Víkurfréttir - 30.04.2009, Page 8
8 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 18. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Það var engu líkara en hinar torkennilegustu kynjaverur
hefði birst úr djúpum hraunsins á kynngimagnaðri sýn-
ingu Íslenska dansflokksins í Bláa lóninu að kvöldi síðasta
vetrardags. Áhorfendur urði þar vitni að miklu sjónarspili
sem samanstóð af áhrifamikilli túlkun, ljósi og myrkri,
hljóðs og lita. Verkið ber heitið Transaquania - Out of the
blue og er eftir dansarana Ernu og Damien Jalet og mynd-
listarkonuna Gabríelu Friðriksdóttur.
Kynngimagnaðar kynja-
verur í Bláa lóninu
VFmynd / Ellert Grétarsson.
Reykjanesbær og nágranna-
sveitarfélög taka nú í fyrsta
sinn þátt í hátíðinni List án
landamæra sem hófst í gær
en þar vinna fatlaðir og ófatl-
aðir saman að ýmsum list-
tengdum verkefnum.
Dagskráin hófst í Frumleikhús-
inu í Reykjanesbæ á sumardag-
inn fyrsta með ávarpi Árna Sig-
fússonar bæjarstjóra þar sem
sett var á svið sýningin Sum-
ardagurinn fyrsti sem er sam-
sett dagskrá með leik, söng
og dansi. Farið var stuttlega í
sögu sumardagsins fyrsta, ljóð
og sögur lesnar og flutt ný og
gömul lög sem hæfðu tilefn-
inu – allt gert með leikrænni
tjáningu. Þar á eft ir hófst
sýningin Glerborgir í Bíósal
Duushúsa sem er samsýning
listafólks undir stjórn mynd-
listarmannsins Guðmundar R.
Lúðvíkssonar þar sem sett var
upp ímyndað þorp og fjösku-
myndlist í anda Picasso. Troð-
fullt var út úr dyrum og flutti
Helgi Þór Einarsson ljóða-
slamm sem hann orti á meðan
á vinnslu Glerborganna stóð.
Boðið var upp á samsýningu
listamanna í sýningarrýminu
Suðsuðvestur og þjónustunot-
endur á Hæfingarstöðinni í
Reykjanesbæ verða með opið
hús. Dagskrá fer einnig fram í
Sveitarfélaginu Garði, Grinda-
vík og Sandgerði.
Ljóðsaslamm og Glerborgir á List
án landamæra í Reykjanesbæ
Mynd: Svanhildur Eiríksdóttir