Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Síða 110

Frjáls verslun - 01.11.2013, Síða 110
110 FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 áramót eru tímamót ÞORSTEINN INGI SIGFÚSSON, FORSTJÓRI NýSKöPUNARMIðSTöðVAR – NMÍ Einstakt hlutverk Nýsköpunarmiðstöð Íslands er óvenjuleg stofnun sem varð til við sameiningu Iðntækni- stofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins 2007. Hún er einstök; gegnir hlutverki sem er nýtt og þegar hún er borin saman við aðrar stofnanir má sjá að hlutverk hennar gengur lengra í viðskiptaþróun og þróun vöru og þjónustu en áður tíðkaðist. TexTi: gíSli kriSTJánSSon / Myndir: geir ÓlafSSon o.fl Með einstöku hlut ­verki sínu nær Ný­sköp unarmiðstöð Íslands m.a. að tengja betur þá þekkingu sem til verður í rannsóknar­ og sam starfs ­ verkefnum við atvinnu lífið og gerir nýjum fyrir tækjum kleift að byggja á nýrri þekkingu sem oft skapar ákveðið sam ­ keppnisforskort í alþjóð legu samhengi. Í lögunum um Ný ­ sköpunarmiðstöð er henni gert að „stuðla að lífsgæðum á Íslandi“. Allt þetta hefur fléttast saman í okkar vinnu samhliða ríkri áherslu á samfélagslega ábyrgð í öllu tilliti. Hvaða árangur Nmí ert þú ánægðastur með á árinu? Þegar ég horfi yfir árið sem er að líða þá er ég ánægðastur með hvernig okkur hefur tekist að rækja hlutverk okkar gagnvart frumkvöðlum og fyrirtækjum á árinu. Við höf­ um átt samtal við ríflega átta þúsund aðila um land allt og handleitt þá til góðra dáða. Nú í desember vorum við til dæmis að útskrifa nemanda númer eitt þúsund fjörutíu og átta af námskeiðinu „Brautar gengi“ sem leggur þeim konum lið sem vilja hrinda viðskipta ­ hug mynd í fram kvæmd og hefja eigin rekstur eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrar þekkingu sína. Við höfum unnið að verkefnum sem miða að því að snúa sorpi í eldsneyti og einbeitum okkur að klösum og vöru­ og þjónustuþróun í starfandi fyrirtækjum – við reynum að beina athygli ráðuneytis okkar að klasa ­ hugsuninni sem við teljum geta hentað einkar vel hér á landi. Og þegar ég hugsa út fyrir landsteinana kemur í hugann að kínversk stjórn ­ völd vilja stofna með okkur alþjóðamiðstöð á sviði stein ­ steypu með verulega minnkuðu kolefnisfótspori – við köllum það Eco­Crete og vonumst eftir samningsundirskrift í byrjun nýs ár. Hvað nýjungar komu fram? Nú um áramótin opnum við nýja og öfluga starfsemi á sviði svokallaðrar stafrænnar smiðju, FabLab, sem við rekum í samstarfi við MIT­háskóla í Boston í Bandaríkjunum. Þarna er samstarf við Fjölbrauta skól ­ ann í Breiðholti og Reykjavíkur­ borg. FabLab­smiðjan verður í Eddufelli en mun teygja anga sína út í Fjölbrautaskólann þar sem við prófum okkur áfram með svokallað E­Lab, smiðju sem varðar raftækni og upplýsingatækni og mennta ­ málaráðuneytið hefur stutt okkur mjög vel með. Þrjár sam bærilegar smiðjur eru þegar starfræktar undir okkar hatti í Vestmannaeyjum, á Sauðárkróki og Ísafirði og hafa þær allar það hlutverk að efla nýsköpun með því að auka þekkingu á persónumiðaðri fram leiðslu og stafrænum fram ­ leiðsluaðferðum sem þegar upp er staðið eykur tækni ­ læsi almennings og al menna tæknivitund. Ekki er vanþörf á því þar sem atvinnu mark ­ að urinn kallar í auknum mæli eftir tækni menntuðu fólki. Um svipað leyti opnum við frumkvöðlasetur fyrir skapandi greinar á Hlemmi; nú er Hlemm ur að menningarvæðast svo um munar. Þar munu koma saman ýmsar skrifstofur á borð við Iceland Airwaves, Útón og Tónverkamiðstöðina ásamt hópi spennandi frumkvöðla þar sem áhersla verður lögð á skapandi tónlist. Samvinna hefur verið við þessar stofnanir og borgina. Hver verða forgangsverkefni Nmí næstu sex mánuði? Þegar ég lít til framtíðar geri ég mér grein fyrir að þessi fyrstu ár starfseminnar hafa reynt á okkur; fyrst hrunið og kreppan og svo margfeldisáhrif þess að byggingariðnaðurinn féll í fang okkar gríðarlega lask aður. Það er einmitt á svona stundum sem reynir á „karakter“ stofnunar eins og okkar. Ég hef verið svo lán sam ­ ur að vinna ekki aðeins með öflugu fólki, heldur njóta þess að allir ráðherrar nýsköpunar á Íslandi hafa horft til okkar um hlutverk og forystu. Núverandi ný sköpunarráðherra, Ragnheiður Elín, er besta dæm ­ ið um slíka afstöðu og við vinnum ötullega saman að efl ­ ingu íslensks atvinnulífs í kjöl ­ far nýsköpunar. Starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Keldnaholti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.