjör- tímabilið“. Hver verða næstu skref í Garð- inum. Verður staðan auglýst eða liggur fyrir hver tekur við af þér? „Við munum sennilega aug- lýsa eftir bæjarstjóra og óska eftir því að hann taki til starfa sem fyrst“. Oddný gerir ráð fyrir að auglýsingin birtist í Fréttablaðinu á föstudaginn og í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins. Um fram hald meiri hluta- samstarfsins í Garði, sem er þverpólitískt, sagði Oddný: „Ég vona að N-listinn bjóði fram aftur. Við höfum náð mjög fínum árangri og full ástæða til að halda áfram því góða starfi. Við lögðum upp með að auka tekjur bæjarins, auka íbúalýðræði og gagn- sæi stjórnsýslunnar og leggja áherslu á málefni sem gerðu Garðinn að fjölskylduvænum skóla- og íþrótta bæ. Við höfum náð árangri á öllum þessum sviðum og einnig gert átak í umhverfismálum. Und- irbúningur fyrir sveitarstjórn- arkosningar fer af stað með haustinu og þá skýrast málin væntanlega“. Hvaða málefni setur þú á odd- inn inni á Alþingi? „Í raun er bara eitt stórt mál sem allir þurfa að leggja sig Oddný G. Harðardóttir skilar atkvæði sínu í kjörkassann sl. laugardag. Orlofshús verkalýðsfélags Grindavíkur Frá og með 22. apríl - 14. maí 2009 verður tekið á móti umsóknum í orlofshús Verkalýðsfélagsins 2009. Orlofshús Verkalýðsfélags Grindavíkur eru á eftirtöldum stöðum: HALLKELSHÓLUM, SKORRADAL, APAVATNI ALLIR BÚSTAÐIR ERU MEÐ HEITUM POTTI Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins að Víkurbraut 46. Orlofsnefnd V.G. Félagar í Verkalýðsfélagi munið eftir 1. maí kaffinu. � � � �

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.