Frjáls verslun - 01.02.2013, Page 20
20 FRJÁLS VERSLUN 2. 2013
Verðlaunahafar Stjórnvísi
Þrír kunnir stjórnendur fengu stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2013 við hátíðlega athöfn í
Turninum nýlega. Þetta voru þau Egill
Jónsson, framleiðslustjóri Össurar,
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa,
og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis á Íslandi. Forseti
Ís lands, Ólafur Ragnar Grímsson,
afhenti verðlaunin að viðstöddu
miklu fjölmenni. Þetta er fjórða árið
í röð sem verðlaunin eru veitt og
hefur forseti Íslands afhent þau frá
upp hafi. Innan félagsins starfa um
nítján faghópar á mismunandi sviðum
stjórnunar.
Ásbjörn Gíslason fékk verðlaun
fyrir þjónustu og markaðsstjórnun,
Egill fyrir framleiðslu og straumlínu
stjórnun og Guðbjörg Edda fyrir
stefnu mótun. Bára Sigurðardóttir,
formaður dómnefndar, flutti ræðu
fyrir hönd dómnefndar. Þrír kunnir
stjórnendur fluttu fyrirlestra sem vöktu
mikla athygli. Það voru þau Janne
Sigurðsson, forstjóri AlcoaFjarðaáls,
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, og Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair
Group og nýkjörinn formaður Sam
taka atvinnulífsins.
Stjórnvísi er opið öllum einstakling
um og fyrirtækjum sem hafa áhuga á
stjórnun og vilja fylgjast með nýjustu
stefnum og straumum á þeim vett
vangi. Félagið verður 27 ára á þessu
ári og hét upphaflega Gæðastjórn
unarfélag Íslands.
Markmið stjórnunarverðlaunanna er að vekja athygli á faglegu og
framúrskarandi starfi stjórnenda. Allar
nánari upplýsingar um verðlaunin
er að finna á heimasíðu Stjórnvísi;
stjornvisi.is. Stjórnvísi er stærsta
stjór n unarfélag á Íslandi með yfir
tvö þúsund félagsmenn og yfir þrjú
hundr uð fyrirtæki innan sinna raða.
Egill Jónsson, framleiðslustjóri Össurar, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis á Íslandi, og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa fengu
verðlaun Stjórnvísi á dögunum, stærsta stjórnunarfélags á Íslandi.
TexTi: jón G. HauKsson
Myndir: Geir ólafsson
Verðlaunahafar ásamt forseta Íslands. Ásbjörn Gíslason, forstjóri
Samskipa, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á
Íslandi, voru erlendis. Frá vinstri: Auður Þórhallsdóttir, mann-
auðsráðgjafi Samskipa, og Bára Mjöll Ágústsdóttir, mannauðs-
stjóri Samskipa, en þær tóku við verðlaununum fyrir hönd
Ásbjörns, Eyjólfur Þ. Haraldsson læknir, sem tók við verðlaun-
unum fyrir hönd eiginkonu sinnar, Guðbjargar Eddu Eggerts-
dóttur, Egill Jónsson, framleiðslustjóri Össurar, og Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin.
Egill Jónsson, framleiðslustjóri Össurar, fékk verðlaun fyrir
framleiðslu- og sraumlínustjórnun.
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa -
Fjarðaáls, hélt erindi.
Eyjólfur Þ. Haraldsson, læknir og
eigin maður Guðbjargar, tók við verð -
laununum fyrir hönd konu sinnar.
stjórnvÍsi