Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 119
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 119
s.s. við íþróttaiðkun, útivist,
lestur bóka, eða við að sinna
hvaða áhugamálum sem er.
Þegar við upplifum að spenn
an verður meiri en svo að við
höfum stjórn á aðstæðum er
hætt við að hún hafi neikvæð
áhrif á árangur okkar í starfi.
Líkamleg einkenni eins og
höf uðverkur, vöðvaspenna,
verkur fyrir brjóstinu, þreyta,
melt ingartruflanir, svitaköst og
svefnvanda mál gera vart við
sig. Kvíði, eirðarleysi, skortur á
á huga og einbeitingu, dep
urð og jafnvel þunglyndi eru
til finningar sem við upplifum
í meira mæli. Hegðun okkar
breytist, okkur hættir til að of
eða vanmeta aðstæður, við tök
um reiðiköst og drögum okkur
jafnvel í hlé félagslega. Óhófleg
notkun á lyfjum og vímugjöfum,
víni, tóbaki eða öðru, er einnig
algengur fylgifiskur, svo og
kynlífsfíkn. Allir þessir þættir
draga úr tækifærum okkar til að
upp lifa vellíðan og skila okkar
besta árangri, hvort sem er í
starfi eða einkalífi.
Hvernig eigum við að
bregðast við?
Við þurfum að tryggja að við
fáum næga hvíld og orku til
að takast á við þau krefjandi
verkefni sem fylgja stjórnenda
hlutverkinu. Það hjálpar mikið til
ef við höfum ástríðu fyrir verk
efninu og getum upplifað flæði í
vinnunni. Það hjálpar okkur líka
að eiga skemmtileg áhugamál
sem við sinnum reglulega utan
vinnunnar og gefa okkur orku
og innblástur.
Fjölmargir eru tilbúnir að veita
okkur góð ráð um það hvernig
við getum náð betri stjórn á
eigin lífi og jafnvægi milli starfs
og einkalífs. Mikilvægast er þó
að hver og einn finni sér leið, út
frá eigin forsendum og þörfum.
Hér á eftir fara nokkur heilræði
sem kannski geta veitt innblástur.
Áður en þú ferð í fríið
1. Skipuleggðu fríin tíman-
lega. Taktu tímann frá og
skipuleggðu verkefnin
í samræmi við það. Ef
fyrirvari er nægur er minni
hætta á að við séum búin
að ákveða verkefni eða
verklok á viðkvæmum tíma.
Þá eigum við síður á hættu
að þurfa að fresta fríinu
eða sleppa því.
2. Verum raunsæ. Yfir sumar-
tímann og yfir páska, jól og
ára mót eru færri vinnuda-
gar svo við skulum gera
ráð fyrir að koma ekki eins
miklu í verk.
3. Leggjum áherslu á að
forgangs raða. Gerum það í
sam ráði við okkar nánasta
samstarfsfólk, drögum
mörkin og látum vita að við
munum aðeins sinna því
allra mikilvægasta.
4. Byrjaðu í fríi áður en þú
leggur af stað. Eigðu t.d.
einn eða tvo fundalausa
daga áður en fríið byrjar til
að hnýta alla lausa enda
svo verkefnin elti þig síður
í fríið. Eins getur verið klókt
að koma til baka úr fríinu
á undan áætlun. Þannig
getur þú náð í nokkra daga
í vinnunni sem þú átt lausa
án þess að búið sé að
bóka þig á fundi.
5. Ekki ofhlaða fríið. Þeir sem
sjaldan hafa tækifæri til að
fara í frí eiga það til að hafa
of miklar væntingar og ætla
sér að koma of miklu í verk
á stuttum tíma. Leyfðu þér
að eiga tíma til að slæpast
dálítið líka. Þannig er minni
hætta á að þú komir þreytt-
ari úr fríinu en þú varst
þegar þú fórst.
Á meðan þú ert í fríi
1. Verum góðar fyrirmyndir og
setjum gott fordæmi. Leggj-
u m línur um hvar draga á
mörkin. Ef þú hringir mikið
í samstarfsfólkið í fríinu
og ert í sífellu að senda
tölvupóst þar sem þú liggur
á sundlaugarbakkanum er
líklegt að samstarfsfólk þitt
reikni með að þú ætlist til
þess sama af þeim.
2. Látum símann eiga sig
nema erindið sé brýnt og
ekki kíkja á tölvupóstinn
á fimm mínútna fresti.
Ákveddu fyrirfram að skoða
póstinn t.d. aðeins snemma
á morgnana og einu sinni
síðdegis en gefðu honum
frí þess á milli.
3. Treystu fólkinu þínu. Fjar-
vera þín gefur þeim gott
tækifæri til að spreyta sig.
Undirbúðu fjarveru þína.
Leyfðu þeim að heyra að
þú treystir þeim. Láttu vita
til hvers þú ætlast á meðan
þú ert í burtu og vertu
viss, þau munu leggja sig
fram um að standa undir
væntingum þínum.
4. Verðu fríinu í umhverfi sem
nærir þig, úti í náttúrunni,
á fjöll um, við ströndina, í
skógin um eða hvar sem
þú hleður batteríin best,
skemmt ir þér og finnur
frið. Ef þú átt vini sem eru
nánast „ofvirkir“ af athafna-
gleði en þú ert meira þessi
„sundlaugarbakkatýpa“
vertu þá viss um að þú
veljir þér frí á þínum eigin
forsendum. Sniðugra gæti
þá verið að fara í helgar-
ferðir með vinunum en í
þriggja vikna ferðalag.
Á hverjum degi
Vissulega þykir okkur gott að
vita að við erum mikilvæg, þótt
við vitum innst inni að enginn er
ómissandi. Þess vegna getum
við öll tekið frí öðru hvoru og
fengið hvíld frá daglegu amstri.
Þá ná kollurinn og kroppurinn
að safna kröftum og orku til að
sinna því vel sem raunverulega
er mikilvægt, bæði í vinnunni og
heima. Þá verðum við líka bæði
skemmtilegri og afkastameiri.
En í raun er ekki síður mikil
vægt að við fáum hvíld og
slökun reglulega. Ekki bara í
skipulögðum fríum. Borðum hollt,
sofum lengi og vel, hreyfum
okkur reglulega, notum áfengi
í hófi og slökum á a.m.k. stutta
stund á hverjum degi. Þannig
ættum við að hlaða okkur orku
á hverjum degi.
Njóttu þess að slappa af um
hátíðirnar og kannski er tilvalið
að nota einmitt tímann núna
til að skipuleggja sumarfríið
næsta sumar með fjölskyldunni.
Eigðu gott ár 2014.
Tekur þú vinnuna með í fríið?