Frjáls verslun - 01.02.2013, Side 30
30 FRJÁLS VERSLUN 2. 2013
fjölSKyldufyrirtæKi
Árni Vilhjálmsson þekkti vel til rekstrar
fjölskyldufyrirtækja. Hann sat lengi í stjórn
Kassagerðar Reykjavíkur sem þá var í eigu
fjölskyldu. Að mati Árna kæmi utanaðkom
andi stjórnarmaður í fjölskyldufyrirtæki
fyrstogfremstaðsemráðgjafi.Íviðtalivið
Frjálsa verslun árið 1989 sagði hann m.a.:
„Hugsanlega er eitthvað í eðli Íslendinga
sem gerir það að verkum að okkur gengur
fremur illa að vinna saman en samkvæmt
minnireynsluhöfumviðáttfrekarerfitt
með samstarf og samvinnu.
Ég er sannfærður um að okkur hefði orðið
beturágengtíatvinnulífinuhérlendishefði
okkur almennt gengið betur að vinna með
öðrum. Atvinnurekstur í Japan er mikið
til í höndum stórfyrirtækja enda eru þeir
orðlagðir fyrir að geta unnið vel saman.
Smáar einingar og smáfyrirtæki eru ríkur
þáttur í íslensku þjóðfélagi. Ein af skýring
un um á því er sú að við byggjum alla
út kjálka og annes þar sem halda þarf uppi
atvinnulífiogþjónustuviðíbúa.Þaðerþví
allt morandi í litlum smáfyrirtækjum um
land allt. Mörg þeirra eru fjölskyldufyrir
tæki enda má kannski segja að fjölsky
lduformið sé ákjósanlegt þegar um
smáatvinnu rekstur er að ræða.
Við viljum að börnin okkar gangi
mennta veginn og oft þýðir það að börnin
eru menntuð frá þeim viðfangsefnum sem
fjöl skyldufyrirtækin eru að fást við. Það er
því ekki hægt að ætlast til þess að börnin
hafiáhugaáfjölskyldurekstrinumþótt
foreldrarnir vilji gjarnan að þau taki við og
telji þau hæf til þess.“
Árni hafði hins vegar litla trú á þeirri
alhæfingu,aðþegarþriðjakynslóðinætli
aðhaslasérvöllogrekafyrirtækið,semafi
stofnaði, fari að halla undan fæti og hún
setji fyrirtækin á hausinn.
StjórnarHættir í
fyrirtæKjum
Athyglin hefur sérstaklega beinst að skip
an mála hjá skráðum félögum, þar sem
forstjórinn er oftast atvinnustjórnandi sem
á óverulegan hlut í félaginu. Málið snýst
um áhrifavald og afskipti þriggja aðila
af stefnumótun og rekstri fyrirtækis, þ.e.
hluthafa, stjórnar og forstjóra. Hér á landi
er félagi kosinn í stjórn á árlegum hluthafa
fundi, oft í samræmi við tillögu fráfarandi
stjórnar eða formanns hennar. Sérhver
hluthafigeturþógerttillöguummenn
til stjórnarsetu. Stjórn félags er oft skipuð
mönnum sem eiga, eða eru umboðsmenn
fyrir, stóra eignarhluta. Það er verkefni
stjórnar, í samvinnu við forstjóra, að móta
stefnu fyrirtækisins og setja markmið um
árangur með langtímahagsmuni hluthafa í
huga. Það er alveg ljóst frá hverjum stjórn
félagsins hefur umboð sitt. Annað hlutverk
stjórnar er að ákveða starfskjör forstjóra,
að hvetja hann til dáða og fylgjast með og
meta frammistöðu hans. Í Bandaríkjunum
hefur það tíðkast, svo undarlegt sem það
kann að virðast, að sami maðurinn gegni
bæði stöðu formanns stjórnar og forstjóra.
Jafnframt hefur sá maður oft haft veru
leg áhrif á val annarra stjórnarmanna.
Algengt er að í stjórn séu nokkrir helstu
stjórnendur félagsins og að meðal utanað
komandi stjórnarmanna séu forstjórar og
fyrrverandi forstjórar virtra fyrirtækja.
Samkvæmt íslenskum lögum má ekki kjósa
framkvæmdastjóra sem stjórn ar formann
og er bannið naumast um kvörtunarefni í
skráðum félögum.
Eitt af því sem að undanförnu hefur aukið svo mjög áhuga á valkostum
um stjórnarhætti fyrirtækja er taumleysið í
launahækk unum forstjóra, sem hefur við
gengist víða um heim. Í staðinn fyrir föst
mánaðarlaun hafa verið hönnuð íburðar
mikilkerfisemtengjaumbunviðafkomu
eða virðissköp un, allt í því skyni að
forstjórinn sinni þeirri skyldu sinni undan
bragðalaustaðeflahaghluthafa.Éghefá
tilfinningunniaðhinndæmigerðiíslenski
forstjóri sé fremri erlend um kollegum
sínum um húsbóndahollustu og að mjög
einfaltumbunarkerfidugitilaðvirkjahann
til fulls. Eins og stjórn dæmigerðs íslensks
fyrirtækis er skip uð held ég líka að hún sé
mun færari en sú bandaríska um að veita
mótspyrnugegnóhóflegriásælniíumbun
af hálfu for stjóra. Satt að segja sýnist mér
að mjög vel sé ástatt hjá okkur Íslending
um í þeim málum sem varða stjórnarhætti
félaga.
Vel má vera að álíka leiðbeiningar eigi
erindi við okkur og yrðu sumum beinlínis
hjálplegar. Ég lýsi mig þó andvígan þeim
meðmælum þeirra að stjórnarmaður skuli
hypja sig úr stjórn í síðasta lagi á því ári
sem hann verður sjötugur!
árni viLhjáLmsson
„Hugsanlega er eitt
hvað í eðli Íslendinga
sem gerir það að verk
um að okkur geng ur
fremur illa að vinna
saman en sam kvæmt
minni reynslu höfum
við átt frekar erfi tt
með samstarf og
sam vinnu.“
Árni í jólablaði Vísbendingar árið 2003. Sjávarútvegur var honum afar hugleikinn og var hann stjórnarformaður HB Granda í tuttugu og fimm ár.