Frjáls verslun - 01.02.2013, Blaðsíða 102
102 FRJÁLS VERSLUN 2. 2013
„Obama gekk þrátt fyrir
þetta fram af miklum móð,
fullur bjartsýni og vonar, og
á sama tíma og hann vann
að fjárhaglegri endurskipu
lagningu og lækkun skulda
þjóðarinnar lagði hann
ríka áherslu á endurskoðun
mennta og heilbrigðis kerf
isins og nýja kosti í orku
málum.“
american Dream. Titillinn gæti út lagst
á íslensku: Dirfska vonarinnar: Hug
leið ingar um endurreisn ameríska
draums ins. Í þessari bók sagði Obama frá
framtíðarsýninni sem lagði grunninn að
baráttu hans um forsetastólinn. Fljótlega
eftir að bókin kom út náði hún fyrsta sæti
metsölulista bæði New York Times og
Amazon.com.
BókaskrifinhafavafalítiðhjálpaðObama
viðaðkynnastsjálfumsérogfinnatilgang
sinnílífinu.Hanssterkasjálfsmyndog
framtíðarsýn, sem eru grundvöllurinn að
velgengni hans, ljá honum vafalítið það
hugrekki, orku og eldmóð sem þarf til
að hrífa fólk með sér og láta verkin tala.
Vinsældir bókanna hafa einnig auðveldað
honum að kynna og koma málstað sínum
á framfæri.
Árangur Obama
Obama hafði ekki beinlínis vindinn í seglin
þegar hann tók við forsetaembættinu.
Heimskreppa ríkti, stríð geisaði í tveimur
löndum og Bandaríkin höfðu sjaldan
eða aldrei átt jafnlítilli hylli að fagna á
alþjóðlegum vettvangi. Obama gekk þrátt
fyrir þetta fram af miklum móð, fullur
bjartsýni og vonar, og á sama tíma og hann
vann að fjárhaglegri endurskipulagningu
og lækkun skulda þjóðarinnar lagði hann
ríka áherslu á endurskoðun mennta og
heilbrigðiskerfisinsognýjakostiíorku-
málum. Enda var það trú hans að þessir
málaflokkarværuallirinnbyrðistengdirog
hefðu áhrif hver á annan.
Í vígsluræðu sinni talaði Obama til
þjóð arinnar: „Erfiðleikarnir sem blasa
við okkur eru raunverulegir, þeir eru
alvarlegir og þeir eru margvíslegir. Það
verður ekki auðvelt að mæta þeim og
það mun taka langan tíma. En treystið
því: Þeim veður mætt.“
Fyrstu hundrað dagana í embætti eða
frá vígsludeginum og fram til 29. apríl
2009 kom Obama ótrúlega miklu í verk.
Hann endurskoðaði utanríkisstefnu
Banda ríkjanna, breytti löggjöf um fjármála
starf semi og lækkaði skatta. Hann greip
jafn framt til fjölmargra annarra aðgerða til
að koma hjólum efnahagslífsins aftur af stað
og bæta aðstæður minnihlutahópa og þeirra
sem verst voru settir efnahagslega.
Of langt mál væri að telja hér allt annað
sem Obama hefur tekist að framkvæma
af stefnumálum sínum á því tímabili
sem hann hefur verið við völd. En það er
ljóst að með einbeittum vilja, hreinskilni,
útsjónarsemi, þolinmæði og þrautseigju
hefur honum tekist að fá fólk til fylgis við
sig og ná fram breytingum sem fáa hefði
grunað að gætu orðið að veruleika á ekki
lengri tíma.
Aðferðir Obama
Þrennt var talið vinna með Obama þegar
hann vann sigur í forsetakosningunum árið
2008. Hann var nýr, hann var öðruvísi og
hann var aðlaðandi og það var það öðru
fremur sem kjósendur voru að sækjast eftir.
Það er öllum ljóst að gamla pólitíkin,
sama á hvaða vettvang er litið, er liðin
undir lok. Kommúnismi, kapítalismi og
sósíalismi eru gamlar og úreltar fylkingar
og skilgreiningar sem fólk samsamar sig
ekki lengur. Þetta kallar á nýjar leiðir,
nýjar aðferðir og nýjar hugmyndir. Obama
hefur litið fram hjá gömlu blokkunum
og leggur áherslu á að nálgast málefnin
á forsendum sem sameina fólk fremur en
sundra því. Hann byggir undir málstað
sinn með rökum og staðreyndum sem ná
út fyrir litarhátt, kyn, kynhneigð, menntun,
þjóðerni, efnahag eða stöðu í samfélaginu.
Obama nálgast fólk (kjósendur) á þeirra
eigin forsendum en ekki á forsendum
gamallarúreltrarflokkspólitíkurogsér-
hags muna tiltekinna hópa. Hann talar
við fólk á tungumáli sem það skilur og í
gegnum miðlana sem fólkið kýs að nota
og er ófeiminn við að fara ótroðnar slóðir
í þeim efnum. Hann er hreinskilinn og
ófeiminn við að segja hlutina eins og
þeir eru, án þess að fara eins og köttur í
kringum heitan graut. Hann hefur hug
rekki til að standa og falla með hugsjónum
sínum og eigin sannfæringu og velur
það, fremur en að eltast við skammvinnar
per sónulegar vinsældir sem í raun svipta
menn tækifærinu til raunverulegra áhrifa
og árangurs.
Hann setur skýr markmið og markið
hátt. Hann er ófeiminn við að ráðast gegn
úreltum gildum, hefðum og aðferðum
til að skapa betra og heilbrigðara sam
fé lag öllum til handa. Hann blæs fólki
kjark í brjóst, þrátt fyrir andstreymi og
erfiðleika.Einkunnarorðinhansfrákosn-
ingabaráttunni fyrir kosningarnar árið
2008, „Yes we can“, eru nú ódauðleg og
lýs andi dæmi um það.
Samvinna er orðið sem oftast kemur við
sögu þegar fjallað er um stjórnunarstíl
Obama. Hann leggur áherslu á samræður
fremur en rökræður og leggur áherslu á
að hlusta á ólík sjónarmið og taka tillit til
þeirra áður en ákvarðanir eru teknar. Hann
er líka nákvæmur og leggst jafnan í mikla
rannsóknarvinnu og skoðar mál frá öllum
hliðum áður en hann tekur ákvarðanir.
Hann er einnig afbragðsgreinandi og á
auðvelt með að skilja hismið frá kjarn an
um.
Einn af hans helstu kostum hefur einnig
verið talinn sá að hann er auðmjúkur og
lætur ekki eigið sjálf þvælast of mikið
fyrir sér. Hann velur sér samstarfsfólk á
faglegum forsendum, er óhræddur við að
sækja sér liðstyrk í sterkum og greindum
einstaklingummeðyfirburðaþekkingu,
sem umfram allt vinna faglega. Fólki sem
„stækkar hann“ ef svo má að orði komast.
Á sama tíma gætir Obama þess að hafa
alltaf opnar gáttir þar sem almenningur
getur komið sjónarmiðum sínum á fram
færi við hann og haft áhrif á skoðanir hans
og ákvarðanir. Obama hefur því valið aðra
leið en margir stjórnmálamenn gera, sem
nota tækifærið þegar þeir komast til valda
til að launa vinum og velgjörðarmönnum
gamla greiða með því að veita þeim
em bætti og vegtyllur. En loka svo bæði
augum og eyrum þar til kemur að næstu
kosningum.